Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hver eru hryðjuverkasamtökin ISIS-K? Hryðjuverkasamtökin ISIS-K lýstu í kvöld yfir ábyrgð á sprengjuárásunum á alþjóðaflugvellinum í Kabúl fyrr í dag, sem bönuðu hátt í hundrað manns. 26.8.2021 22:44
Minnst níutíu Afganar hafa farist og ISIS lýsir yfir ábyrgð Minnst níutíu hafa farist í sprengjuárás sem framin var af hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við íslamskt ríki (ISIS) á alþjóðaflugvellinum í Kabúl í dag. Þá fórust tólf bandarískir hermenn í árásinni. 26.8.2021 20:11
Mannskæð sprengjuárás í mannþröng við flugvöllinn í Kabúl Að minnsta kosti þrettán manns eru látnir eða særðir eftir mannskæða sprengju- og skotárás í mannþröng við flugvöllinn í Kabúl í dag. Talsmaður talibana fullyrðir að konur og börn séu á meðal þeirra látnu. 26.8.2021 13:54
Danir mynda bandalag til að stöðva olíu- og gasvinnslu Stjórnvöld í Danmörku og Kosta Ríka vinna nú saman að því að mynda bandalag þjóða sem eru viljug til að hætta olíu- og gasvinnslu og hætta að gefa út ný leyfi til leitar. Ekki er hægt að ráðast í ný verkefni í jarðefnaeldsneyti ef markmið Parísarsamkomulagsins eiga að nást. 26.8.2021 12:50
Fundu lík þúsunda fórnarlamba Stalíns í Úkraínu Líkamsleifar allt frá fimm til átta þúsund manns fundust í 29 fjölgagröfum á framkvæmdasvæði í borginni Odessu í sunnanverðri Úkraínu. Talið er að fólkið hafi verið fórnarlömb sovésku leynilögreglunnar í tíð alræðisherrans Jósefs Stalín. 26.8.2021 12:05
Landamæraskimun verði hætt í Færeyjum Að sögn Michaels Boolsen, formanns farsóttarnefndar Færeyja, er staðan vegna Covid-19 svo góð í Færeyjum að ráðlagt sé að hætta skimun á landamærunum. 26.8.2021 11:34
Lögmönnum sem reyndu að snúa við kosningaúrslitunum refsað Alríkisdómari í Michigan í Bandaríkjunum fyrirskipaði að hópi lögmanna sem höfðuðu mál til að reyna að snúa við úrslitum forsetakosninganna í nóvember til stuðnings Donalds Trump verði refsað. Taldi hann lögmennina hafa misnotað réttarkerfið. 26.8.2021 11:20
Fangelsisdómur yfir einum þeirra sem ætlaði að ræna ríkisstjóra Dómstóll í Michigan dæmdi karlmann á þrítugsaldri í rúmlega sex ára fangelsi fyrir aðild sína að ráðabruggi um að ræna Gretchen Whitmer, ríkisstjóra Michigan, í fyrra. Samsærismennirnir voru ósáttir við takmarkanir sem Whitmer setti á vegna kórónuveirufaraldursins. 26.8.2021 09:08
Stöðva notkun bóluefnis Moderna eftir að agnir fundust í lyfjaglösum Heilbrigðisyfirvöld í Japan og bóluefnaframleiðandinn Moderna hafa ákveðið að bíða með notkun 1,6 milljón bóluefnaskammta eftir að agnir fundust í nokkrum skömmtum af 560 þúsund skammta framleiðslulotu. 26.8.2021 07:47
Vara við mögulegum hryðjuverkaárásum á flugvöllinn í Kabúl Stjórnvöld í Bandaríkjunum, Bretlandi og Ástralíu vara þegna sína við mögulegum hryðjuverkaárásum á flugvöllinn í Kabul höfuðborg Afganistans og ráðleggja þeim frá ferðalögum þangað. 26.8.2021 06:41
Lögreglumaðurinn sem banaði innrásarkonu stígur fram Lögreglumaðurinn sem skaut konu, sem tók þátt í innrásinni í bandaríska þinghúsið, til bana mun á morgun stíga fram og segja sögu sína í sjónvarpsviðtali. Fyrst þá verður nafn lögreglumannsins þekkt en aðeins tveir dagar eru liðnir frá því að tilkynnt var að lögreglumaðurinn muni ekki sæta viðurlögum fyrir manndrápið. 25.8.2021 23:00
