Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Virknin 70% en skammtastærðinni mögulega breytt Bóluefni AstraZeneca og vísindamanna við Oxford-háskóla hefur 70% virkni ef horft er til heildarniðurstaða prófana. Virknin reyndist 90% hjá litlum hluta þátttakenda sem fékk óvart ranga skammtastærð en hjá meirihlutanum reyndist virknin 62%. 8.12.2020 16:59
Fjarskiptabúnaði stolið úr rússneskri „dómsdagsvél“ Þjófum tókst að brjótast inn í herflugvél á flugvelli í Rostov-héraði í Rússlandi fyrir helgi, sem er ef til vill ekki í frásögur færandi nema um var að ræða eina af fjórum „dómsdagsvélum“ rússneska hersins. 8.12.2020 16:11
Segja Tarrant hafa misheppnast ætlunarverk sitt með árásinni í Christchurch Þrátt fyrir að nefnd sem rannsakað hefur hina mannskæðu hryðjuverkaárás í Christchurch í Nýja-Sjálandi, hafi fundið galla á reglugerðum og áherslu, komst nefndin að þeirri niðurstöðu að hið opinbera hefði ekki getað komið í veg fyrir árásina ef þessir gallar og önnur mistök hefðu ekki verið til staðar. 8.12.2020 15:31
Pfizer-bóluefnið virðist veita góða vörn eftir fyrsta skammt Fyrstu athuganir Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna á virkni bóluefnis Pfizer benda til þess að það veiti góða vörn gegn kórónuveirunni á innan við tíu dögum frá fyrsta skammti. 8.12.2020 14:07
Ætla að skjóta stærðarinnar geimskipi í tólf kílómetra hæð og lenda því aftur Starfsmenn SpaceX stefna að því að taka stórt skref í dag með því að skjóta nýrri frumgerð af geimskipinu Starship í um tólf kílómetra hæð og lenda því aftur. Til stendur að skjóta geimskipinu á loft frá Texas, þar sem Starship hefur verið til þróunar. 8.12.2020 12:57
Biður grænlensku börnin afsökunar Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur beðið 22 Grænlendinga, sem voru sem börn teknir af fjölskyldum sínum og fluttir nauðugir til Danmerkur árið 1951, opinberlega afsökunar. 8.12.2020 12:36
Dularfull veikindi á Indlandi ekki útskýrð enn Rúmlega 500 hafa nú verið lagðir inn á sjúkrahús vegna dularfullra veikinda í Andhra Pradesh á Indlandi. Minnst einn hefur dáið en á fjögur hundruð hafa verið útskrifaðir af sjúkrahúsi. 8.12.2020 10:58
Fjörutíu ár liðin frá andláti Johns Lennon Fjörutíu ár eru í dag liðin frá því John Lennon var myrtur fyrir utan heimili sitt í New York í Bandaríkjunum. Hann hefur því verið látinn jafn lengi og hann lifði en hann varð fertugur hinn 9. október 1980. 8.12.2020 10:33
Opinber hæð Everest hækkar um nærri metra Kínversk og nepölsk yfirvöld hafa náð samkomulagi um opinbera hæð Everest, hæsta fjalls í heimi. Opinber hæð fjallsins er nú 8.848,86 metrar. 8.12.2020 09:17
Fyrsti maðurinn til að rjúfa hljóðmúrinn fallinn frá Bandaríski flugmaðurinn Chuck Yeager, sem var fyrsti maðurinn til að rjúfa hljóðmúrinn, er látinn 97 ára að aldri. Eiginkona Yeager, Victoria Yeager, greindi frá andlátinu á Twitter. 8.12.2020 08:27
Níræð kona í Coventry sú fyrsta sem er bólusett gegn Covid-19 Hin níræða Margaret Keenan varð í dag fyrsta manneskjan til þess að vera bólusett gegn Covid-19 í skipulagðri bólusetningu fyrir almenning. 8.12.2020 08:20
Vill Austin sem varnarmálaráðherra Joe Biden hefur valið herforingjann fyrrverandi, Lloyd Austin, til að gegna embætti varnarmálaráðherra í ríkisstjórn sinni. Frá þessu greina bandarískir fjölmiðlar þó að hvorki Biden né Austin hafi enn staðfest fréttirnar. 8.12.2020 08:11
