Lífið

Huggulegustu hommar landsins keyptu hönnunarperlu í 101

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Helgi og Pétur Björgvin festu kaup á sinni fyrstu eign saman.
Helgi og Pétur Björgvin festu kaup á sinni fyrstu eign saman. Helgi Ómars

Helgi Ómarsson, ljósmyndari og áhrifavaldur, og unnusti hans Pétur Björgvin Sveinsson markaðssérfræðingur festu kaup á glæsilegri íbúð við Sólvallagötu 74 í gamla vesturbænum í Reykjavík. 

HAF-studio hjónin, Karitas Sveinsdóttir og Hafsteinn Júlíusson, hönnuðu og gerðu íbúðina upp árið 2018 og er útkoman óaðfinnanleg.

Fasteignaljósmyndun

Um er að ræða 101 fermetra bjarta íbúð á annarri hæð í húsi sem var reist árið 1944. Skandinavískur stíll umlykur eignina á sjarmerandi máta þar sem rósettur í lofti, ljóst viðarparket og tvöföld frönsk vængjahurð með gleri er í aðalhlutverki.

Eldhús er stílhreint og bjart þar sem HAF Studio framhliðar prýða innréttinguna ásamt fallegum Carrara-marmara á borðum.

Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni og eitt baðherbergi. Gegnheilar og ljósar Terrazo-flísar prýða baðherbergið sem gefur rýminu karakter og klassa.

Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun

Sannkallaðir fagurkerar

Nýverið seldi parið stílhreina og fallega eign við Laugaveg 40 sem var til umfjöllunar á lífinu á Vísi. Pétur og Helgi eru sannkallaðir fagurkerar og innréttu þá íbúð á sjarmerandi máta þar sem fagurfræðin réð ríkjum. Það er því ekki við öðru að búast en að nýja íbúðin verði jafn glæsileg.


Tengdar fréttir

Keypti íbúðina af huggulegustu hommum landsins

Listakonan Rakel Tómasdóttir festi kaup á 55 fermetra íbúð á efstu hæð við Laugaveg 40 A. Rakel er mikil miðbæjarpía og gæti ekki hugsað sér að búa neinstaðar annars staðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.