Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Son setti þrennu í stórsigri Tottenham Kóreumaðurinn Heung-Min Son spilaði rétt rúman hálftíma er Tottenham tók á móti Leicester í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Eftir að hafa ekki skorað eitt einasta mark á tímabilinu hlóð Son í þrennu af bekknum og Tottenham vann öruggan 6-2 sigur. 17.9.2022 18:27
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Fram-Keflavík 4-8 | Ótrúlegur leikur í Úlfarsárdal Fram og Keflavík áttu möguleika á að enda í efri helming Bestu deildar karla en þar sem Stjarnan vann sinn leik gerðist það ekki. Það fór hins vegar svo að Keflavík vann 8-4 í einhverjum ótrúlegasta leik síðari ára í efstu deild. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. 17.9.2022 18:15
Umfjöllun og viðtöl: ÍBV-Valur 0-3 | Tíu fingur og níu tær á titlinum Valskonur gátu komið í það minnsta níu og hálfum fingri á Íslandsmeistarartitilinn með sigri gegn ÍBV í 16. umferð Bestu-deildar kvenna í knattspyrnu. Leikurinn endaði með sannfærandi 0-3 sigri þeirra rauðklæddu. 17.9.2022 18:15
Aron og félagar enn með fullt hús stiga | Jafntefli hjá Ísendingaliði Ribe-Esbjerg Aron Pálmarsson og félagar hans í Álaborg eru enn með fullt hús stiga í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta eftir sex marka útisigur gegn Skjern í dag, 28-34. 17.9.2022 17:35
Umfjöllun: Víkingur-KR 2-2 | Endurkoma gestanna minnkaði möguleika Víkinga á að verja titilinn til muna Íslandsmeistarar Víkings þurftu á sigri að halda þegar liðið tók á móti KR í lokaumferð Bestu-deildar karla áður en úrslitakeppnin tekur við. Víkingur komst í 2-0 en KR kom til baka og jafnaði 2-2 undir blálok leiksins. Mikið högg fyrir Víking sem er átta stigum á eftir toppliði Breiðabliks þegar fimm umferðir eru eftir af mótinu. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. 17.9.2022 17:33
„Þurfum að brýna stálið“ Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, var þungur á brún eftir tapið fyrir Leikni, 1-2, í fallslag í Bestu deild karla í dag. Skagamenn skoruðu öll þrjú mörk leiksins. 17.9.2022 17:27
„Þeir mega alveg vera með boltann mín vegna, því það sést hverjir vinna í lok leiks“ Adam Ægir Pálsson, sóknarmaður Keflvíkinga, lagði upp þrjú mörk og skoraði eitt í 4-8 sigri gegn Fram. 17.9.2022 17:26
„Höfum haldið haus og strákarnir eru að uppskera eftir því“ Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis, var hreykinn af sínu liði eftir sigurinn á ÍA, 1-2, á Akranesi í dag. Leiknismenn lentu undir en komu til baka og unnu leikinn, þökk sé tveimur sjálfsmörkum Skagamanna. 17.9.2022 17:14
Umfjöllun, viðtöl og myndir: ÍA - Leiknir 1-2 | Skagamenn skoruðu öll mörkin í fallslagnum Leiknir komst upp úr fallsæti Bestu deildar karla með 1-2 sigri á ÍA á Norðurálsvellinum á Akranesi í lokaumferð Bestu deildar karla í dag. Skagamenn skoruðu öll mörk leiksins. 17.9.2022 17:05
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur-KA 0-1 | Akureyringar fara á góðu skriði inn í úrslitakeppnina KA gerði góða ferð á Hlíðarenda og vann 1-0 útisigur gegn Val í Bestu deild karla í knattspyrnu í dag. Jakob Snær Árnason skoraði sigurmark KA á 75.mínútu en Akureyringar sitja nú í 3.sæti deildarinnar og eru jafnir Víkingum að stigum. 17.9.2022 17:05
Logi Tómasson: Þetta var rothögg Víkingar fengu á sig jöfnunarmark í uppbótartíma gegn KR í Bestu deild karla í dag. Jöfnunarmarkið gerir það að verkum að Víkingar eru 8 stigum á eftir Breiðablik þegar úrslitakeppnin hefst í október. Logi Tómasson, leikmaður Víkings, var gríðarlega svekktur í leikslok. 17.9.2022 16:50
„Þú lyftir engum titli fyrr en að mótið er búið“ „Ég geri ráð fyrir að fyrri hálfleikurinn hafi ekki verið mikil skemmtun. Það var hægt tempó en svo vorum við mjög sterkir í seinni hálfleik og ég er ánægður með liði að hafa klárað þennan leik. ÍBV-liðið er gott lið. Þannig þetta var bara flott,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, eftir 3-0 sigur á ÍBV í dag. 17.9.2022 16:44
Jóhann Berg lagði upp sigurmark Burnley Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í Burnley unnu góðan 2-1 sigur er liðið tók á móti Bristol City í ensku B-deildinni í kanttspyrnu í dag. Jóhann Berg kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik og lagði upp sigurmark heimamanna. 17.9.2022 16:43
Eiður Smári: „Það er bara gaman að fara til Vestmannaeyja einu sinni á ári“ FH-ingar enda 22 leikja deildarkeppni í 11. og næst neðsta sæti eftir tap gegn Stjörnunni í Garðabænum í lokaumferðinni í dag. FH-ingar fara því í neðri hluta úrslitakeppninnar og þurfa að leika einum útileik meira en flest önnur lið. Eiður Smári Guðjonhsen, þjálfari FH, sér eftir þessum auka heimaleik en FH-ingar þurfa að heimsækja ÍBV til Eyja í fyrsta leik úrslitakeppninnar. 17.9.2022 16:43
Auðveldur sigur hjá Barcelona sem er komið á toppinn Barcelona mætti Elche í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta, í dag eftir tap gegn Bayern München í Meistaradeild Evrópu í miðri viku. Lokatölur í dag 3-0 þar sem Robert Lewandowski skoraði tvívegis. 17.9.2022 16:30
Jakob Snær: Við erum alls ekki hættir „Það er alltaf sætt að skora og sérstaklega þegar mörkin telja mikið fyrir liðin. Mér fannst við vinna fyrir þessu í dag,“ sagði Jakob Snær Árnason, hetja KA-manna, en hann skoraði sigurmarkið gegn Val í Bestu deildinni í dag. 17.9.2022 16:20
Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik-ÍBV 3-0 | Blikar í kjörstöðu fyrir úrslitakeppnina Breiðablik, topplið Bestu-deildar karla í knattspyrnu, vann 3-0 sigur á móti ÍBV í lokaumferð deildarinnar. Liðið er í kjörstöðu fyrir skiptingu deildarinnar en Víkingur og KA eru átta stigum á eftir Blikum í dag. 17.9.2022 16:15
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan 2-1 FH | Stjarnan endar í efri helming og FH í fallsæti Stjarnan endar fyrsta leiktímabil Bestu-deildarinnar í 6. sæti og leikur því í efri hluta úrslitakeppninnar eftir 2-1 sigur á FH í lokaumferð deildarkeppninnar. Á sama tíma enda FH-ingar deildarkeppninna í fallsæti. Ísak Andri Sigurgeirsson skoraði bæði mörk Garðbæinga í dag. 17.9.2022 15:55
Karlarnir ekki langt frá að lenda á verðlaunapalli Íslenska karlalandsliðið í hópfimleikum endaði í fjórða sæti á Evrópumótinu í Lúxemborg þar sem úrslit mótsins fóru fram í dag. 17.9.2022 15:45
Svava Rós og Selma Sól skoruðu báðar í jafntefli Svava Rós Guðmundsdóttir og Selma Sól Magnúsdóttir skoruðu báðar þegar Brann og Rosenborg gerðu 1-1 jafntefli. Sveindís Jane Jónsdóttir hóf tímabilið á bekknum hjá Wolfsburg, Berglind Björg Þorvaldsdóttir spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir París Saint-Germain og Anna Björk Kristjánsdóttir var í liði Inter sem vann stórsigur. 17.9.2022 15:41
ÍBV vann KA/Þór með minnsta mun KA/Þór var í heimsókn í Vestmannaeyjum og mætti ÍBV í Olís-deild kvenna. Fór það svo að heimaliðið vann með minnsta mun, lokatölur 28-27. 17.9.2022 15:20
Sjáðu markið: Andri Lucas skoraði sitt fyrsta mark í Íslendingaslag Íslendingalið Norrköping gerði 2-2 jafntefli við Kalmar í sænsku úrvalsdeild karla í fótbolta í dag. Andri Lucas Guðjohnsen skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið. Alls voru fimm Íslendingar í eldlínunni í leikjunum tveimur í Svíþjóð. 17.9.2022 15:00
Heimir um að fara úr Persaflóa til Jamaíka: „Það sem er bannað þar er leyfilegt hér“ Heimir Hallgrímsson var tilkynntur sem nýr landsliðsþjálfari Jamaíka í gærkvöld, föstudag. Þetta hafði legið lengi í loftinu en í gær var tilkynnt að Heimir myndi þjálfa liðið næstu fjögur árin. 17.9.2022 14:31
Ísland nældi í silfur á EM Íslenska kvennalandsliðið í hópfimleikum endaði í öðru sæti á Evrópumótinu sem fór fram í Lúxemborg. 17.9.2022 13:50
Úlfarnir engin fyrirstaða og meistararnir komnir á toppinn Manchester City vann einkar þægilegan 3-0 sigur á Wolves í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Sigurinn lyftir Englandsmeisturunum upp á topp deildarinnar. 17.9.2022 13:30
Man United gekk frá Reading í fyrri hálfleik Manchester United vann einkar þægilegan 4-0 sigur á Reading í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildar kvenna í fótbolta í dag. 17.9.2022 13:15
1. umferð CS:GO lokið: Staðan og næstu leikir 1. umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO lauk með sigri meistaranna í Dusty á nýliðum Breiðabliks. Þór, NÚ, SAGA og Ármann unnu einnig sína leiki. 17.9.2022 13:01
Škriniar næsti varnarmaðurinn sem Real vill á frjálsri sölu Real Madríd heldur áfram að eltast við varnarmenn á frjálsri sölu. Eftir að sækja David Alaba sumarið 2021 og Antonio Rüdiger síðasta sumar þá stefnir allt í að Milan Škriniar, miðvörður Inter Milan, komi á frjálsri sölu sumarið 2023. 17.9.2022 12:36
Schröder til Lakers á ný og Westbrook gæti sest á bekkinn Leikstjórnandinn Dennis Schröder hefur samið við Los Angeles Lakers um að leika með liðinu á næstu leiktíð í NBA deildinni í körfubolta. Lakers staðfesti skiptin skömmu eftir að Schröder skoraði 30 stig í tapi Þýskalands gegn Spáni í undanúrslitum EuroBasket, Evrópumóts karla í körfubolta. 17.9.2022 12:01
Vinícius mun ekki hætta að dansa Brasilíumaðurinn Vinícius Junior, einn albesti fótboltamaður heims í dag, hefur sagt að hann muni ekki hætta að fagna mörkum sínum að hætti hússins. Vinícius segir að „gleði svarta Brasilíumanna í Evrópu“ sé á bakvið gagnrýnina á fögnum hans. 17.9.2022 11:30
Mbappé þénar mest allra árið 2022 Kylian Mbappé er tekjuhæsti knattspyrnumaður í heimi árið 2022. Hann fær 105 milljónir Bandaríkjadala [14,6 milljarðar íslenskra króna] í laun hjá París Saint-Germain ásamt því að þéna 20 milljónir Bandaríkjadala [2,8 milljarðar] í gegnum auglýsingar og því um líkt. 17.9.2022 10:46
Tekst Fram eða Keflavík að komast upp í efri hlutann? Lokaumferð hefðbundinnar deildarkeppni í Bestu deild karla í fótbolta fer fram í dag. Eftir umferð dagsins verður deildinni skipt upp og leikið um Íslandsmeistaratitilinn annars vegar og hvaða lið falla hins vegar. Töluverð spenna er fyrir umferðinni sem verður flautuð á klukkan 14.00. 17.9.2022 10:01
Gagnrýna valið á Aroni Einari: „Þetta staðfestir að nauðgunarmenning þrífst innan KSÍ og að þolendum er ekki trúað“ Aron Einar Gunnarsson var íslenska landsliðshópnum í knattspyrnu sem valinn var í gær, föstudag. Landsliðsfyrirliðinn hefur ekki spilað síðan í júní á síðasta ári þar sem mál hans og Eggert Gunnþórs Jónssonar var enn á borði ríkissaksóknara en kona ásakaði þá um að nauðga sér í Kaupmannahöfn árið 2010. Aðgerðarhópurinn Öfgar hefur tjáð sig um málið og þá hefur mikil umræða átt sér stað á samfélagsmiðlum eftir valið. 17.9.2022 09:30
„Gefur þeim ákveðið forskot á leikmenn á sama aldri í öðrum löndum“ „Ég held að fyrsta tímabilið hafi verið þegar ég var nýorðinn sextán ára,“ sagði Arnór Atlason aðspurður hvenær hann hefði byrjað að spila með meistaraflokki í handbolta. Arnór, sem er í dag aðstoðarþjálfari danska stórliðsins Álaborgar sem og danska U-20 ára landsliðið ræddi við þá Stefán Árna Pálsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson í hlaðvarpi Seinni bylgjunnar. 17.9.2022 09:01
„Þeir verða alls ekkert fallbyssufóður í vetur“ Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var skiljanlega sáttur með fyrri hálfleikinn gegn Herði enda unnu meistararnir hann, 22-9. 17.9.2022 08:31
Óttast ekki neikvæða umræðu: „Vinnum bara eftir reglum sem okkur eru gefnar“ Arnar Þór Viðarsson óttast ekki að valið á Aroni Einari Gunnarssyni í íslenska fótboltalandsliðið eigi eftir að draga óþægilegan dilk á eftir sér. 17.9.2022 08:00
Ekvador heldur HM sætinu en Síle gefst ekki upp Knattspyrnusamband Síle neitar að leggja árar í bát og ætlar að áfrýja aftur þó svo að það hafi nú þegar tapað áfrýjun og búið sé að staðfesta að Ekvador haldi sæti sínu á HM sem fram fer í Katar eftir nokkra mánuði. 17.9.2022 07:00
Dagskráin í dag: Sextán beinar útsendingar Það má með sanni segja að það sé nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Við bjóðum upp á Bestu deild karla og kvenna í fótbolta, Olís deild karla og kvenna í handbolta, Serie A og golf á þessum fallega laugardegi. 17.9.2022 06:00
Evrópuævintýri Alfons og félaga hófst gegn Val Alfons Sampsted og liðsfélagar hans í norska meistaraliðinu Bodø/Glimt hafa nú unnið 14 Evrópuleiki í röð í annað hvort Evrópu- eða Sambandsdeild Evrópu. Sigurgangan hófst þann 29. júlí 2021 er liðið lagði þáverandi Íslandsmeistara Vals 3-0. 16.9.2022 23:31
Jamaíka kynnir Heimi sem nýjan landsliðsþjálfara Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands, var í kvöld kynntur sem nýr landsliðsþjálfari karlaliðs Jamaíka. Fyrr í vikunni var svo gott sem búið að staðfesta að Heimir væri að taka við og nú hefur opinberlega verið kynntur sem næsti þjálfari liðsins. 16.9.2022 23:01
„Vandamálið var að við spiluðum í þrjátíu mínútur en ekki sextíu“ Carlos Martin Santos, þjálfari Harðar, sagði að fyrri og seinni hálfleikurinn gegn Val hefði verið eins og svart og hvítt. 16.9.2022 22:48
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Hörður 38-28 | Köstuðu ekki inn hvíta handklæðinu Valur vann stórsigur á Herði, 38-28 í Olís-deild karla í kvöld. Þetta var fyrsti leikur Ísfirðinga í efstu deild frá upphafi. 16.9.2022 22:45
Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - FH 25-25 | Bæði lið enn í leit að sínum fyrsta sigri Afturelding og FH gerðu jafntefli í Olís deild karla í kvöld. Lokatölur 25-25 sem þýðir að liðin eru enn í leit að sínum fyrsta sigri. 16.9.2022 22:15
FH taplaust í gegnum Lengjudeildina Tindastóll og FH, topplið Lengjudeildar kvenna í fótbolta gerðu 2-2 jafntefli i kvöld en bæði lið höfðu þegar tryggt sér sæti í Bestu deildinni að ári. 16.9.2022 22:01
„Ólíkt síðasta tímabili ætlum við að breyta jafnteflum í sigra í vetur“ Afturelding gerði jafntefli við FH í 2. umferð Olís deildar karla. Leikurinn var jafn og spennandi þar sem FH fékk lokasóknina en allt kom fyrir ekki og leikurinn endaði 25-25. Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, var svekktur með aðeins eitt stig. 16.9.2022 21:50
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn