Jana heldur uppi Instagram aðgangi og heimasíðu þar sem hún deilir ýmsum ljúffengum uppskriftum.
Skemmtilegur fiskréttur með grænmeti, döðlum og salthnetum
Innihaldsefni:
800 gr þorskhnakkar
1 appelsína skorin í grófa bita
5 hvítlauksrif skorin í tvennt
6 matskeiðar salthnetur
4 msk gróft skornar steinlausar döðlur
1 rauð paprika gróft skorin
1 rauðlaukur skorin gróft
1 box steinselja gróft söxuð
Smá mynta gróft söxuð
Olífuolía
Salt og pipar
1 msk Marrokósk kryddblanda
1 krukka af laktósalaus salatostur
„Blandið öllu saman í eldfast mót og setjið inn í 200 gráðu heitan ofn í um 20-25 mínútur. Dásamlegur fiskréttur og verið óhrædd við að blanda meira og öðru grænmeti og finna ykkar uppáhalds fiskrétt. Berið fram með íslensku bankabyggi eða nýjum íslenskum kartöflum og fersku salati,“ skrifar Jana með uppskriftinni.