Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Herinn krefur forsætisráðherra Armeníu um afsögn Forsvarsmenn hers Armeníu hafa krafist þess að Nikol Pashinyan, forsætisráðherra ríkisins, og ríkisstjórn hans láti af völdum. Pashinyan segist líta á kröfuna sem tilraun til valdaráns og hvetur hann stuðningsmenn sína til að mótmæla á götum úti. 25.2.2021 09:58
Finnar lýsa yfir neyðarástandi og loka í þrjár vikur Stjórnvöld í Finnlandi hafa lýst yfir neyðarástandi vegna útbreiðslu hins svokallaða breska afbrigðis kórónuveirunnar í landinu. Sumar aðgerðir stjórnvalda taka gildi þegar í stað, en aðrar 8. mars. Munu aðgerðirnar gilda í þrjár vikur. 25.2.2021 09:12
Komst lífs af eftir fjórtán tíma volk í sjónum Sjómaður frá Litháen sem féll fyrir borð á skipi sínu í Kyrrahafi komst lífs af eftir fjórtán klukkustunda volk í sjónum án björgunarvestis. 25.2.2021 07:41
Bóluefni Janssen metið öruggt og með góða virkni Bandaríska lyfjaeftirlitið segir að bóluefnið frá Janssen sé öruggt í notkun og með góða virkni gegn kórónuveirunni. Eftirlitið hefur nú lokið rannsóknum sínum á efninu og er búist við því að það fái markaðsleyfi í Bandaríkjunum á allra næstu dögum. 25.2.2021 07:29
Hringurinn þrengist: Fingraför krónprinsins á vélunum sem fluttu morðingjana Tvær einkaþotur sem morðingjar blaðamannsins Jamal Khashoggi notuðu til að komast aftur til Riyadh voru í eigu félags sem Mohammed bin Salman, krónprins Sádi Arabíu, yfirtók aðeins ári áður. 24.2.2021 23:33
Port Elizabeth verður Gqeberha: Suður-Afríkubúar þræta um hinn nýja tungubrjót Suður-Afríkubúar deila nú um nafnabreytingar sem tekið hafa gildi. Á samfélagsmiðlum kýta menn um ákvörðunina sjálfa en ekki síður nýju nöfnin, sem sum eru sannkallaðir tungubrjótar fyrir þá sem ekki tala málið. 24.2.2021 23:27
Telur mögulega ekki þörf á grímum í sumar Mögulegt er að grímuskylda verði afnumin innandyra í Bretlandi yfir sumarmánuðina. Þetta kom fram í máli Jenny Harries, eins helsta heilbrigðismálaráðgjafa breskra stjórnvalda, á blaðamannafundi vegna kórónuveirufaraldursins í Bretlandi í dag. 24.2.2021 23:26
Ástralskur sauður rúinn hálfri kengúru Veikburða sauður fannst í Ástralíu á dögunum, sem er ef til vill ekki í frásögur færandi nema vegna þess að skepnan hafði ekki verið rúin í fjölda ára og var 35 kílóum léttari þegar snyrtingu lauk. 24.2.2021 20:59
Herða takmarkanir í Svíþjóð og Noregi Norðmenn og Svíar kynntu hertar aðgerðir vegna kórónuveirunnar í dag. 24.2.2021 19:30
Sendiherra ESB skipað að yfirgefa Venesúela Ríkisstjórn Venesúela hefur skipað sendiherra Evrópusambandsins þar að yfirgefa landið. Það var gert í kjölfar þess að ESB beitti nítján embættismenn í Venesúela viðskiptaþvingunum. 24.2.2021 16:53
Bjóða hjúkrunarfræðinga í stað bóluefna frá Bretum og Þjóðverjum Yfirvöld á Filippseyjum hyggjast leyfa þúsundum hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstarfsmanna að sækja vinnu til Bretlands og Þýskalands gegn því að ríkin gefi stjórnvöldum bóluefni við Covid-19. 24.2.2021 15:15
75 fangar létu lífið í átökum í Ekvador Að minnsta kosti 75 fangar létu lífið í blóðugum átökum liðsmanna tveggja glæpagengja innan veggja þriggja fangelsa í Ekvador í gær. Fangaverðir þurftu að leita aðstoðar hjá bæði lögreglu og hernum til að ná aftur stjórn á ástandinu í fangelsunum. 24.2.2021 12:35
