Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Everton í Meistaradeildarsæti eftir að Gylfi Þór lagði upp sigurmarkið Innkoma Gylfa Þórs Sigurðssonar skipti sköpum fyrir Everton í kvöld. Íslenski miðjumaðurinn kom inn af varamannabekk liðsins og lagði upp eina mark þess í 1-0 útisigri á West Bromwich Albion í kvöld. 4.3.2021 19:55
Bubbi spenntur fyrir því að mæta í Frostaskjólið í sumar Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens stefnir á að mæta á KR-völlinn í sumar og sjá KR spila í Pepsi Max deildinni. Bubbi er að flytja á Seltjarnarnesið á nýjan leik og ætlar sér að endurnýja kynnin við KR. 4.3.2021 19:00
Ný hagsmunasamtök bestu félaga landsins í bígerð Fulltrúar tíu félaga í Pepsi Max-deild karla funduðu síðdegis í dag um að stofna ný samtök sem eiga að gæta hagsmuna félaganna í deildinni samkvæmt heimildum íþróttadeildar. 4.3.2021 18:31
Timo Werner viss um að mörkin fari að koma Timo Werner gekk til liðs við Chelsea frá RB Leipzig seinasta sumar fyrir 53 milljónir punda. Þessi þýski sóknarmaður sem skoraði 28 mörk í 34 leikjum fyrir Leipzig á seinasta tímabili, en hefur nú aðeins skorað fimm mörk í 25 leikjum fyrir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. 4.3.2021 18:00
Sara Björk kom inná í sigri Lyon Sara Björk Gunnarsdóttir spilaði seinasta hálftíman í 2-0 sigri Lyon gegn Brøndby í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Lyon var mun sterkari aðilinn og sigurinn verðskuldaður. 4.3.2021 17:01
„Þetta er besti Bale sem við höfum haft allt tímabilið“ Eftir erfiða byrjun í endurkomu Gareth Bale til Tottenham er velski sóknarmaðurinn hægt og bítandi að finna skotskónna aftur. José Mourinho segir að þegar Bale sé í topp standi geti hann spilað fyrir hvaða lið sem er. 4.3.2021 16:30
Solskjær sendi De Gea í fæðingarorlof David de Gea, markvörður Manchester United, er farinn til Spánar en eiginkona hans, poppstjarnan Edurne, á von á þeirra fyrsta barni. Dean Henderson verður því í marki United í næstu leikjum. 4.3.2021 16:01
„Áfall fyrir Guðna að koma tillögunni ekki í gegn" Kjartan Atli Kjartansson og Henry Birgir Gunnarsson fengu Atla Viðar Björnsson til sín í hlaðvarpsþáttinn Sportið í dag og þar var meðal annars rætt um þau vonbrigði íslensku knattspyrnuhreyfingarinnar að geta ekki sæst á eina leið til að fjölga leikjum í efstu deild á Íslandi. 4.3.2021 13:41
Klopp segir að þetta erfiða tímabil hafi gert hann að betri stjóra Það hefur líklega aldrei reynt meira á Jürgen Klopp en á þessu tímabili því Liverpool liðið hefur svo sannarlega lent í miklu mótlæti í titilvörninni. 4.3.2021 13:12
Leikurinn hugsanlega færður eða Íslandi sagt að taka högginu Aron Einar Gunnarsson, Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson eru á meðal þeirra sem að óvíst er að spili gegn Þýskalandi, og svo Armeníu og Liechtenstein, í fyrstu leikjunum í undankeppni HM karla í fótbolta. 4.3.2021 12:30
Bruce ýtti leikmanni Newcastle sem kallaði hann heigul Steve Bruce og Matt Ritchie lenti saman á æfingu Newcastle United þar sem Ritchie kallaði Bruce heigul. 4.3.2021 12:00
Stjórinn grínaðist með að ætla drekka alla bjóra liðsins Leikmenn Sheffield United fengu ekki að fagna sigrinum á Aston Villa í gærkvöldi því knattspyrnustjórinn Chris Wilder bannaði allt bjórþamb. 4.3.2021 11:01
Liverpool og Leipzig mætast aftur í Búdapest Seinni leikur Liverpool og RB Leipzig í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu fer fram á Puskás leikvanginum í Búdapest líkt og fyrri leikur liðanna. 4.3.2021 10:43
