Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Utanríkisráðuneytið úthlutar 213 milljónum til verkefna félagasamtaka Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að úthluta alls um 213 milljónum króna til verkefna félagasamtaka á sviði þróunarsamvinnu og mannúðarverkefna. 31.1.2019 15:45
Utanríkisráðherra: „Við getum verið stolt af okkar starfi“ Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra fór um verkefnasvæði íslenskrar þróunarsamvinnu í gær á öðrum degi heimsóknar sinnar til Malaví. "Það er einstök upplifun að sjá með eigin augum hversu miklu framlag Íslendinga hefur skilað." 31.1.2019 10:00
Fjórða hvert barn býr við stríð eða aðrar hörmungar Eitt af hverjum fjórum börnum í heiminum býr á svæði þar sem geisar stríð eða aðrar hörmungar. Milljónir barna skortir öryggi og vernd. Vaxandi ofbeldi og árásir hafi stóraukið þörfina á neyðararaðstoð. UNICEF ítrekar að alþjóðasamfélagið þurfi að skuldbinda sig af fullri alvöru til að vernda börn. 30.1.2019 09:15
Ísland veitir yfir 20 milljónir í mannúðaraðstoð til flóttafólks frá Venesúela SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa með stuðningi utanríkisráðuneytisins ákveðið að aðstoða flóttafjölskyldur frá Venesúela í Kólumbíu. Ráðuneytið styrkir mannúðarverkefni SOS um tæpa 19 og hálfa milljón króna og er mótframlag SOS rúm ein milljón króna. 29.1.2019 10:00
Brottfall nemenda nánast horfið eftir stuðning Íslendinga Fyrir fáeinum árum voru aðeins fjórar nothæfar kennslustofur í Milimbo grunnskólanum í Mangochihéraði í Malaví. Allir nemendur skólans eru nú komnir undir þak, þökk sé stuðningi héraðsyfirvalda í Mangochi gegnum íslenska þróunarsamvinnu. Formaður og annar varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis heimsóttu skólann. 28.1.2019 13:45
Fæðingardeild opnuð í Kadango: Mikið framfaraskref í afskekktu héraði í Malaví Átta börn fæddust á einum sólarhring skömmu eftir opnun fæðingardeildar í Kadango, einum afskekktasta hreppi Mangochi héraðs í Malaví. Nýja fæðingardeildin er fjármögnuð af íslenskum stjórnvöldum 25.1.2019 16:15
Meira en 145 þúsund börn Róhingja fara nú í skóla - mörg í fyrsta sinn Meira en 145 þúsund börn Róhingja í flóttamannabúðunum í Cox's Bazar hefja nú skólagöngu í Bangladess á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF. Börnin flúðu ofbeldi og ofsóknir í heimalandi sínu Mjanmar. 24.1.2019 11:45
Þörf á vetrarfatnaði í flóttamannabúðum í Líbanon Starfsfólk SOS Barnaþorpa dreifðu í síðustu viku hlýjum vetrarfatnaði til sýrlenskra flóttafjölskyldna í Bekaa-dalnum í Líbanon. Mikil þörf er á hlýjum vetrarfatnaði en óvenju kalt hefur verið á svæðinu. 22.1.2019 14:30
UN Women: Áhersla á götukynningar á 30 ára afmæli landsnefndarinnar Öflugur hópur ungs fólks á vegum UN Women mun ganga í hús á höfuðborgarsvæðinu, kynna starfsemi UN Women fyrir landsmönnum og bjóða þeim að taka þátt í starfinu í tilefni 30 ára afmælis landsnefndarinnar. 21.1.2019 13:00
„Aldrei pláss fyrir hatursfulla orðræðu, umburðarleysi og útlendingahatur“ Antonio Guterres aðalframkvæmdastjóri SÞ sagði í ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna að hugmyndafræðileg átök ættu sér stað og brýnt væri að ráðast að rótum ótta fólks í síbreytilegum heimi. 18.1.2019 11:00
Íslenskur stuðningur við börn í flóttamannabyggðum Úganda Tæplega 20 þúsund börn í norðurhluta Úganda koma til með að njóta framlags frá utanríkisráðuneytinu sem hefur ákveðið að styrkja Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) í verkefnum sem tengjast vatns-, salernis- og hreinlætismálum með tæplega 120 milljóna króna framlagi. 17.1.2019 09:15
Afríkubúar vilja helst góða atvinnu og hagvöxt Góð atvinna og hagvöxtur, er efst á óskalista Afríkubúa þegar þeir eru spurðir álits á mikilvægustu Heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun. Afrobarometer lagði spurninguna fyrir almenning í 34 Afríkuríkjum. 16.1.2019 15:45
Tæpar 120 milljónir króna til að bólusetja börn í Malaví Hundruð þúsunda barna í Malaví verða bólusett gegn öllum helstu banvænum sjúkdómum eftir að íslensk stjórnvöld ákváðu að veita GAVI samtökunum tæpar 120 milljónir króna til að herða á bólusetningum malavískra barna. 15.1.2019 15:00
Mannfjölgun í Malaví 35% á átta árum Hagstofan í Malaví leiddi framkvæmd manntals í samstarfi við Mannfjöldasjóð Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) með tæknilegum stuðningi Manntalsskrifstofu Bandaríkjanna. Kostnaðaráætlun fyrir manntalið og úrvinnslu gagna nemur um 22,5 milljónum Bandaríkjadala. Íslensk stjórnvöld leggja fram tæpar eitt hundrað milljónir króna og sá stuðningur mun einkum nýtast við úrvinnslu gagna og uppsetningu gagnamiðlunarkerfis. 15.1.2019 11:00
Níu umsóknir bárust um styrki úr Samstarfssjóði við atvinnulífið Samstarfssjóður við atvinnulíf um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna vegna samstarfsverkefna í þróunarríkjum hefur yfir að ráða allt að 100 milljónum króna. Níu umsóknir bárust til sjóðsins. Áskilið er að styrkt verkefni skuli vera til hagsbóta í viðkomandi landi og stuðla að atvinnusköpun og sjálfbærum vexti í fátækum ríkjum heims. 14.1.2019 16:30
Þrjátíu þúsund flóttamenn látnir á fimm árum Rúmlega þrjátíu þúsund flóttamenn létust á árunum 2014 til 2018 samkvæmt yfirliti alþjóðlegrar stofnunar um farandfólk (IOM). Verulega skortir á opinber gögn og upplýsingar um dauðsföll þeirra sem eru á faraldsfæti. Því telur stofnunin tölurnar lágmarksáætlun. 11.1.2019 16:15
Umrót á alþjóðamörkuðum og spáð örlitlum samdrætti Landsframleiðsla á heimsvísu kemur til með að aukast um 2,9% á þessu ári. Það er örlítill samdráttur frá nýliðnu ári. Hlutfallið mun verða 2,8% næstu tvö árin. Þetta kemur fram í spá Alþjóðabankans sem gaf í gær út árlega skýrslu um efnahagshorfur í heiminum. 10.1.2019 15:15
Mansal í heiminum fer vaxandi Mansal fer vaxandi í heiminum og verður sífellt ógeðfelldara samkvæmt niðurstöðum nýrrar skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum. Kynferðisleg misneyting fórnarlamba helsti drifkrafturinn. Börn eru 30% þeirra sem seld eru mannsali, stelpur miklu fleiri en strákar. 9.1.2019 13:00
Ekkert barn ætti að vera fórnarlamb ofbeldis, ótta eða áfalla Hundrað árum eftir lok fyrri heimsstyrjaldar eru grundvallarmannréttindi og lög sem eiga að vernda börn gegn hörmulegum afleiðingum stríðsátaka, stanslaust brotin án nokkurra refsinga. Framkvæmdastjóri Barnaheilla - Save the Children á Íslandi segir ríkisstjórnir um allan heim verða að binda endi á óásættanlegt ofbeldi. 8.1.2019 14:45
Óvænt afsögn forseta Alþjóðabankans Jim Young Kim forseti Alþjóðabankans hefur sagt upp störfum. Afsögn hans kom stjórnarmönnum og starfsmönnum bankans á óvart. Jim hyggst hefja störf hjá fjárfestingafyrirtæki. Ráðningatímabili hans hjá Alþjóðabankanum átti að ljúka eftir þrjú ár. 8.1.2019 09:15
Rauði krossinn og Sýn brúa stafræna bilið í Afríku Sýn og Rauði krossinn á Íslandi hafa gert með sér samstarfssamning sem felur í sér stuðning Sýnar við alþjóðlegt hjálparstarf Rauða krossins. Landsfélögum Rauða krossins og Rauða hálfmánans í fimmtán Afríkuríkjum verður veitt aðstoð við að bæta þekkingu og búnað í upplýsinga- og samskiptatækni. 7.1.2019 16:15
Besta fjárfestingin að enda barnahjónabönd og tryggja menntun unglingsstúlkna Að enda barnahjónabönd og ótímabærar barneignir sem þeim fylgja, auk þess að tryggja menntun stúlkna til átján ára aldurs er besta fjárfestingin í Malaví í dag. Þetta kemur fram í pistli Ágústu Gísladóttur, forstöðumanns sendiráðs Íslands í Lilongve, sem hún skrifar fyrir Heimsljós. 7.1.2019 10:00
Ótrúleg lífsreynsla að starfa í Cox Bazar "Ótrúleg lífsreynsla,“ segir Ingibjörg Ösp Ingólfsdóttir hjúkrunarfræðingur sem nýkomin er heim úr flóttamannabúðum Róhingja í Cox Bazar í Bangladess. 5.1.2019 14:00
UN Women: Umræða um kynbundið ofbeldi bar hæst á árinu "MeToo byltingin hefur svo sannarlega opnað umræðuna um kynbundið ofbeldi gegn konum og stendur óneitanlega upp úr þegar litið er til árangurs í jafnréttismálum á árinu,“ segir í áramótagrein UN Women á Íslandi. 4.1.2019 11:15
Sárafátækir aldrei færri og aldrei fleiri nýtt hreina orku Aldrei í sögunni hefur sárafátækt í heiminum mælst jafn lítil og síðasta ár. Flest bendir til þess að sárafátækir einskorðist í framtíðinni við einn heimshluta: sunnanverða Afríku. 3.1.2019 13:30
Nýársheit að tryggja öllum börnum rétt til að lifa Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) bendir á að um leið og hverju nýfæddu barni er fagnað ættu allar þjóðir heims jafnframt að setja sér það nýársheit að tryggja rétt allra barna til að lifa og dafna. 2.1.2019 15:00
Heimsljós 2018: Mest lesnu fréttirnar Eitt hundrað milljóna króna framlag utanríkisráðuneytisins til neyðaraðstoðar í Jemen var mest lesna fréttin í Heimsljósi á árinu. Önnur mest lesna frétt ársins var um leit ráðuneytisins að unglingi fæddum árið 2003 til að taka þátt í kynningu á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. 2.1.2019 09:30