Lögðu hald á sextán tonn af kókaíni í Þýskalandi Tollayfirvöld í Þýskalandi hafa lagt hald á sextán tonn af kókaíni sem falin voru í gámum sem komu til landsins frá Paragvæ. Handlagningin er sögð vera sú mesta í sögunni í Evrópu. 24.2.2021 12:15
Enginn lögregluþjónn ákærður vegna dauða Daniel Prude Enginn lögregluþjónn verður ákærður vegna dauða Daniels Prude í Bandaríkjunum. Hann dó eftir að hann var handjárnaður og hetta sett á hann eftir að hann hljóp nakinn um götur Rochester í New York. 24.2.2021 11:01
Síðasta styttan af Franco tekin niður Síðasta styttan af fasíska einræðisherranum Franco sem enn var að finna á spænskri grundu, hefur nú verið tekin niður. Styttuna var að finna á Melilla, litlu spænsku landsvæði á norðvesturströnd Afríku, og var tekin niður eftir ráðamenn þar samþykktu að taka hana niður. 24.2.2021 08:10
Hótel Rúanda hetjan sökuð um hryðjuverk Paul Rusesabagina er sagður hafa bjargað rúmlega tólf hundruð manns sem hann skýldi á hóteli sínu í þjóðarmorðinu í Rúanda 1994. Hann var hylltur sem hetja, naut heimsfrægðar þegar kvikmyndin Hotel Rwanda með Don Cheadle kom út árið 2004 og fékk frelsisorðu forseta Bandaríkjanna árið 2005. 24.2.2021 06:16
Hvíta húsið heitir ríkjunum 70 prósent fleiri skömmtum á viku Til stendur að opna gríðarstóra bólusetningamiðstöð í Houston þar sem gefa á 126 þúsund bóluefnaskammta á næstu þremur vikum. Þá vinna heilbrigðisyfirvöld í Nevada að því nótt sem nýtan dag að framkvæmda bólusetningar sem hafa tafist. 23.2.2021 23:34
„Buttergate“ skekur Kanada: Smjörið bráðnar ekki og bændur skipa nefnd Ein er sú spurning sem virðist nú brenna á kanadískum matreiðslumönnum, matreiðslubókahöfundum og almennum neytendum: Af hverju mýkist smjörið ekki lengur við stofuhita? 23.2.2021 22:28
Sakbitinn Boris hætti í blaðamennsku en var enginn kórdrengur sem pistlahöfundur Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hætti í blaðamennsku af því að honum leið illa með að „misnota eða ráðast að fólki“ án þess að setja sig í þeirra spor. Þetta sagði ráðherrann þegar hann heimsótti grunnskóla í Lundúnum í dag. 23.2.2021 20:56
Depardieu ákærður fyrir nauðgun og kynferðisofbeldi Gérard Depardieu hefur verið ákærður fyrir nauðgun og kynferðisofbeldi. Leikarinn franski er sakaður um að hafa brotið á 22 ára leikkonu á heimili sínu árið 2018. 23.2.2021 19:18
Líðan Filippusar sögð betri Líðan Filippusar prins, hertoga af Edinborg, er sögð á uppleið. Ku hann vera að bregðast vel við meðferð vegna sýkingar. Hann var lagður inn á sjúkrahús í Lundunúm í síðustu viku. 23.2.2021 16:21
Misstu af átta tækifærum til að sjá mann synda til Suður-Kóreu Hermenn Suður-Kóreu tóku ekki eftir manni frá Norður-Kóreu sem birtist átta sinnum á upptökum og setti viðvörunarkerfi í gang meðan hann synti til suðurs með ströndum Kóreuskaga. 23.2.2021 15:06
Játar að hafa ráðið blaðakonuna Daphne Caruana Galizia af dögum Vince Muscat, einn af þremur mönnum sem ákærðir hafa verið fyrir morðið á maltnesku blaðakonunni Daphne Caruana Galizia árið 2017, hefur viðurkennt að hafa átt aðild að morðinu. Verjandi Muscat hefur upplýst dómara um að Muscat viðurkenni nú sök í öllum ákæruliðum. 23.2.2021 14:22
Verðandi faðir dó í sprengingu við undirbúning hverskynsveislu Bandarískur maður sem átti von á sínu fyrsta barni dó á sunnudaginn. Þá var hann að smíða sérstakan búnað til að nota við athöfn þar sem hann og kona hans ætluðu að opinbera kyn barns þeirra, í svokallaðri hverskynsveislu. 23.2.2021 10:06
Gíneumenn hefja bólusetningar gegn ebólu Byrjað verður að bólusetja gegn ebólu í Gíneu í dag eftir að um 11 þúsund skammtar voru fluttir til höfuðborgarinnar Conakry með flugi. 23.2.2021 08:52
Eiginkona El Chapo handtekin í Bandaríkjunum Emma Coronel Aispuro, eiginkona hins mexíkóska eiturlyfjabaróns, Joaquín Guzmán, betur þekktur sem El Chapo, var handtekin í Virginíu í Bandaríkjunum í gær. Hún er grunuð um aðild að skipulögðu, alþjóðlegu eiturlyfjasmygli. 23.2.2021 07:40
Facebook semur við yfirvöld í Ástralíu Samfélagsmiðlarisinn Facebook tilkynnti í morgun að samningar hefðu náðst við áströlsk yfirvöld sem gera það að verkum að opnað verður á ný fyrir streymi frétta á miðlinum í Ástralíu. 23.2.2021 06:54
Biden minntist þeirra sem hafa látist í faraldrinum Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði þjóð sína í gærkvöldi í tilefni af þeim sorglega áfanga að nú hafa 500 þúsund Bandaríkjamenn dáið af völdum Covid-19, fleiri en í nokkru öðru landi. 23.2.2021 06:49
Stormy Daniels fær ekki að áfrýja til Hæstaréttar Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði beiðni klámstjörnunnar um áfrýjun á frávísunarúrskurði í meiðyrðamáli hennar gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Beiðninni var hafnað án athugasemda. 22.2.2021 23:54
Fá að mæta í skólann en skilyrði um skimun tvisvar í viku Sérfræðingar í Danmörku leggja til að leyft verði að opna ákveðnar verslanir og að afþreying utandyra fái að hefjast á nýjan leik þegar tilkynnt verður um næstu skref við afléttingu takmarkana vegna kórónuveirufaraldursins í Danmörku. Þá er lagt til að nemendur sem eiga að útskrifast í vor fái að mæta aftur í skólann aðra hvora viku. Aftur á móti á það aðeins við nemendur í ákveðnum landshlutum og er háð því að nemendur sýni reglulega fram á neikvætt covid-19 próf. 22.2.2021 23:31
NASA birtir myndband af lendingu Preseverance á Mars NASA birti í dag myndband af sögulegri lendingu vélmennisins Preseverance á Mars í síðustu viku. Myndbandið sýnir síðustu mínúturnar af, að margra mati spennuþrungnum, aðdragandanum að lendingunni og af lendingunni sjálfri þegar hjól vélmennisins, eða geimjeppans, snertu loks yfirborð plánetunnar. 22.2.2021 23:03
Eins og í slæmri hryllingsmynd Í heildina hafa nú nærri 29 milljónir smitast af kórónuveirunni í Bandaríkjunum. Þar af hefur hálf milljón látist, fleiri en Bandaríkjamennirnir sem létust í seinni heimsstyrjöld, Kóreustríðinu og Víetnamstríðinu samanlagt. Faraldurinn er hvergi verri. 22.2.2021 20:01
Höfða mál gegn orkufyrirtækjum eftir að ellefu ára sonur þeirra lést Fjölskylda hins ellefu ára gamla Cristian Pineda hefur höfðað skaðabótamál gegn orkufyrirtækjum í Texas eftir að sonur þeirra lést í vetrarstormunum sem hafa gengið yfir suðurríki Bandaríkjanna. Telja þau son sinn hafa dáið úr lungnabólgu, en niðurstöður krufningar liggja ekki fyrir. 22.2.2021 18:12
Ætla að opna hárgreiðslustofur og leyfa áhorfendur Skólar verða opnaðir á ný á Bretlandi þann 8. mars og fólk á dvalarheimilum má fá einn gest. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, kynnti áform um afléttingu takmarkana í dag. 22.2.2021 17:36
Hæstiréttur heimilar afhendingu skattskýrslna Trumps Hæstiréttur Bandaríkjanna greiddi í dag leið saksóknara í New York að skattskýrslum og öðrum fjárhagsgögnum Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Undirréttur hafði áður úrskurðað í október að fyrrum endurskoðendur Trumps þyrftu að verða við beiðni ákærudómstóls og afhenda gögnin. 22.2.2021 15:07
Sendiherra Ítalíu látinn eftir árás á bílalest í Austur-Kongó Sendiherra Ítalíu í Austur-Kongó, Luca Attanasio, er látinn eftir að hópur manna réðst á bílalest á vegum Sameinuðu þjóðanna í Goma í austurhluta landsins. 22.2.2021 11:35
Áfrýjunarmeðferð í máli Gunnars Jóhanns hófst í morgun Málflutningur í máli Gunnars Jóhanns Gunnarssonar, sem dæmdur var í þrettán ára fangelsi fyrir að hafa banað bróður sínum í bænum Mehamn í Norður-Noregi í apríl 2019, hófst í lögmannsrétti Hálogalands í Tromsø í morgun. Verjendur Gunnars Jóhanns áfrýjuðu dómnum yfir skjólstæðingi sínum sem féll í október síðastliðnum. 22.2.2021 11:00
Hersveitir hörfa frá umdeildu stöðuvatni Indverskar og kínverskar hersveitir hafa hörfað frá landsvæði við stöðuvatnið Pangong í Himalaja-fjallgarðinum á landamærum ríkjanna. Mikil spenna hefur verið á svæðinu síðustu mánuði, en ríkin hafa lengi deilt um hvar landamærin skuli liggja. 22.2.2021 08:21
Boeing 777-þotur kyrrsettar Bandaríska flugfélagið United Airlines hefur kyrrsett 24 Boeing 777-þotur í flota sínum eftir að eldur kom upp í hreyfli einnar þeirrar á laugardaginn var. 22.2.2021 07:12
Vilja opna rannsókn á morði Malcolm X Dætur Malcolm X vilja að rannsókn á morði föður þeirra verði opnuð að nýju vegna nýrra sönnunargagna í málinu. Malcolm X var þekktur fyrir réttindabaráttu sína í Bandaríkjunum, en hann var skotinn til bana þennan dag, 21. febrúar, árið 1965. 21.2.2021 23:28
„Þjóðfélaginu til háborinnar skammar“ að fólk bíði í röðum eftir mat Guðmundur Ingi Kristinsson, þingflokksformaður Flokks fólksins, segist ekki óttast að flokkurinn detti út af þingi í næstu kosningum. Samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis mælist flokkurinn með um það bil fjögur prósent og nær ekki manni inn. 21.2.2021 21:50
Ósætti eftir að borgarstjóri Lyon tók út kjötmáltíðir í skólum Grégory Doucet, borgarstjóri frönsku borgarinnar Lyon, ákvað að ekkert kjöt yrði á matseðli skóla í borginni til þess að einfalda matarþjónustu skóla vegna kórónuveirufaraldursins. Fiskur og egg er þó áfram hluti af skólamáltíðum, en ákvörðunin hefur farið öfugt ofan nokkra ráðamenn. 21.2.2021 20:49
Segir Armie Hammer hafa „merkt sig“ og dreift nektarmyndum í óleyfi Áhrifavaldurinn og háskólaneminn Paige Lorenze segir leikarann Armie Hammer hafa rist upphafsstaf sinn við lífbein hennar og síðar sleikt blóðið í burtu. Lorenze, sem var kærasta Hammer undir lok síðasta árs, hefur áður greint frá því að hann hafi dreift nektarmyndum af henni án hennar leyfis. 21.2.2021 20:03
Sjö látnir eftir að vél flughersins hrapaði Flugvél nígeríska flughersins hrapaði skömmu eftir flugtak í morgun með þeim afleiðingum að allir sjö um borð létust. Talið er að vélarbilun hafi leitt til slyssins. 21.2.2021 19:21
Hálf milljón punkta á forsíðunni, einn fyrir hvert tapað líf Hátt í hálf milljón hefur látið lífið í Bandaríkjunum af völdum covid-19 frá því við upphaf faraldursins þar í landi. Stórblaðið New York Times birti af þessu tilefni hálfa milljón svartra punkta á forsíðu sinni, sem tákn fyrir hvern þann sem látið hefur lífið af völdum sjúkdómsins í landinu. 21.2.2021 17:45