Lífið

Ása Steinars á von á barni

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Ása og Leo eiga vön á öðru barni sínu.
Ása og Leo eiga vön á öðru barni sínu. Ása Steinars

Ása Stein­ars, áhrifavaldur og ferðaljós­mynd­ari, og eig­inmaður henn­ar, Leo Als­ved, eiga von á sínu öðru barni.

Hjón­in greindu frá fregnunum í myndbandi á Face­book síðdegis. Í myndbandinu stendur parið úti í snæviþakinni víðáttu og segist hafa haldið dálitlu leyndu. Ása dregur svo upp sónarmynd af barninu og segir í myndatexta: „Fjölskyldan okkar er að stækka sumarið 2025. Hæ litla snjóbarn 🖐“

„Hólí mólí, við erum að verða fjög­urra manna fjöl­skylda. Við get­um ekki beðið eft­ir að hitta litla miðnæt­ur­sól­ar­barnið okkar í sum­ar. Þetta hefur verið villt ferðalag til þessa og við erum svo tilbúinn fyrir þetta og að sjá Atlas verða stóra bróður,” skrifa hjón­in við myndskeiðið.

Fyr­ir eiga þau son­inn Atlas sem fædd­ist í árs­byrj­un 2022.

Ferðaljósmyndari með milljón fylgjendur

Ása Steinars er einn stærsti áhrifavaldur Íslands og er með um 1,4 milljón fylgjendur á Instagram. Ása starfar við ljósmyndun og flakkar vítt og breitt um heiminn í starfi sínu og deilir því á samfélagsmiðlum sínum.

Ása var í Íslandi í dag árið 2019 og var þá með um 130 þúsund fylgjendur. Þrátt fyrir það var hún ekki sérlega þekkt hér á landi. Síðan þá hefur fylgjendafjöldinn margfaldast og hún orðið að þekktari stærð hér á landi.

Nýlega hefur Ása staðið í dómsmálum við bandaríska markaðsfyrirtækið Tripscout sem hafði notað og deilt efni hennar án hennar leyfis. Ása stefndi fyrirtækinu vegna brota á höfundarrétti og höfðaði fyrirtækið í kjölfarið gagnsókn á hendur henni. Gagnkröfum Tripscout var á endanum vísað frá en fyrra málið stendur enn yfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.