Stöð 2 Sport
Keflavík tekur á móti Tindastóli í öðrum leik liðanna í einvígi þeirra í 8-liða úrslitum Bónus-deildarinnar. Keflvíkingar komu mörgum á óvart í fyrsta leiknum þegar þeir héldu í við Tindastólsmenn lengi vel en Stólarnir höfðu sigur að lokum.
Útsending frá leiknum hefst klukkan 19:00 og strax að leik loknum klukkan 21:15 verður Bónus Körfuboltakvöld á dagskrá þar sem farið verður yfir leiki kvöldsins.
Klukkan 21:45 verður svo þáttaröðin A&B á dagskrá en þar er fjallað um feril tvíburabræðranna Arnars og Bjarka Gunnalaugssona.
Stöð 2 Sport 2
Klukkan 19:30 verður sýnt beint frá leik Oklahoma City Thunder og Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta.
Stöð 2 Sport 4
LPGA-mótaröðin í golfi verður á dagskrá klukkan 17:30 þegar sýnt verður frá T-Mobile mótinu.
Stöð 2 Sport 5
KA tekur á móti KR í fyrsta leik liðanna í Bestu deild karla. Útsending hefst klukkan 16:05 og klukkan 19:00 er svo komið að leik Fram og ÍA í Úlfarsárdalnum.
Klukkan 21:20 eru Subway Tilþrifin á dagskrá þar sem farið verður yfir allt það helsta í leikjum dagsins og gærdagsins í Bestu deildinni.
Stöð 2 Besta deildin
Leikur Vals og Vestra að Hlíðarenda verður sýndur beint klukkan 13:50.
Stöð 2 Bónus deildin
Grindavík og Valur mætast í Smáranum og útsendingin þaðan fer í loftið 19:50. Grindvíkingar þurfa nauðsynlega á sigri að halda eftir tap í fyrsta leiknum.
Vodafone Sport
Klukkan 11:25 verður leikur Schalke 04 og ULM í 2. Bundesliga sýndur beint og klukkan 13:25 er komið að leik St. Pauli og Mönchengladbach í efstu deild þeirra Þjóðverja.
Union Berlin og Wolfsburg mætast klukkan 15:25 og klukkan 18:30 er komið að Goodyear 400 kappakstrinum í Nascar.
Við lokum síðan kvöldinu með útsendingu frá leik Red Sox og Cardinals í MLB-deildinni.