Hópur afgansks flóttafólks fastur við landamæri Póllands og Hvíta-Rússlands Mannréttindadómstóll Evrópu hefur beðið pólsk og lettnesk stjórnvöld um að hjálpa flóttafólki, sem er fast á landamærunum, við að komast í öruggt skjól. Flestir flóttamannanna eru frá Afganistan og Írak. 25.8.2021 22:57
Hlébarði réðst á þýskt módel í myndatöku Fyrirsæta á fertugsaldri er alvarlega slösuð eftir að hlébarði réðist á hana í myndatöku í dýragarði í Þýskalandi. 25.8.2021 22:14
Segir Ardern hafa skipulagt að kona tæki við sem forsætisráðherra Fyrrverandi forsætisráðherra Samóa eyja hefur sakað Jacindu Ardern, forsætisráðherra Nýja Sjálands, um að hafa beitt sér fyrir að hann tapaði nýafstöðnum kosningum og komið fyrstu konunni í embættið. 25.8.2021 18:30
Nýi ríkisstjórinn leiðréttir tölu látinna í faraldrinum Raunverulegur fjöldi látinna í kórónuveirufaraldrinum í New York-ríki er um tólf þúsund manns hærri en opinberar tölur sögðu til um. Nýr ríkisstjóri greindi frá þessu eftir að hann tók við embættinu. 25.8.2021 16:57
Gigtarlyf í flýtimati sem meðferð við Covid-19 Lyfjastofnun Evrópu (EMA) hefur hafið mat á því hvort gigtarlyfið RoActemra nýtist sem meðferð við alvarlegum Covid-19 sjúkdómi. Einna helst er til skoðunar hvort lyfið gagnist fullorðnum sjúklingum sem liggja á sjúkrahúsi, eru á sterameðferð og þurfa súrefnisgjöf eða öndunarvélastuðning. 25.8.2021 14:52
Selja hundrað hús í nágrenni Rómaborgar á 150 krónur Bæjarfélög á Ítalíu reyna nú í auknum mæli að selja yfirgefin hús á eina evru til að draga að framtakssama kaupendur. Fram að þessu hefur rýmingarsalan einna helst einskorðast við einangruð þorp fjarri höfuðborginni en breyting var á því þegar bæjaryfirvöld í Maenza tilkynntu að þau ætluðu að feta sömu leið. 25.8.2021 14:16
Þrír bræður fórust í bílslysi í Noregi Allt bendir til að þrír bræður – 17, 18 og 20 ára –hafi látið lífið í bílslysi í Hallingdal í Flå, um 150 kílómetra norðvestur af höfuðborginni Osló, á mánudagskvöldið. 25.8.2021 11:29
Komust ekki að niðurstöðu um uppruna veirunnar Bandarísku leyniþjónustunni tókst ekki að komast til botns í því hvernig nýtt afbrigði kórónurveirunnar barst fyrst í menn. Í skýrslu sem hún skilaði Joe Biden Bandaríkjaforseta er engin afgerandi niðurstaða um hvort að veiran hafi borist náttúrulega úr dýrum í menn eða hvort hún hafi sloppið af rannsóknastofu. 25.8.2021 10:41
Biður fólk um að koma vinsamlegast ekki til Havaí Ólíkt stjórnvöldum á Íslandi og víðsvegar annars staðar í heiminum hefur ríkisstjóri Havaí biðlað til ferðamanna um að koma vinsamlegast ekki til eyjanna eins og sakir standa. 25.8.2021 08:29
Dregur nokkuð úr vörninni eftir því sem mánuðirnir líða Vísindamenn segja nokkuð draga úr vörn bóluefna Pfizer og AstraZeneca eftir því sem líður frá bólusetningu. Við þessu sé þó að búast og að bóluefnin veiti áfram góða vörn. 25.8.2021 07:42
Talíbanar verða dæmdir af gjörðum sínum Joe Biden, forseti Bandaríkjann,a segir að því fyrr sem bandarískar hersveitir verði farnar frá Afganistan því betra. Allt miðaðist við að standa við samkomulag Bandaríkjastjórnar og Talibana um að brottflutningi verði lokið hinn 31. ágúst. 25.8.2021 06:30
Ferð Harris tafðist vegna gruns um „Havana-heilkennið“ Ferð Kamölu Harris, varaforseta Bandaríkjanna, til Víetnam var frestað um nokkra klukkutíma vegna gruns um að upp sé komið tilfelli í höfuðborg landsins af hinu dularfulla „Havana-heilkenni“. 24.8.2021 22:52
Mun ekki fresta brottför frá Afganistan Joe Biden Bandaríkjaforseti segist ekki ætla að fresta endanlegri brottför Bandaríkjahers frá Afganistan þrátt fyrir þrýsting frá leiðtogum sjö helstu iðnríkja heims, G-7. Þann 31. ágúst muni herinn þá hafa lokið störfum sínum í landinu og yfirgefið Afganistan. 24.8.2021 21:40
Rannsaka eitrun í þýskum háskóla Sjö hafa þurft að leita læknisaðstoðar eftir að eitur var skilið eftir í mötuneyti þýsks háskóla í gær. Einn þeirra var fluttur á spítala í lífshættu. 24.8.2021 15:41
Talibanar meina Afgönum brottför frá landinu Zabihullah Mujahid, talsmaður Talibana, tilkynnti á blaðamannafundi rétt í þessu að afgönskum borgurum verði ekki leyft að fara á flugvöllinn í Kabúl. Hann biðlaði jafnframt til Bandaríkjamanna að hvetja Afgana ekki til að yfirgefa landið. 24.8.2021 13:55
Yfirmaður CIA fundar með leiðtoga Talibana William Burns, yfirmaður Leyniþjónustu Bandaríkjanna, fundaði með pólitískum leiðtoga Talibana, Abdul Ghani Baradar, í gær. 24.8.2021 13:18
Fyrrverandi einræðisherra Tjad er látinn Hissène Habré, fyrrverandi einræðisherra Afríkuríkisins Tjads, er látinn, 79 ára að aldri. Habré varði síðustu árum sínum í fangelsi í Senegal eftir að hafa hlotið lífstíðardóm meðal annars fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni. 24.8.2021 12:56
Segir Kelly hafa smitað sig af herpes og neytt sig til að gangast undir þungunarrof Tónlistarmaðurinn R. Kelly nauðgaði 17 ára stúlku, skipaði henni að gangast undir þungunarrof og smitaði hana af herpes, vitandi að hann var sjálfur smitaður. Þetta kom fram við réttarhöld yfir söngvaranum í gær. 24.8.2021 11:48
Rannsaka risastórt hópsmit á tónlistarhátíð á Englandi Heilbrigðisyfirvöld í Englandi hafa hafið opinbera rannsókn eftir að 4.700 manns sem sóttu tónlistar- og brimbrettahátíðina Boardmasters sem haldin var í Cornwall á dögunum greindust smitaðir af kórónuveirunni. 24.8.2021 10:34
Fresta geimgöngu vegna veikinda annars geimfarans Geimferðastofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur frestað geimgöngu tveggja geimfara um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni vegna veikinda annars þeirra. Veikindin eru þó ekki sögð alvarleg. 24.8.2021 10:25
Samþykkir að verða varaforsetaefni flokksins á næsta ári Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, hefur samþykkt að verða varaforsetaefni stjórnarflokksins í forsetakosningunum í landinu á næsta ári. Stjórnarskrá landsins kemur í veg fyrir að Duterte geti boðið sig sjálfur fram sem forseti á næsta ári og er þetta af mörgum talin leið fyrir forsetann til að framlengja valdatíma sinn. 24.8.2021 10:04
„Nískasti fjármálaráðherra ESB“ líklegastur til að taka við Stefan Löfven greindi frá því um síðustu helgi hann ætli sér að láta af störfum sem forsætisráðherra Svíþjóðar í haust. Hann muni ekki bjóða sig fram til áframhaldandi formennsku í Jafnaðarmannaflokknum á landsþingi í nóvember. Skiljanlega eru farnar af stað miklar umræður um hver muni taka við formennsku í flokknum og yrði þá í kjörstöðu til að taka einnig við embætti forsætisráðherra landsins. 24.8.2021 08:42
Kathy Hochul ríkisstjóri New York fyrst kvenna Kathy Hochul sór embættiseið í nótt og varð þar með fyrst kvenna til að verða ríkisstjóri New York. Hún tekur við af Andrew Cuomo, sem sagði af sér í kjölfar fjölda ásakana um kynferðisbrot. 24.8.2021 08:33
Varaði við „þjóðernis-bólusetningarstefnu“ Tedros Adhanom Ghebreyesus, aðalframkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, varaði við þjóðernis-bólusetningastefnu og óréttlæti í bólusetningum á fundi með utanríkisráðherra Ungverjalands í gær. 24.8.2021 07:34
Leiðtogi Proud Boys í fimm mánaða fangelsi Leiðtogi bandaríska hægriöfgahópsins Proud Boys var í gær dæmdur í rúmlega fimm mánaða fangelsi fyrir að ólöglegan vopnaburð og að brenna Black Lives Matter fána sem liðsmenn hópsins höfðu stolið. 24.8.2021 07:20
Þrýst á Biden að fresta brottför þrátt fyrir hótanir Talíbana Leiðtogar sjö helstu iðnríkjaheims, G-7, funda í dag. Joe Biden forseti Bandaríkjanna er undir miklum þrýstingi frá Bretum, Frökkum og Þjóðverjum að seinka brottför hersveita sinna frá flugvellinum í Kabúl, höfuðborg Afganistans, til að hægt verði að koma fleirum út úr landinu. 24.8.2021 06:37
Hæsti maður Bandaríkjanna er látinn Igor Vovkovinskiy, hávaxnasti maður Bandaríkjanna lést í Minnesota á föstudag. Hann var 38 ára gamall og 234,5 sentímetrar á hæð. 23.8.2021 19:25
Kröfðust aðgerða og aðstoðar á Austurvelli Afganar með íslenskan ríkisborgararétt krefjast þess að stjórnvöld bjargi ættingjum sínum frá Afganistan. Navid Nouri, afganskur Íslendingur, boðaði til samstöðufundar á Austurvelli í dag og segir að bjarga eigi fjölskyldum afganska Íslendinga rétt eins og gert væri fyrir innfædda. 23.8.2021 19:00
Bandmenn Sex Pistols höfðu betur gegn Johnny Rotten Johnny Rotten, söngvarinn í bresku pönk-sveitinni Sex Pistols, tapaði máli gegn meðlimum sveitarinnar fyrir hæstarétti í Bretlandi í dag. Rotten krafðist þess að fyrrverandi félagar hans fengju ekki að nota Sex Pistols lög í sjónvarpsþáttaseríu um sveitina. 23.8.2021 16:04
Ungir umhverfissinnar loka orkumálaráðuneyti Noregs Um 150 umhverfissinnar lokuðu fyrir aðgengi að orkumálaráðuneyti Noregs í dag. Hátt í tuttugu þeirra gripu til þess ráðs að fara inn í anddyri ráðuneytisins til að mótmæla og hafa þeir ekki farið þaðan út í dag. 23.8.2021 15:30
Talibanar voru komnir til Kabúl mánuðum áður en borgin féll „Í byrjun júlí hitti ég einn herforingja Talibana. Ég spurði hvenær hermenn hans myndu koma til Kabúl. Hann svaraði: Þeir eru hérna nú þegar.“ 23.8.2021 14:43
Bóluefni Pfizer fær fullt markaðsleyfi í Bandaríkjunum Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur samþykkt alfarið notkun bóluefnis Pfizer og BioNTech við kórónuveirunni í Bandaríkjunum. Hingað til hefur bóluefnið verið notað í skjóli neyðarleyfis. Talið er að ákvörðunin gæti hvatt fleiri Bandaríkjamenn til að láta bólusetja sig. 23.8.2021 14:11
Hefja notkun á heimalöguðu bóluefni Forseti Taívans reið á vaðið í dag og var á meðal þeirra fyrstu sem fengu nýtt innlent bóluefni gegn kórónuveirunni. Gagnrýnisraddir eru þó uppi um að notkun efnisins hafi verið samþykkt of hratt. 23.8.2021 13:11
Bregðast þurfi við í samstarfi við nágrannaþjóðir Félagsmálaráðherra segir að íslensk stjórnvöld geti ekki brugðist við stöðunni í Afganistan öðruvísi en í samstarfi við aðrar nágrannaþjóðir. Staðan sé afar flókin enda engin hefðbundin flóttamannamóttaka þar ytra lengur og ekkert hefðbundið flug. 23.8.2021 13:08
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent