Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Þetta er mjög óþægilegt“ Verðbólga er í hæstu hæðum og fólk er farið að finna fyrir því, eins og fjallað var um í Íslandi í dag. Rætt var við viðskiptavini matvöruverslunar í Reykjavík. Margir sögðu farir sínar hreinlega ekki sléttar af því að kaupa í matinn þessa dagana. 22.6.2022 21:10
Vill að þingið leggi eldsneytisskatt til hliðar Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fór fram á það í dag við Bandaríkjaþing, að það myndi samþykkja þriggja mánaða hlé á álagningu eldsneytisskatts. 22.6.2022 20:47
Heimili og fyrirtæki standi vel þrátt fyrir allt Forsætisráðherra segir aðgerðir stjórnvalda í kórónuveirufaraldrinum hafi styrkt heimilin og fyrirtækin landinu. Í þeirri óvissu sem nú ríkti í efnahagsmálum heimsins vegna innrásar Rússa í Úkraínu, stæðu heimilin og fyrirtækin í landinu þrátt fyrir allt vel. 22.6.2022 20:16
Metverðbólga og vextir á hraðri uppleið Verðbólga hefur ekki verið meiri í tólf ár og meginvextir Seðlabankans eru orðnir hærri en þeir voru áður en vaxtalækkunarferli bankans hófst fyrir þremur árum. Seðlabankastjóri og stjórnvöld leggja mikla áherslu á skynsama kjarasamninga í haust til að ná verðbólgunni niður. 22.6.2022 19:20
Beitti líklega riffli: „Guðs lifandi feginn að enginn hafi skaðast“ Sex ára barn var í bílnum sem skotið var á fyrir utan leikskóla í Hafnarfirði dag. Íbúi í húsi byssumannsins segist hafa verið skjálfandi hræddur en maðurinn notaði líklega riffil í árásinni. 22.6.2022 19:04
Hefur fulla trú á því að Efling sláist í hópinn Formaður Starfsgreinasambandsins (SGS) segir að komið gæti til átaka á vinnumarkaði í vetur, verði kröfum verkalýðshreyfingarinnar um krónutöluhækkanir og lækkun á greiðslubyrði ekki mætt. Efling er ekki aðili að kröfugerð sambandsins sem afhent var Samtökum atvinnulífsins í morgun en formaður SGS hefur fulla trú á því að félagið sláist í hópinn. 22.6.2022 19:01
Forn borg fannst í Írak vegna mikilla þurrka Forn borg í Írak hefur litið dagsins ljós vegna mikilla þurrka en borgin er sögð vera 3.400 ára gömul. Borgin er talin vera bronsaldarborgin Zakhiku, borgin fór á kaf eftir að stjórnvöld í Írak byggðu Mosul stífluna á níunda áratugi tuttugustu aldar og hefur varla sést síðan. 22.6.2022 18:34
Segir mikilvægt í huga albönsku konunnar að engin önnur lendi í því sama Albönsk kona sem vísað var úr landi á níunda mánuði meðgöngu er létt yfir því að hafa fengið viðurkenningu frá íslenska ríkinu að á réttindum hennar hafi verið brotið. 22.6.2022 18:16
Varað við hálku í nótt á hæstu fjallvegum Hætt er við að hálka muni myndast á hæstu fjallvegum norðan- og vestanlands í nótt. 22.6.2022 18:04
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Umsátursástand myndaðist í Hafnarfirði í dag eftir að skotið var með riffli á feðga í bíl fyrir utan leikskóla. Árásarmaðurinn, sem er íbúi í fjölbýlishúsi við leikskólann, gaf sig fram nokkrum klukkutímum síðar. 22.6.2022 18:00
Hvalbátarnir rákust saman þegar dráttarbátur reyndist of kraftlítill Neyðarleg uppákoma varð í Reykjavíkurhöfn í dag þegar hvalbátar Hvals hf. voru að leggja frá bryggju til hvalveiða. Dráttarbátur Faxaflóahafna réð ekki við það verkefni að draga fyrri hvalbátinn, Hval 9, frá hinum bátnum, Hval 8, og missti hann frá sér. Það varð til þess að Hvalur 9 rakst bæði utan í Hval 8 sem og skuttogarann Sigurborgu SH. 22.6.2022 17:56
Íslenskur fréttamaður á vegum Pútíns tók viðtal við meintan stríðsglæpamann Haukur Hauksson hefur ferðast á átakasvæði í Úkraínu í boði rússneskra stjórnvalda. Nýlega tók Haukur viðtal við Graham Phillips, annan sjálfstætt starfandi blaðamann, sem nú er sakaður um stríðsglæp. 22.6.2022 17:12
Rannsaka ásakanir um nauðganir á hendur frönskum ráðherra Saksóknari í París rannsakar nú ásakanir tveggja kvenna um að Chrysoula Zacharopoulou, þróunarmálaráðherra, hafi nauðgað þeim. Brotin eiga að hafa átt sér stað þegar Zacharopoulous starfaði sem kvensjúkdómalæknir. 22.6.2022 16:01
Markús hafi ekki verið vanhæfur í BK-málinu Hæstiréttur vísaði í dag frá máli Magnúsar Arnars Arngrímsssonar, sem kallað hefur verið BK-málið, en Endurupptökunefnd féllst á beiðni Magnúsar, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs Glitnis, um að tveggja ára fangelsisdómur sem hann hlaut í Hæstarétti árið 2015 yrði endurupptekinn. 22.6.2022 15:47
„Ég var mjög hrædd og óttaslegin“ Berglind Bjarney Ásgeirsdóttir, íbúi að Miðvangi 41 þar sem skotið var á tvo bíla í morgun, sagðist hafa orðið óörugg og óttasleginn vegna ástandsins sem skapaðist í morgun. Henni fannst skorta nægilega upplýsingagjöf frá lögreglunni en einu upplýsingarnar sem hún fékk um málið heyrði hún í útvarpinu. 22.6.2022 15:45
Ríkið greiðir óléttu konunni sem var vísað úr landi bætur Íslenska ríkið hefur viðurkennt bótaskyldu í máli albanskrar konu sem var vísað úr landi á níunda mánuði meðgöngu. Þetta staðfestir lögmaður konunnar í samtali við fréttastofu. 22.6.2022 15:39
Katrín segir engan tossalista hafa verið sendan til MDE Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir rétt hafa verið staðið að útnefningu dómaraefna til Mannréttindadómstóls Evrópu. Enginn tossalisti hafi verið sendur til dómstólsins. 22.6.2022 15:32
Var með barnið í bílnum þegar skotið var á hann Faðir og sex ára gamall sonur hans voru í öðrum bílanna sem skotið var á við Miðvang í Hafnarfirði í morgun. Lögreglan rannsakar skothríð sjötugs karlmanns á bílana sem tilraun til manndráps. 22.6.2022 15:25
Skattamáli vísað frá héraði að ósk ákæruvaldsins eftir ákúrur Mannréttindadómstólsins Máli Ragnars Þórissonar, stofnanda vogunarsjóðsins Boreas Capital, var vísað frá héraðsdómi að ósk ákæruvaldsins í dag með öðrum dómi Hæstaréttar í málinu. Ragnar hafði betur gegn íslenska ríkinu fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu vegna málsins. 22.6.2022 15:09
Maður í bílnum sem skotið var á Lögreglan er sögð rannsaka skotárás á tvo bíla við Miðvang í Hafnarfirði í morgun sem tilraun til manndráps. Eigandi annars bílsins var inni í honum þegar karlmaður á sjötugsaldri skaut á hann. 22.6.2022 14:53
Auglýst að nýju eftir íslenskum dómurum við MDE Forsætisráðuneytið hefur auglýst eftir nýjum aðilum sem tilnefndir verða af Íslands hálfu í stað þeirra tveggja sem drógu umsókn sína til baka. 22.6.2022 14:50
Samþykktu að svipta stóriðju fríum losunarheimildum fyrir 2032 Evrópuþingið samþykkti stórtækar breytingar á viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir í dag. Stóriðjufyrirtæki hætta að fá ókeypis losunarheimildir fyrir árið 2032 en í staðinn verður tekinn upp kolefnisskattur á innflutt stál, sement og fleiri vörur. 22.6.2022 14:46
„Það sér það hver maður að við landeigendur erum ekki að fara að greiða úr eigin vasa“ Samráðsfundur stjórnvalda með landeigendum í Reynisfjöru var haldinn í gærkvöldi. Einn landeigenda segir mjög gott hljóð vera í hópnum og fundinn hafa gengið vel. Strax á föstudag hefst formlegt samstarf um að efla öryggi ferðamanna í Reynisfjöru. 22.6.2022 14:35
Ætla að setja hámark á magn nikótíns í vindlingum Bandaríkjastjórn hyggst leggja til staðla um hámarksmagn nikótíns í vindlingum. Tillagan er liður í áætlun ríkisstjórnar Joes Biden forseta um að fækka dauðsföllum af völdum krabbameins um helming næsta aldarfjórðunginn. 22.6.2022 13:48
Öryggismál ekki í lagi þegar ferðamaður lést Öryggismál í Gleðivík á Djúpavogi eru til skoðunar eftir að erlendur ferðamaður varð fyrir lyftara og lést í gær. Samkvæmt heimamönnum hafði kaðall sem átti að aðskilja gangandi og akandi umferð meðfram ströndinni verið tekinn niður vegna framkvæmda og var því ekki til staðar þegar banaslysið átti sér stað í gær. 22.6.2022 13:41
Ríkissaksóknari áfrýjar dómi Brynjars Creed Ríkissaksóknari mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli Brynjars Creed til Landsréttar. Að sögn Kolbrúnar Benediktsdóttur, varahéraðssaksóknara sem rak málið fyrir héraðsdómi, snýr áfrýjunin að því að Brynjar verði jafnframt sakfelldur fyrir nauðgun, með því að hafa fengið stúlkur undir lögaldri til þess að framkvæma ýmsar kynferðislegar athafnir í gegnum netið. 22.6.2022 13:34
Gæti stefnt í átök á vinnumarkaði Starfsgreinasamband Íslands afhenti fulltrúum Samtaka atvinnulífsins kröfugerð vegna komandi kjarasamninga í morgun. Formaður sambandsins segir eitt stærsta baráttumálið að létta á greiðslubyrði launafólks. Náist það ekki stefni í óefni á íslenskum vinnumarkaði. 22.6.2022 13:07
Strzelanina w Hafnarfjörður. Policja negocjowała z uzbrojonym mężczyzną Policja oraz oddział specjalny zostały wezwane do północnej dzielnicy Hafnarfjörður, po tym jak otrzymano informacje o uzbrojonym mężczyźnie, który strzelał do samochodu znajdującego się przy ulicy Miðvang 41, koło przedszkola Víðivalla. 22.6.2022 12:50
Umsátrinu í Hafnarfirði lauk þegar maðurinn gaf sig fram Karlmaður á sjötugsaldri sem grunaður er um að hafa skotið á tvo bíla við Miðvang í Hafnarfirði kom út úr íbúð sinni sjálfviljugur skömmu eftir hádegi og er nú í haldi lögreglu. Þar með lauk tæplega fjögurra klukkustunda löngu umsátursástandi. 22.6.2022 12:36
Markmiðið að ná manninum út heilum á húfi Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að lögregla sé tilbúin að vera eins lengi og þarf við blokk við Miðvang í Hafnarfirði þar sem grunaður byssumaður er lokaður inni í íbúð. Markmiðið sé að ná manninum heilum á húfi út. 22.6.2022 12:25
„Hægt að treysta því að verðbólga verður ekki viðvarandi hér“ Skörp vaxtahækkun var nauðsynleg til að ná tökum á verðbólgunni að sögn seðlabankastjóra en stýrvextir voru í dag hækkaðir um eitt prósentustig. Með þessu séu einnig send skýr skilaboð inn í komandi kjaraviðræður um að verðbólga verði ekki viðvarandi hér á landi. 22.6.2022 11:45
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um ástandið sem verið hefur í norðurbæ Hafnarfjarðar síðan í morgun. 22.6.2022 11:36
Töskurnar fóru með út en komust ekki í hendur farþega Allur farangur sem farþegar tóku með sér í flug Icelandair til Amsterdam á mánudag fylgdi þeim út. Vegna manneklu á Schipol-flugvelli komst farangurinn hins vegar ekki til farþega að flugi loknu. 22.6.2022 11:32
Zmiany w prawie małżeńskim Parlament zatwierdził niedawno projekt Ministerstwa Sprawiedliwości, o zmianie ustawy o małżeństwie. W projekcie znalazł się punkt, który znosi uprawnienie Ministerstwa Sprawiedliwości do wydawania zezwoleń na zawarcie małżeństwa osobom poniżej osiemnastego roku życia. 22.6.2022 11:21
Ingó áfrýjar til Landsréttar Ingólfur Þórarinsson mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll 30. maí síðastliðinn. Héraðsdómur sýknaði Sindra Þór Sigríðarson Hilmarsson af stefnu Ingólfs um meiðyrði. 22.6.2022 11:20
Tala látinna í Afganistan komin í 950 og talin líkleg til að hækka Öflugur jarðskjálfti reið yfir í Afganistan í morgun með þeim afleiðingum að minnst 950 eru látin og minnst 600 slösuð. 22.6.2022 10:07
Umsátursástand eftir skotárás í Hafnarfirði Lögreglumenn reyna nú að ræða við karlmann á sjötugsaldri sem er grunaður um að skjóta á kyrrstæðan bíl fyrir utan fjölbýlishús við Miðvang í Hafnarfirði í morgun. Vopnaðir sérsveitarmenn eru á vettvangi og mikil viðbúnaður en grunaði byssumaðurinn er í íbúð í blokkinni. 22.6.2022 09:29
Cosby fundinn sekur um að misnota táningsstúlku Kviðdómur í Kaliforníu fann Bill Cosby sekan um að hafa misnotað sextán ára gamla stúlku kynferðislega á Playboy-setrinu árið 1975 í gær. Málið var eitt af þeim síðustu gegn Cosby en fjöldi kvenna hefur sakað hann um misnotkun í gegnum tíðina. 22.6.2022 08:39
Vaktin: Ráðast að öryggisstofnunum í Lysychansk Finnar eru reiðubúnir ef Rússar ráðast gegn þeim og munu verjast ötullega, segir Timo Kivinen, yfirmaður finnska heraflans. 22.6.2022 08:17
Skólabyggingin í Uvalde verður rifin Bæjarstjórinn í Uvalde, bænum þar sem byssumaður myrti nítján börn og tvo kennara á dögunum, segir að skólinn þar sem ódæðið var framið verði rifinn. 22.6.2022 07:45
Stjórnvöld hyggjast flokka öll gögn í öryggisflokka Í samráðsgátt stjórnvalda liggur nú skjal þar sem lögð eru drög að flokkkun gagna ríkisaðila í öryggisflokka. Flokkarnir segja til um hvers konar varnir og ráðstafanir þarf að viðhafa fyrir gögn í umræddum flokki en engin samræmd öryggisflokkun hefur verið viðhöfð þar til nú. 22.6.2022 07:44
Fimm ára drengur lést af völdum voðaskots á Grænlandi Fimm ára drengur lést af völdum voðaskots í Paamiut á suðvesturströnd Grænlands síðdegis á mánudaginn. Lögregla segir að um hörmulegt slys hafi verið að ræða. 22.6.2022 07:31
Hiti að fimmtán stigum og hlýjast suðaustantil Veðurstofan spáir vestan átta til fimmtán metrum á sekúndu í dag, skúrum á sunnanverðu landinu. Það snýst svo í norðlæga átt norðantil með rigningu. 22.6.2022 07:13
Hundruð þúsunda Kínverja flýja heimili sín vegna flóða Hundruð þúsunda hafa flúið heimili sín í nokkrum héruðum í Kína, í suður- og austurhluta landsins. Gríðarlegar rigningar hafa verið á svæðinu sem hafa orsakað flóð og aurskriður. 22.6.2022 07:05
„Hvað á að gera þegar þessir menn fara á eftirlaun?“ Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, segir þungt hljóð í heilbrigðisstarfsmönnum víða á landinu. Ástandið sé ekki síður erfitt þar heldur en á Landspítalanum. 22.6.2022 06:57
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent