Viðskipti innlent

Röntgenveldið tekur yfir rekstur Bullseye

Jón Þór Stefánsson skrifar
Bullseye hefur vakið vinsældir frá stofnun árið 2020.
Bullseye hefur vakið vinsældir frá stofnun árið 2020. Vísir/Hulda Margrét

Steinþór Helgi Arnsteinsson og Ásgeir Guðmundsson, sem eiga skemmtistaðinn Röntgen og veitingastaðinn Skreið í Reykjavík, munu taka við rekstri pílustaðarins Bullseye, sem er staðsett í gamla Austurbæjarbíói.

Frá þessu er greint í Viðskiptablaðinu í dag, en þar segir að fasteignafélagið Bergey hafi fest kaup á fasteigninni að Austurbæjarbíó, sem er til húsa í Snorrabraut 37. Í kaupunum fylgir rekstur Bullseye. Hjónin Jón Gunnar Bergs og María Soffía Gottfreðsdóttir seldu fasteignina.

Magnús Berg Magnússon, Torfi G Yngvason og Jónas Pétur Ólason fara fyrir Bergey, sem hefur gert sig gildandi á fasteignamarkaði undanfarin ár, með áherslu á atvinnuhúsnæði í miðbæ Reykjavíkur. 

Magnús Berg er sonur Magnúsar Kristinssonar, fyrrverandi útgerðarmanns í Vestmannaeyjum. Eignarhaldsfélagið Tunga ehf. fer með 62 prósenta hlut í Bergey og er í eigu Magnúsar eldri og fjölskyldu.

Fram kemur að Steinþór og Ásgeir ætli sér að blása lífi í húsið með viðburðum, tónleikahaldi. Þá ætli þeir að halda áfram að þróa Bullseye.

Einnig kemur fram að Ágúst Einþórsson, einn af stofnendum Brauð & co og eigandi BakaBaka og Hressó, muni verða hluti af þessu teymi og sjá um veitingar í húsinu.

Fréttin hefur verið uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×