Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nöfn þeirra fimm sem Ingó krefur um bætur Ingólfur Þórarinsson, Ingó Veðurguð, hefur fengið Vilhjálm H. Vilhjálmsson lögmann sinn til þess að senda fimm einstaklingum kröfubréf, þar sem þess er farið á leit að þeir biðji hann afsökunar á ærumeiðandi ummælum í hans garð, dragi þau til baka og greiði honum miskabætur og lögfræðikostnað. 13.7.2021 23:43
Guðni kvaddi Ólympíufarana Forsetinn kvaddi í dag íslensku Ólympíufarana á Bessastöðum, áður en þeir héldu af stað til Tókýó í Japan, þar sem leikar hefjast eftir tíu daga. 13.7.2021 22:51
Borgar allan lögfræðikostnað fyrir þá sem Ingó lögsækir Haraldur Þorleifsson, frumkvöðull sem hagnaðist verulega á sölu fyrirtækis síns til Twitter, hefur boðist til þess að greiða allan lögfræðikostnað þeirra sem Ingólfur Þórarinsson Veðurguð kann að lögsækja vegna ummæla á netinu um framkomu hans við konur. 13.7.2021 22:01
Mikið tekjutap að missa aðganginn Áhrifavaldur sem varð fyrir barðinu á erlendum tölvuþrjóti segir árásina gríðarlegt áfall. Netöryggissérfræðingur segir málið afar sérstakt og telur mögulegt að einhver hér á landi hafi greitt þrjótinum fyrir árásina. 13.7.2021 20:38
Biðla til fólks að fara varlega á stórum mannamótum fram undan Búist er við mikilli mannmergð á Austurlandi næstu tvær vikur enda fara þar fram þrjár stórar bæjarhátíðir. Aðgerðastjórn vegna Covid-19 á Austurlandi hefur því biðlað til fólks að fara varlega og huga að persónubundnum smitvörnum. 13.7.2021 20:02
Meðferðarkjarninn á stærð við tvo knattspyrnuvelli Heildarkostnaður við byggingu nýs Landspítala við Hringbraut hefur aukist um ríflega sextán milljarða króna. Húsnæðið verður eitt það stærsta sem byggt hefur verið hér á landi og mun kosta hartnær áttatíu milljarða króna. 13.7.2021 20:01
Hrottalegar netofsóknir gegn ungri konu: Auglýst og sögð vilja láta nauðga sér Ung kona segist hafa ítrekað lent í netofsóknum á síðustu árum. Meðal annars hefur auglýsing verið sett fram í hennar nafni þar sem kemur fram að hún bjóði uppá kynlífsþjónustu og er svo sögð vilja láta nauðga sér. Engin lög eru til um auðkennisþjófnað hér á landi. 13.7.2021 19:01
Setti upp myndavél í sameign vegna úrgangs nágrannahundsins Íslendingi, sem hefur um nokkra hríð haft eftirlitsmyndavél í sameign fjöleignarhúss síns, hefur verið gert að taka hana niður. Að hundur nágrannans geri þarfir sínar á sameiginlegri lóð þeirra er að mati Persónuverndar ekki fullnægjandi ástæða fyrir þörf á öryggismyndavél. 13.7.2021 18:26
Ingó Veðurguð fer í hart með hjálp Villa Vill Vilhjálmur H. Vilhjálmsson ætlar fyrir hönd Ingólfs Þórarinssonar Veðurguðs að kæra nafnlausar sögur sem birtar hafa verið um söngvarann á netinu. Kröfubréf verða send vegna ummæla sem fallið hafa á netinu undanfarnar vikur. 13.7.2021 18:23
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ung kona sem hefur síðustu þrjú ár verið ofsótt á netinu með skaðlegum lygum um hana og fölsuðum auglýsingum, þar sem hún er sögð veita gróft kynlíf, segist upplifa sig algjörlega varnarlausa. Berghildur Erla ræðir við konuna í kvöldfréttum Stöðvar 2 og einnig deildarstjóra kynferðisbrotadeildar sem segir afar erfitt að hafa upp á gerendum í svona málum. 13.7.2021 18:21
