„Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Valur Páll Eiríksson skrifar 16. október 2026 08:32 Inga Sæland er ráðherra íþróttamála og hyggst ekki breyta bannlögum um atvinnuhnefaleika frá árinu 1956. Í mörg ár hefur hnefaleikahreyfingin hérlendis kallað eftir því að greinin verði heimiluð hér á landi. Vísir/Vilhelm Áætlanir Ingu Sæland, barna- og menntamálaráðherra, sem jafnframt er ráðherra íþróttamála þess efnis að standa í vegi fyrir heimilun atvinnuhnefaleika hér á landi sætir gagnrýni víða. Málið var til umræðu í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar.
Líkt og greint var frá á Vísi í fyrradag var svar Ingu við fyrirspurn Júlíusar Viggós Ólafssonar um málið heldur afgerandi. Atvinnuhnefaleikar hafa verið bannaðir hér á landi samkvæmt lögum frá árinu 1956. Í svari Ingu við fyrirspurninni er vísað í áhættu sem fylgi ítrekuðum höfuðhöggum. Öryggisreglur, lækniseftirlit og tímabundin keppnisbönn geti dregið úr bráðri áhættu. Þau úrræði geti hins vegar ekki komið í veg fyrir áhættuna sem fylgi endurteknum höfuðhöggum, að því er segir í svarinu. Íslenski atvinnuhnefaleikakappinn Emin Kadri tjáði sig um málið í gær, en hann getur eðli málsins samkvæmt, ekki sinnt þeirri atvinnu sinni hér á landi heldur aðeins erlendis. „Mér finnst algjörlega óboðlegt og jafnvel frekar hrokafullt að hæstvirtur ráðherra okkar Íslendinga telji sig vita betur um hvers konar lög ætti að setja, um hvað fólk má og má ekki gera, heldur en allur heimurinn. Jafnvel hvert einasta Norðurland í okkar nágrenni, sem er löngu búið að leyfa þetta,“ sagði Emin í myndbandsfærslu á Instagram. Hvergi bannað nema í Íran, Norður-Kóreu og á Íslandi Ísland er eitt aðeins þriggja landa á heimsvísu sem ekki heimila atvinnuhnefaleika, þó áhugamannahnefaleikar séu hér leyfðir. Auk þess að vera bönnuð hér á landi er greinin ólögleg í Norður-Kóreu og Íran. Málið var til umræðu í hlaðvarpinu Besta sætið í gær þar sem Henry Birgir Gunnarsson tók undir gagnrýni Emins á fyrirhugað aðgerðaleysi ráðherra hvað hnefaleikana varðar. „Ég ætla bara að skamma óvinsælasta stjórnmálamann landsins, Ingu Sæland. Ég ætla bara vinsamlegast að biðja hana að setja sig í stand. Því árið er 2026 og atvinnuhnefaleikar eru hvergi bannaðir nema á Íslandi og í Norður-Kóreu [innsk. einnig bannað í Íran] og hún ætlar ekki að breyta því,“ segir Henry í þættinum. Aron Guðmundsson tók undir. „Þegar við erum með okkar fólk sem er að reyna að koma sér á framfæri. Allar þjóðir sem við berum okkur saman við, jafnan í öllum flokkum, eru með þetta leyfilegt en við ætlum einhvern veginn að hafa þetta bannað,“ segir Aron áður en Henry grípur orðið á ný. „Það er löngu búið að leyfa allt svona en við ætlum að halda áfram að stöðva þetta. Þetta er óþolandi hegðun. Og fyrir hvern er þetta? Hvað kemur henni við hvað annað fólk er að gera? Ef það vill boxa eða eitthvað annað. Stígðu út úr torfkofanum, kona,“ segir Henry Birgir. Hlusta má á þáttinn í spilaranum og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Box Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dómur í Maradona-málinu fellur í desember Heims- og Ólympíumeistari í maraþoni féll á lyfjaprófi Dagskráin: Lokaumferð Bestu með Doc Zone og Messan í einum pakka Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi „Þetta er bara ólýsanlegt” Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Nottingham Forest endaði taphrinuna FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Valsmenn með þriðja sigurinn í röð Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Mark dæmt af Ronaldo og mark tekið af honum líka Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Úrvalsdeildin í pílu hefst á morgun Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Sjá meira