Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 26. október 2026 18:13 Sævar Freyr Þráinsson er forstjóri Orkuveitunnar. Orkuveitan Hluthafafundur Ljósleiðarans ehf. samþykkti í dag að veita umboð til mögulegra breytinga á eignarhaldi á Ljósleiðaranum.
Samþykkt fundarins var með fyrirvara um staðfestingu eigenda Orkuveitunnar sem eru Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður og Borgarbyggð en Ljósleiðarinn er að öllu leyti í eigu Orkuveitunnar. Umboðið, hljóti það staðfestingu eigenda, verður í höndum forstjóra Orkuveitunnar sem fer með hlutafé Orkuveitunnar í Ljósleiðaranum. Samkvæmt tilkynningu frá Orkuveitunni gæti samþykktin leitt til þess að nýir fjárfestar eignist Ljósleiðarann að hluta eða í heild eða að félagið verði skráð á markað. Að því er fram kemur í tilkynningunni veittu eigendur Orkuveitunnar tímabundið umboð til aukningar hlutafjár og sölu nýrra hluta árið 2023. Það ferli leiddi ekki til samninga. Fram undan er eigendafundur Orkuveitunnar, skipaður fulltrúum sveitarfélaganna þriggja, sem þarf að staðfesta samþykktina. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hefur umsjón með ferlinu framundan, fáist til þess umboð frá eigendum Orkuveitunnar. Haft er eftir Sævari Frey Þráinssyni forstjóra Orkuveitunnar að markmiðið sé að efla Ljósleiðarann. „Það er hugsanlega enginn angi atvinnulífsins jafn kvikur og fjarskiptamarkaðurinn. Við sjáum það hér á landi og um allan heim. Markmiðið er að efla Ljósleiðarann til að standa vörð um verðmæti; verðmætin í sjálfu fyrirtækinu fyrir eigendur þess og verðmætin fyrir almenning í þeirri þjónustu sem það hefur verið í fararbroddi um að veita. Umboðið sem við erum að biðja um snýst um að fá fjölbreytt verkfæri til að sækja að þessum markmiðum með opnum huga án þess að niðurstaðan sé fyrirfram gefin,“ er haft eftir honum í tilkynningu. „Sala Ljósleiðarans var vissulega á verkefnalista nýs meirihluta í Reykjavík. Með samþykktinni er þess freistað að hámarka virði Ljósleiðarans fyrir eigendur og koma félaginu í verð. Ég hef verið þeirrar skoðunar að borgin eigi ekki að reka fyrirtæki í samkeppnisrekstri, og fylgist því spennt með framvindu málsins næstu mánuði," segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri.
Fjarskipti Reykjavík Borgarstjórn Rekstur hins opinbera Mest lesið Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Sjá meira