Mæla ekki með landamæraskimun þar sem veiran er útbreidd Sóttvarnastofnun Evrópu mælir gegn því að ráðamenn í Evrópu beiti sóttkví og skimun á landamærum fyrir flugfarþega í löndum þar sem kórónuveiran er útbreidd og í núverandi faraldsfræðilegu ástandi. 8.12.2020 07:44
Bretar hefja bólusetningu gegn Covid-19 Bretar hefjast handa við það í dag, fyrstir þjóða, að bólusetja þjóðina gegn kórónuveiru. Um sjötíu spítalar í landinu eru nú í startholunum. 8.12.2020 06:36
Flýgur til Brussel eftir að 90 mínútna símtal skilaði engu Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands mun fljúga til Brussel í vikunni til fundar við Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, í von um að viðskiptasamningar náist. Johnson og von der Leyen ræddu saman í 90 mínútur í síma í kvöld en án árangurs. 7.12.2020 23:16
Kristján Danaprins smitaður af veirunni Kristján Danaprins greindist með kórónuveiruna í dag, að því er fram kemur í tilkynningu frá dönsku konungsfjölskyldunni. 7.12.2020 19:08
Segir Fakhrizadeh hafa verið skotinn af gervigreind með fjarstýrðri vélbyssu Ráðamenn í Íran segja að kjarnorkuvísindamaðurinn Mohsen Fakhrizadeh hafi verið skotinn til bana með fjarstýrði vélbyssu. Fjölmiðill í Íran hefur eftir herforingjanum Ali Fadavi að vélbyssunni hafi verið stýrt með gerivgreind. 7.12.2020 15:26
Drykkjafyrirtækin mestu plastsóðarnir en einnota plastbréf stærsta vandamálið Fyrirtækin Coca-Cola, PepsiCo og Nestlé hafa verið útnefnd verstu plastsóðar heims þriðja árið í röð og sökuð um að hafa gert lítið til að bæta ráð sitt. 7.12.2020 14:58
Jafnaðarmenn stærstir en áframhaldandi stjórn Orban líklegust Jafnaðarmannaflokkurinn, sem hefur verið í stjórnarandstöðu, fékk flest atkvæði í rúmensku þingkosningunum sem fram fóru um helgina. 7.12.2020 14:15
Bretar mæla gegn bólusetningu ef þungun er fyrirhuguð innan þriggja mánaða Engar rannsóknaniðurstöður liggja fyrir um öryggi bóluefna gegn Covid-19 hjá þunguðum konum og því hafa bresk heilbrigðisyfirvöld ákveðið að bólusetja ekki þann hóp. 7.12.2020 13:25
Trump-liðar reyna að troða sem flestum málum í gegn fyrir embættistöku Bidens Ráðgjafar Donald Trumps, forseta, og starfsmenn Hvíta hússins segja hann virðast þungan á brún og að hann hafi engan áhuga á vinnunni. Það er þrátt fyrir að faraldur nýju kórónuveirunnar hafi náð nýjum hæðum í Bandaríkjunum. 7.12.2020 12:56
Ákærður fyrir morð á finnskri ferju fyrir 33 árum Lögregla í Finnlandi hefur ákært danskan karlmann vegna morðs sem framið var um borð í ferjunni Viking Sally árið 1987. 7.12.2020 10:51
Minnst 300 lagðir inn vegna dularfullra veikinda á Indlandi Minnst einn hefur dáið og minnst 300 hafa verið lagðir inn á sjúkrahús vegna dularfullra veikinda sem herja á íbúa borgarinnar Eluru, í Andhra Pradesh á Indlandi. Einkenni þeirra sem hafa veikst eru margvísleg og hafa þar verið nefnd meðvitundarleysi, slög og ógleði. 7.12.2020 10:42