Hafna því að standa sig ekki í að finna fötluðu fólki heimili Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hafnar því að borgin standi sig ekki nægilega vel í uppbyggingu húsnæðis fyrir fatlað fólk. Margir þeirra geðfötluðu einstaklinga sem borgin sinni hafi haft lögheimili í öðrum sveitarfélögum við komuna á geðdeild en breyti um lögheimili til að auka líkur á að fá viðeigandi húsnæði eða þjónustu sem fyrst. 13.7.2021 15:52
Fjöldi útlendinga hefur tafið bólusetningar í dag Ljúka átti bólusetningardeginum í dag klukkan tvö en aðsókn hefur verið nokkuð meiri en heilsugæslan gerði ráð fyrir að sögn Ragnheiðar Óskar Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjá heilsugæslunni. 13.7.2021 14:42
Færir sig frá New York til Ottawa Hlynur Guðjónsson, aðalræðismaður og viðskiptafulltrúi á Aðalræðisskrifstofu Íslands í New York í Bandaríkjunum, verður næsti sendiherra Íslands í Kanada, með aðsetur í Ottawa, höfuðborg Kanada. 13.7.2021 14:05
Tekinn með 27 kíló af grasi og 53 lítra af gambra Karlmaður nokkur hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Maðurinn var tekinn með mikið magn maríjúana, kannabisstangla, plöntur og tæpt kíló af amfetamíni. Þá bruggaði maðurinn sömuleiðis gambra. 13.7.2021 13:45
Óvægin umræða á samfélagsmiðlum þáttur í andlegri vanlíðan dýralækna Andleg vanlíðan og streita er algeng meðal dýralækna hér á landi og segjast 75% þeirra finna fyrir andlegum eða líkamlegum einkennum vegna mikils álags. Þetta er niðurstaða könnunar sem Dýralæknafélag Íslands lét gera á líðan dýralækna í starfi. 13.7.2021 13:42
Fjórir laumufarþegar fluttir í sóttvarnahús Fjórir laumufarþegar voru um borð í skipi sem kom til hafnar í Straumsvík þann 8. júlí síðastliðinn. Mennirnir dvelja nú í sóttvarnarhúsi en talið er að þeir hafi komið um borð í skipið í Senegal um mánaðamótin maí/júní. 13.7.2021 13:03
Áhyggjur af ferðalögum Íslendinga þar sem faraldurinn er í uppsveiflu Sóttvarnalæknir hefur áhyggjur af auknum ferðalögum Íslendinga til útlanda, einkum Spánar þar sem kórónuveirufaraldurinn hefur verið í miklum vexti. Hann hvetur Íslendinga erlendis til að fara varlega. Tveir greindust með veiruna innanlands í gær. 13.7.2021 12:47
Ástandsskoðun fasteigna ekki síður hagsmunir seljenda en kaupenda Formaður Matsmannafélags Íslands segir félagið hafa barist fyrir að ástandsskýrslur gerðar af fagfólki fylgi söluyfirlitum allra íbúðarfasteigna. Slíkt sé til hagsbóta fyrir alla. Þingsályktunartillaga þess efnis var lögð í fimmta sinn fyrir Alþingi í vor og ráðherra falið að undirbúa lagagfrumvarp. 13.7.2021 12:01
Smit rakið til Bankastræti Club Annað tveggja Covid-smita sem greindust utan sóttkvíar í gær er rekið til skemmtanalífsins, meðal annars til skemmtistaðarins Bankastræti Club. 13.7.2021 11:50
Ætla að blanda bóluefni eins og enginn sé morgundagurinn Um sjö þúsund skammtar af bóluefni Pfizer verða gefnir í endurbólusetningu, þar sem fólk fær seinni skammt af bóluefninu, í Laugardalshöll í dag. Þá er opið fyrir aðra í fyrri bólusetningu, og birgðastaðan góð þannig að auðvelt ætti að vera að anna eftirspurn. 13.7.2021 11:42
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við sóttvarnalækni sem hefur áhyggjur af auknum ferðalögum Íslendinga til útlanda, einkum Spánar þar sem kórónuveirufaraldurinn hefur verið í miklum vexti. 13.7.2021 11:31
Tveir bólusettir greindust utan sóttkvíar Tveir greindust með kórónuveiruna utan sóttkvíar hér á landi í gær. Báðir voru bólusettir. 13.7.2021 11:12
Könnuðu virknina í gígnum með hjálp Landhelgisgæslunnar og dróna Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands birti í gær drónamyndband sem tekið var á gosstöðvunum í Geldingadölum á laugardag. 13.7.2021 08:37
Ferðamenn fylgist með veðurspá næstu daga Suðlægar og suðvestlægar áttir munu ráða ríkjum hér á landi, og valda vætu á sunnan- og vestanverðu landinu í dag. Áfram má gera ráð fyrir ágætisveðri á Norður- og Austurlandi, þar sem verður úrkomulítið og talsvert sólskin með tilheyrandi hlýindum. 13.7.2021 06:37
Meirihluti vill nýju stjórnarskrána Rúmlega helmingur þjóðarinnar vill að breytingar verði gerðar á stjórnarskrá lýðveldisins í samræmi við tillögur stjórnlagaráðs frá 2011, ef marka má nýjan þjóðarpúls Gallup. Iðulega er vísað til þessara tillagna sem nýju stjórnarskrárinnar. 12.7.2021 23:36
Þetta er núna vinsælasti útsýnisstaðurinn á gosið Drónamyndir sem náðust af gosstöðvunum á Fagradalsfjalli um helgina sýna að hraunelfa flæddi úr eldgígnum um göng og þaðan í átt til Meradala. Slæmt skyggni hefur í dag byrgt sýn að eldgosinu en óróamælar sýna að það hefur haldið fullum dampi. 12.7.2021 22:56
Lítil vaxtahækkun getur létt pyngjuna um nokkur þúsund Fleiri sækja um að festa vexti íbúðalána eftir stýrivaxtahækkun Seðlabankankans í maí. Deildarstjóri greiningar hjá Íslandsbanka segir að það sé eðlilegt þegar fólk hafi væntingar um frekari vaxtahækkanir. 12.7.2021 21:00
Íslendingar flykkjast til hárauðs Spánar Tvöfalt fleiri greindust með kórónuveiruna á Spáni í síðustu viku en vikuna á undan - og smitum fer fjölgandi. Hertar aðgerðir á ferðamannastöðum virðast þó ekki hafa áhrif á útþrá Íslendinga, sem flykkjast til Spánar. 12.7.2021 20:31
Sautján eru í farsóttarhúsi: „Aðsóknin er aðeins að glæðast með kvöldinu“ Sautján ferðamenn eru í einangrun í farsóttarhúsinu á Rauðarárárstíg en tveir hafa bæst í hópinn í dag. 12.7.2021 20:20
Samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn gæti skýrt andstöðuna Þingflokksformaður Vinstri grænna segir lítinn stuðning meðal kjósenda Vinstri grænna við áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf ekki koma sér á óvart. Samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn, sem sé á hinum enda pólitíska rófsins, geti skýrt andstöðuna. 12.7.2021 19:35
Dæmi um að fólk sé svipt ökuréttindum vegna notkunar ADHD lyfja Dæmi eru um að einstaklingar, sem nota lyf við ADHD, hafi verið ranglega sakaðir um fíkniefnamisnotkun og sviptir ökuréttindum. Formaður ADHD samtakanna segir fordóma ríkjandi í samfélaginu og kallar eftir fræðslu. 12.7.2021 19:29
Gallamálum snarfjölgar: Glænýtt hús með ónýtt þak og skólplagnir Ráðast þarf í tugmilljóna króna viðgerðir á nýju fjölbýlishúsi vegna galla í hönnun og byggingu. Mannvirkjahönnuður segir slík mál of algeng. Gallamálum hafi fjölgað gríðarlega undanfarið því fólk setji ekki fyrirvara um ástandsskoðun fasteignar fyrir kaup. Þá taki seljendur síður slíkum tilboðum. 12.7.2021 19:00
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ráðast þarf í tugmilljóna króna viðgerðir á nýju fjölbýlishúsi vegna galla í hönnun og byggingu. Mannvirkjahönnuður segir gallamálum hafi fjölgað gríðarlega undanfarið því fólk setji ekki fyrirvara um ástandsskoðun fasteignar fyrir kaup. Þá taki seljendur síður slíkum tilboðum. 12.7.2021 18:17
Lögreglan mátti ekki vísa georgískum tannlækni úr landi Kærunefnd útlendingamála hefur fellt ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um að vísa georgískum ferðamanni úr landi úr gildi. 12.7.2021 18:14
„Þetta hefði getað farið mjög illa“ Mikið lán var að vanur björgunarsveitarmaður var staddur í anddyri sundlaugarinnar á Flúðum síðdegis í gær, þegar piltur á grunnskólaaldri festist í kafi undir stiga sundlaugarinnar og missti að lokum meðvitund. 12.7.2021 17:37
Heilsugæslustöðvum sem bjóða upp á PCR-próf fækkar Frá og með næstkomandi föstudegi, 16. júlí, verða svokölluð PCR-próf hvergi í boði nema í Reykjavík, Akureyri og Keflavík. Flestir sem ætla til útlanda þurfa að hafa farið í slíkt próf, til að sýna fram á að þeir séu ekki smitaðir af Covid-19, áður en haldið er til útlanda. 12.7.2021 15:41
Barn missti meðvitund í sundlauginni á Flúðum Barn var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík í gær eftir að hafa fest sig í stiga í sundlauginni á Flúðum og misst meðvitund. 12.7.2021 14:36
Rafmagnslaust í miðborginni og íbúar beðnir um að aftengja sjónvörp Rafmagnslaust er í miðbæ Reykjavíkur vegna háspennubilunar. Gert er ráð fyrir að rafmagn verði aftur komið á allt svæðið um klukkan 14:30. 12.7.2021 14:19
Kótelettugestur í öndunarstopp í fangaklefa á Selfossi Lögreglan á Suðurlandi telur að lögregluþjónar og hjúkrunarfræðingur hafi bjargað lífi karlmanns sem handtekinn var á Selfossi um helgina fyrir óspektir. Greint er frá þessu í tilkynningu frá lögreglu. 12.7.2021 13:57
Afbókaður víðast hvar og tekjutapið er verulegt Búið er að afbóka Ingólf Þórarinsson, eða Ingó veðurguð, af fjölda gigga síðan hópurinn Öfgar birti yfir tuttugu nafnlausar sögur kvenna sem lýsa kynferðislegu ofbeldi af hálfu Ingós. Einnig er búið að aflýsa þriðju seríu þáttanna Í kvöld er gigg. Ingó segist hafa orðið fyrir miklu tekjutapi síðustu vikurnar. 12.7.2021 13:38
Týndi tíu vikna gömlum hvolpi á djamminu Lýst var eftir tíu vikna gamla hvolpinum Karítas um helgina. Í ljós kom að eigandinn hafði tekið hvolpinn með sér á djammið á föstudagskvöld og óttast var að eigandinn hefði gert honum mein. Eftir langa leitarhelgi er hvolpurinn kominn í öruggar hendur þökk sé Hundasveitinni svokölluðu. 12.7.2021 13:21
Uppfæra covid.is nú aðeins einu sinni í viku Covid.is, upplýsingasíða Landlæknisembættisins og Almannavarna um framgang kórónuveirufaraldursins hér á landi, verður héðan í frá aðeins uppfærð á fimmtudögum. 12.7.2021 11:43
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um fyrirkomulag bólusetninga í vikunni en á morgun og á miðvikudag verða síðustu bólusetningarnar í Laugardalshöll áður en sumarfrí gengur í garð. 12.7.2021 11:35
Uppnám í Áslandinu undir miðnætti þegar maður sást með skammbyssu Lögreglu barst í gærkvöldi tilkynning um mann sem sagður var fara um hverfið vopnaður á vespu, eða litlu vélhjóli. Hún brást skjótt við og mætti sérsveitin til leiks og lokaði hverfinu. 12.7.2021 11:28
Draumurinn um að ganga meðfram sjávarsíðunni rættist „Ég finn það í dag að ég lít ekkert á það sem sjálfsagðan hlut að vera á lífi og vera frjáls. Bara svona pínulitlir hlutir eins og að fara í vinnuna og elda mat – ég finn fyrir þakklæti, að ég fái að upplifa þetta allt saman,“ segir Karen Lind Ólafsdóttir. 12.7.2021 10:44