Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rúmlega 25 milljónir til neyðaraðstoðar í Mósambík og Malaví Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að fela Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) að ráðstafa 200 þúsund Bandaríkjadölum – um 25 milljónum íslenskra króna – til björgunarstarfa á hamfarasvæðunum í Mósambík og Malaví. 29.3.2019 12:45
Nýr nemendahópur við Landgræðsluskólann Nýr hópur nema hefur hafið nám við Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Skólinn er hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands og hýstur af Landbúnaðarháskóla Íslands í samvinnu við Landgræðsluna. 28.3.2019 15:45
Tæplega 66% þjóðarinnar þekkir eða hefur heyrt um heimsmarkmiðin Alls segjast 65,6 prósent landsmanna annað hvort þekkja eða hafa heyrt um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Þannig segjast 15,1 prósent þekkja til heimsmarkmiðanna en 50,6 prósent segjast hafa heyrt um þau. 28.3.2019 09:45
Alþjóðlegt netnámskeið um þróun viðskiptalíkans fyrir endurheimt landgæða Hvernig er hægt að skapa atvinnu- og viðskiptatækifæri með því að vinna að landbótum og endurheimt vistkerfa? Svarið við þeirri spurningu er að finna á nýju netnámskeiði sem Landgræðsluskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna hefur þróað ásamt samstarfsaðilum í ENABLE verkefinu. 27.3.2019 15:30
Fjögur ár frá upphafi stríðsins í Jemen og 10 milljónir á barmi hungursneyðar Fjögur ár eru liðin frá því stríð braust út í Jemen. Síðustu tólf mánuði hafa að minnsta kosti 226 jemensk börn látið lífið og 217 slasast í loftárásum Sádi-Araba og bandamanna þeirra. 27.3.2019 12:00
Rúanda á heimsmetið í þátttöku kvenna á þingi Konur eru 67,5% þingmanna í Rúanda. Hvergi í heiminum skipa konur jafn mörg þingsæti og í Rúanda. Síðastliðið haust setti Rúanda nýtt heimsmet í þátttöku kvenna á þingi þegar nýtt landsþing tók til starfa. 26.3.2019 15:45
Neyðarsöfnun vegna ofsaflóða í sunnanverðri Afríku Fórnarlömb ofsaflóða í sunnanverðri Afríku telja 5,3 milljónir íbúa. Í morgun var staðfest að 705 væru látnir. Starfsfólk og sjálfboðaliðar Rauða krossins vinna nótt sem nýtan dag við það að bjarga mannslífum. 25.3.2019 10:00
Stjórnvöld skrifa undir samkomulag við FAO Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) og Ísland ætla að vinna náið saman að verkefnum sem stuðla að langtímavernd vistkerfa sjávar. Samstarfið felur í sér meðal annars fjárhagslegan og tæknilegan stuðning af Íslands hálfu. 22.3.2019 16:30
Íslensk þróunarsamvinna: Vatnsból fyrir hálfa milljón íbúa Íslensk stjórnvöld hafa í alþjóðlegri þróunarsamvinnu komið upp vatnsbólum fyrir hálfa milljón íbúa í Afríkuríkjum. "Vatn er undirstaða alls lífs og ekkert bætir líf fátæks fólks meira en greiður aðgangur að hreinu vatni," segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. 22.3.2019 12:15
„Konur þurfa að fá A plús í prófinu til að fá einkunnina C mínus“ Kristín Ástgeirsdóttir sagði frá starfi og árangri Kvennalistans á Íslandi á sérstökum hliðarviðburði á kvennanefndarfundi Sameinuðu þjóðanna í síðustu viku. Viðburðurinn var haldinn á vegum Íslandsdeildar Norræns nets kvenna í friðarumleitunum og fór fram fyrir fullu húsi í New York. 21.3.2019 15:00
Sýrlenskur flóttadrengur á stjörnuhimni Cannes Æska Zain Al Rafeaa sem flóttadrengs í Beirút var honum innblástur í aðalhlutverki verðlaunamyndarinnar Capernaum sem skaut honum upp á stjörnuhimininn í Cannes og jafnvel lengra. Þannig hefst frásögn á vef Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna sem segir frá ferðalagi ungs flóttadrengs frá Sýrlandi frá götum Beirút á rauða dregilinn í Cannes. 21.3.2019 11:30
Neyðarsjóður SÞ leggur fram fjármagn til hamfarasvæðanna í sunnanverðri Afríku Óttast er um afdrif þúsunda íbúa þriggja ríkja í sunnanverði Afríku eftir hamfarirnar af völdum fellibylsins Idai í lok síðustu viku. Mark Lowcock mannúðarstjóri Sameinuðu þjóðanna tilkynnti í morgun að Neyðarsjóður SÞ (CERF) myndi leggja fram 20 milljónir bandarískra dala til hjálparstarfs á neyðarsvæðunum. 20.3.2019 13:30
Fátækir greiða hærra verð fyrir vatn en ríkir Rúmlega tveir milljarðar jarðarbúa hafa ekki aðgang að hreinu drykkjarvatni. Tvöfalt fleiri, 4,3 milljarðar, hafa ekki aðgang að viðunandi salernis- og hreinlætisaðstöðu. Árleg stöðuskýrsla um vatnsmálin í veröldinni frá Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) var birt í dag. 19.3.2019 13:45
Mörg barnanna þekkja ekkert annað en stríð Alþjóðasamfélagið verður að draga til ábyrgðar alla þá sem hafa framið gróft ofbeldi gegn börnum í Sýrlandi í þessu grimmilega stríði, segir Helle Thorning-Schmidt, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children. 19.3.2019 09:30
Næstu tíu ár lykilár í örlögum komandi kynslóða Ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna afhenti ríkisstjórninni aðgerðaráætlun á fundi sem haldinn var á föstudag. Í aðgerðaráætluninni eru fimm verkefni sem unga fólkið telur mikilvæg við innleiðingu stjórnvalda á heimsmarkmiðunum. 18.3.2019 09:30
Rúmlega tvö hundruð milljóna króna framlag Íslands vegna átakanna í Sýrlandi Fulltrúi Íslands á Sýrlandsráðstefnunni, sem lauk í gær, ítrekaði fyrirheit stjórnvalda frá síðasta ári um 225 milljóna króna framlag til mannúðarstarfa á þessu ári, í tengslum við átökin í Sýrlandi og 250 milljóna króna framlag á næsta ári. Rúmlega fimm og hálf milljón Sýrlendinga hafa neyðst til að yfirgefa heimili sín og flýja til nágrannaríkja á þeim átta árum sem átökin hafa staðið yfir. 15.3.2019 14:15
Reyna að afstýra ofbeldi gegn kvenframbjóðendum Utanríkisráðuneytið hefur gegnum sendiráðið í Lilongwe í Malaví ákveðið að veita tæplega fimm milljóna króna viðbótarstuðning við 50:50 herferðina í Mangochi héraði, samstarfshéraði Íslendinga í þróunarsamvinnu. Markmiðið er að afstýra ofbeldi gegn kvenframbjóðendum í kosningabaráttunni fyrir þing- og sveitarstjórnakosningar í vor. 14.3.2019 14:15
Yfir 80% framlaga til þróunarsamvinnu styðja jafnrétti kynjanna Ísland er í þriðja sæti á nýbirtum lista DAC, þróunarsamvinnunefndar OECD, um hlutfall þróunarfjár sem rennur til jafnréttismála. Tölurnar eru frá árunum 2016 og 2017 og samkvæmt greiningu DAC nýttust rúmlega 80 prósent íslenskra framlaga í baráttuna fyrir kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna. 14.3.2019 09:45
Nemendur frá fimmtán löndum útskrifast frá Sjávarútvegsskólanum Í gær útskrifuðust 24 nemendur frá Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, þar af níu konur. Nemendurnir koma frá 15 löndum í Eyjaálfu, Asíu, Afríku, Mið-Ameríku og Karíbahafi. 13.3.2019 15:30
Forsætisráðherra fer fyrir sendinefnd Íslands á fundi kvennanefndar SÞ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og aðrir norrænir ráðherrar jafnréttismála á Norðurlöndunum afhentu Phumzile Mlambo-Ngcuka framkvæmdastjóra UN Women viljayfirlýsingu um að leggja áherslu á árangur í jafnréttismálum við innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Viljayfirlýsingin var afhent við upphaf 63. fundar kvennanefndarinnar SÞ í New York í gær. 12.3.2019 11:00
Fánar í hálfa stöng hjá stofnunum Sameinuðu þjóðanna Að minnsta kosti 22 starfsmenn Sameinuðu þjóðanna voru í Boeing þotunni sem fórst í Eþíópíu í gær. Flugleiðin á milli Addis Ababa í Eþíópíu og Næróbí í Kenía er mikið notuð af starfsfólki Sameinuðu þjóðanna og starfsfólki alþjóðlegra samtaka sem sinna mannúðar- og þróunarmálum. 11.3.2019 13:00
Nánast óbreytt atvinnuþátttaka kvenna og karla síðustu þrjá áratugi Hlutfall atvinnuþátttöku karla og kvenna í heiminum hefur nánast staðið í stað síðustu þrjá áratugi, samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóða vinnumálastofnunarinnar. Á síðasta ári voru 45% kvenna eldri en fimmtán ára í launuðu starfi samanborið við 71% karla. 8.3.2019 11:30
„Ég var svo spennt þegar ég fékk fyrstu launagreiðsluna!" Aleeza Hafeez hlaut starfsþjálfun hjá UN Women í Pakistan á vegum verkefnis sem miðar að því að styrkja stöðu kvenna sem starfa í fataverksmiðjum. Í dag hefur hún umsjón með tveimur deildum innan verksmiðjunnar og notar tekjurnar til að sjá fyrir fjölskyldu sinni ásamt föður sínum. 7.3.2019 10:15
Ráðherra stýrði árlegum samráðsfundi NB8 ríkjanna með forseta Alþjóðabankans Jarðhiti, málefni hafsins, jafnréttismál og mannréttindi voru til umræðu á tvíhliða fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Kristalina Georgieva, starfandi forseta Alþjóðabankans í gær. Einnig var rætt um fyrirhugaða stjórnarsetu Íslands í bankanum fyrir hönd kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja til næstu tveggja ára. 6.3.2019 10:00
Verðandi forseti Alþjóðabankans á fundi með ráðherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, fundaði með David Malpass, aðstoðarfjármálaráðherra Bandaríkjanna í gær. Fundinn sátu einnig ráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í kjördæmi Alþjóðabankans. 5.3.2019 11:00
Fulltrúar einkafyrirtækja í sendiför til Gana Halldór Gíslason, starfsmaður Íslandsbanka og Árdís Björk Jónsdóttir, starfsmaður Sýnar, héldu til Gana um nýliðna helgi. Sendiferðin er hluti af metnaðarfullu verkefni Rauða krossins „Brúun hins stafræna bils“ sem snýr að uppbyggingu upplýsinga- og samskiptatæknigetu afrískra landsfélaga, Rauða krossins og Rauða hálfmánans, svo þau geti sinnt hjálparstarfi á skilvirkari og árangursríkari hátt. 4.3.2019 16:30
Íslendingur opnar brugghús í Úganda Páll Kvaran, Íslendingur búsettur í Úganda, vinnur nú að því að opna brugghús þar í landi ásamt kanadískum samstarfsmanni. Páll hefur búið í Úganda í um sjö ár og unnið að beinni þróunarsamvinnu með frjálsum félagasamtökum og alþjóðastofnunum í nærri tíu ár, fyrst sem starfsnemi í íslenska sendiráðinu í Kampala. 4.3.2019 14:00
Starfandi forseti Alþjóðabankans ræðir stöðu kvenna á vinnumarkaði á málstofu í Reykjavík Kristina Georgieva, starfandi forseti Alþjóðabankans, tekur þátt í málstofu á vegum utanríkisráðuneytisins og Alþjóðabankans um stöðu kvenna á vinnumarkaði næstkomandi mánudag. Niðurstöður nýrrar skýrslu bankans benda til þess að ríki veiti konum að meðaltali 75% af réttindum karla á vinnumarkaði. 1.3.2019 16:00