Veitingastaðir og barir loki og elstu grunnskólabörnin send heim Danska ríkisstjórnin kynnir hertar takmarkanir sem ætlað er að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar á fréttamannafundi klukkan 11 að íslenskum tíma. Heimildir danskra fjölmiðla herma að aðgerðirnar snúist meðal annars um að senda öll grunnskólabörn í 5. bekk og á eldri stigum. Þá verði öllum veitingastöðum, börum, kvikmyndahúsum og leikhúsum gert að loka. 7.12.2020 09:11
Barr ekki lengur í náðinni og sagður íhuga að hætta William Barr, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, íhugar að hætta sem ráðherra, áður en kjörtímabild Donald Trumps, forseta, rennur út í næsta mánuði. Trump brást mjög reiður við þegar Barr sagði nýverið í viðtali að starfsmenn ráðuneytisins hefðu ekki fundið neinar sannanir fyrir þeim umfangsmiklu kosningasvikum sem forsetinn segir að hafa kostað sig sigur í kosningunum í síðasta mánuði. 7.12.2020 09:00
Ná loks saman um opinbera hæð Everest Stjórnvöld í Kína og Nepal hafa lengi verið ósammála um hæð Everest-fjalls, hæsta fjalls heims, sem er að finna á landamærum ríkjanna. Samkomulag hefur hins vegar nú náðst milli ríkjanna um opinbera hæð fjallsins. 7.12.2020 08:22
Segja Maduro hafa unnið þingmeirihluta í umdeildum kosningum Kjörstjórn í Venesúela segir að frambjóðendur sem styðja Nicolás Maduro, forseta, hafi fengið 67,6% atkvæða í þingkosningum sem voru haldnar í gær. Stærsta kosningabandalag stjórnarandstöðuflokkanna tók ekki þátt í kosningunum þar sem það taldi brögð í tafli. 7.12.2020 08:18
Biden sagður ætla að tilnefna Becerra sem heilbrigðisráðherra Joe Biden, verðandi Bandaríkjaforseti, hyggst tilnefna Xavier Becerra, dómsmálaráðherra Kaliforníu, til að gegna embætti heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn sinni. 7.12.2020 07:42
Giuliani lagður inn á sjúkrahús Rudy Giuliani, lögfræðingur Donalds Trump forseta og fyrrverandi borgarstjóri New York hefur verið lagður inn á sjúkrahús en hann greindist með Covid-19 um helgina. 7.12.2020 06:56
Mette boðar lokanir í Danmörku í jólalegu ávarpi Ríkisstjórn Danmerkur hefur boðað til blaðamannafundar í fyrramálið þar sem tilkynna á nýjar aðgerðir í stórum hluta landsins til að stöðva útbreiðslu kórónuveirunnar. Þetta kom fram í ávarpi Mette Frederiksen forsætisráðherra sem hún birti á Facebook í kvöld. 6.12.2020 21:14
Trump segir Rudy Giuliani kominn með Covid-19 Rudy Giuliani, persónulegur lögmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta og fyrrverandi borgarstjóri New York, hefur greinst með Covid-19. Frá þessu greinir Trump á Twitter. 6.12.2020 20:48
Verður áfall fyrir ESB gangi Bretland úr sambandinu án samnings Það verður áfall fyrir Evrópusambandið gangi Bretland úr sambandinu án samnings. Þetta segir sagnfræðingur sem telur líklegt að samningar náist. 6.12.2020 18:57
Sneri aftur til jarðar með 4,6 milljarða ára gömul sýni Allt bendir til þess að hylki sem sneri aftur til jarðar með sýni úr smástirninu Ryugu í gær sé í fullkomnu lagi. 6.12.2020 14:47
Örbylgjur orsaka veikindin Dularfullur sjúkdómur sem plagað hefur sendiráðsstarfsmenn Bandaríkjanna á Kúbu er að öllum líkindum orsakaður af örbylgjum sem beint var að sendiráðinu. 6.12.2020 09:56
Sagður hafa beðið ríkisstjóra Georgíu um aðstoð við að snúa úrslitunum sér í vil Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, hafi hringt í ríkisstjóra Georgíu-ríkis, og þrýst á hann um að gera það sem hann gæti til þess að snúa niðurstöðum forsetakosningannna í ríkinu Trump í vil. 6.12.2020 08:15
27 af 249 þingmönnum Repúblikana viðurkenna sigur Bidens Aðeins 27 þingmenn Repúblikana viðurkenna sigur Joes Biden í forsetakosningunum í Bandaríkjunni mánuði eftir sigur hans. Biden fékk sjö milljónum fleiri atkvæði á landsvísu en Donald Trump forseti og jafnmarga kjörmenn og tryggðu Trump sigur í kosningunum árið 2016. Biden hlaut 306 kjörmenn gegn 232 kjörmönnum Trump. Washington Post greinir frá þessu. 5.12.2020 22:51
Enn djúpur ágreiningur á þremur sviðum Viðræðum Breta og Evrópusambandsins varðandi Brexit verður framhaldið á morgun. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og Ursula Von Der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, funduðu símleiðis í dag. 5.12.2020 19:03
Átján fórust og fimm er saknað í námuslysi í Kína Átján kolanámuverkamenn í Kína létust og fimm er saknað eftir að koltvíoxíð gas lak inn í kolanámu í suðvesturhluta landsins í gær. Einum hefur verið bjargað úr Diaoshuidong námunni í Chongqing héraði í Kína að sögn ríkisútvarps Kína. 5.12.2020 16:23
Myndir sýna heimsins stærsta ísjaka Liðsmenn breska flughersins hafa náð myndum af heimsins stærsta ísjaka sem nú stefnir í átt að Suður-Georgíu, breskri eyju í Suður-Atlandshafinu. 5.12.2020 15:00
Johnson og Von Der Leyen funda vegna Brexit-pattstöðu Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og Ursula Von Der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, munu funda síðar í dag og er markmið fundarins að leysa úr pattstöðunni sem myndast hefur í samningsgerð fríverslunarsamnings sem taka á gildi eftir að Bretland gengur formlega úr ESB um áramót. 5.12.2020 10:22
Rússland hefur bólusetningar fyrir Covid-19 Bólusetningar fyrir Covid-19 eru hafnar í Rússlandi. Nú um helgina verður aðeins bólusett á heilsugæslustöðvum í Moskvu og verða þeir sem eru í mestri áhættu vegna veirunnar bólusettir fyrst. 5.12.2020 09:57
Urmull örgervihnatta gæti hindrað leit að lífi í alheiminum Forsvarsmenn stærsta útvarpssjónauka í heimi sem nú er í smíðum á suðurhveli jarðar óttast að þúsundir smárra fjarskiptagervitungla sem stendur til að skjóta á loft á næstu árum eigi eftir að hafa mikil áhrif á athuganir hans. 5.12.2020 09:01
Afglæpavæðing kannabisefna samþykkt í fulltrúadeildinni Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í dag lagafrumvarp um afglæpavæðingu kannabisefna í fyrsta sinn. Í frumvarpinu er kannabis fjarlægt af alríkislista yfir ólögleg fíkniefni og dómar tengdir efninu afmáðir af sakaskrá fólks. 4.12.2020 23:29
Tegnell biðst afsökunar á „óheppilegum“ ummælum um innflytjendur og Covid Anders Tegnell sóttvarnalæknir Svíþjóðar baðst í dag afsökunar á orðum sínum um innflytjendur og tengsl þeirra við dreifingu kórónuveirunnar Í Svíþjóð. Tegnell segir orðalagið, sem hann notaði í sjónvarpsþætti á SVT í gærkvöldi, hafa verið „óheppilegt“. 4.12.2020 23:15
„Janúar verður hryllilegur“ Anthony Fauci, helsti sóttvarnasérfræðingur Bandaríkjanna, varar við því að faraldur kórónuveiru eigi enn eftir að versna í Bandaríkjunum, hvar hann hefur náð nýjum hæðum síðustu daga og vikur. „Janúar verður hryllilegur,“ segir Fauci í samtali við Newsweek í dag. 4.12.2020 18:22
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent