Lífið

Guðni Th. orðinn afi

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti Íslands og Eliza Reid.
Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti Íslands og Eliza Reid. Vísir/Vilhelm

Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands, er orðinn afi. Dóttir hans og rithöfundur Rut Thorlacius Guðnadóttir og Halldór Friðrik Harðarson, verkfræðingur hjá Wise, eignuðust son í byrjun apríl.

Nýbökuðu foreldrarnir Rut og Halldór greina frá á Facebook síðum sínum en drengurinn fæddist þann fjórða apríl.

„Litla fjölskyldan er núna komin heim í hreiðrið sitt og allir eru á batavegi. Þökkum allar kveðjur og hlýjar óskir, við getum ekki verið stoltari af dásamlega litla unganum okkar. Endalaus ást í allar áttir,“ skrifa þau á Facebook.

Samkvæmt færslunni virðist fæðingin ekki hafa farið eftir áætlun en það sem átti að vera heimafæðing endaði í nokkurra daga veru á Landspítalanum. Bæði Rut og drengurinn eru á batavegi og fengu góðan tíma til að jafna sig á sjúkrahúsinu.

Hjónin giftu sig í október árið 2024. Rut starfar sem íslenskukennari og hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin árið 2020 en Halldór starfar sem Senior Network Engineer hjá Wise lausnum ehf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.