Matur

Gerir mánudagsfiskinn skemmti­legri

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Heilsukokkurinn Jana er mikill snillingur að setja saman ljúffengar uppskriftir.
Heilsukokkurinn Jana er mikill snillingur að setja saman ljúffengar uppskriftir. SAMSETT

Heilsukokkurinn Jana fer frumlegar og fjölbreyttar leiðir í eldhúsinu og töfrar fram ýmsa skemmtilega rétti. Mánudagsfiskurinn er eflaust fastur liður á mörgum heimilum og hér má finna skemmtilega útfærslu á honum frá Jönu.

Jana heldur uppi Instagram aðgangi og heimasíðu þar sem hún deilir ýmsum ljúffengum uppskriftum. 

Skemmtilegur fiskréttur með grænmeti, döðlum og salthnetum

Innihaldsefni:

800 gr þorskhnakkar

1 appelsína skorin í grófa bita

5 hvítlauksrif skorin í tvennt

6 matskeiðar salthnetur

4 msk gróft skornar steinlausar döðlur

1 rauð paprika gróft skorin

1 rauðlaukur skorin gróft

1 box steinselja gróft söxuð

Smá mynta gróft söxuð

Olífuolía

Salt og pipar

1 msk Marrokósk kryddblanda

1 krukka af laktósalaus salatostur

„Blandið öllu saman í eldfast mót og setjið inn í 200 gráðu heitan ofn í um 20-25 mínútur. Dásamlegur fiskréttur og verið óhrædd við að blanda meira og öðru grænmeti og finna ykkar uppáhalds fiskrétt. Berið fram með íslensku bankabyggi eða nýjum íslenskum kartöflum og fersku salati,“ skrifar Jana með uppskriftinni






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.