Solskjær vill „finna neistann á ný“ en Neville sagði United liðið ganga í svefni Gary Neville sakaði sitt lið um að ganga í svefni í markalausu jafntefli í gærkvöldi en það hefur ekki verið mikið um mörk í leikjum United að undanförnu. 4.3.2021 10:00
Haaland sagður hafa áhuga á sex félögum og Chelsea er ekki eitt af þeim Það verður sex hesta kapphlaup um undirskrift markakóngsins Erling Haaland ef marka má nýjustu fréttir frá Þýskalandi. 4.3.2021 09:32
Klopp vill banna sínum leikmönnum að fara í landsleikina í mars Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur miklar áhyggjur af því að missa leikmenn í langa sóttkví eftir að þeir koma til baka úr landsliðsferðum í lok mánaðarins. 4.3.2021 08:15
Karólína með Meistaradeildarmark í fyrsta leik með Bayern Íslenska landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði í sínum fyrsta leik með Bayern München og það í Meistaradeildinni. 4.3.2021 07:57
Vilja að Danir sniðgangi HM í Katar: „Fullt af fólki látist vegna þessa móts“ Danmörk á ekki að taka þátt í HM í Katar á næsta ári, náði þeir að tryggja sér sæti á mótinu. Þetta segir hópur stuðningsmanna Dana sem vill að þeir sniðgangi mótið. 4.3.2021 07:00
Krotuðu hatursorð til nágrannanna á lest Það verður seint sagt að það sé mikil vinátta á milli Kaupmannahafnarliðanna FCK og Bröndby en liðin mætast einmitt í dönsku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. 3.3.2021 23:01
Barcelona í úrslit spænska konungsbikarsins eftir dramatík Barcelona er komið í úrslitaleik spænska konungsbikarsins eftir 3-0 sigur á Sevilla í síðari leik liðanna í undanúrslitunum. Eftir venjulegan leiktíma var staðan 2-0 og því þurfti að framlengja. 3.3.2021 22:32
„Spurðu Real Madrid“ Jose Mourinho, stjóri Tottenham, skaut laufléttum skotum til Madrídar á blaðamannafundi Tottenham í dag er hann var spurður út í Gareth Bale. 3.3.2021 22:19
Markalaust í þokunni á Selhurst Park Crystal Palace og Manchester United gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust á Selhurst Park í kvöld. Crystal Palace fékk því fjögur stig gegn Manchester United á tímabilinu eftir 3-1 sigur í fyrri leik liðanna. 3.3.2021 22:04
AC missteig sig og sigur hjá PSG án stjarnanna AC Milan gerði 1-1 jafntefli fyrir Udinese á heimavelli í ítalska boltanum í kvöld. Blóðtaka fyrir Mílanóliðið sem er að fatast flugið í toppbaráttunni. 3.3.2021 21:53
Leicester og Villa urðu af mikilvægum stigum Burnley og Leicester gerðu 1-1 jafntefli og botnlið Sheffield United skellti Aston Villa 1-0 í tveimur af þremur leikjum kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. 3.3.2021 19:55
Glæsimark í bikarsigri Al Arabi og dramatískt jöfnunarmark Rosengård í Meistaradeildinni Al Arabi er komið í undanúrslitaleikinn í Crown Prince bikarnum í Katar eftir 4-1 sigur á Al Sailiya í átta liða úrslitunum í dag. 3.3.2021 18:52
Beckham vill bara áhugasamar stjörnur David Beckham, eigandi Inter Miami í MLS-deildinni, hefur áhuga á því að fá fleiri stjörnur til félagsins en stjörnurnar þurfa hafa áhuga á verkefninu. 3.3.2021 18:30
Kolbeinn að fá aukna samkeppni í Gautaborg og það ekki frá neinum aukvisa Það virðist vera að landsliðsmaðurinn Kolbeinn Sigþórsson fái aukna samkeppni í framherjarstöðuna hjá sænska liðinu IFK Gautaborg. 3.3.2021 18:01
„Ógleymanlegur dagur“ þegar Pelé var bólusettur Brasilíski fótboltasnillingurinn Pelé var bólusettur fyrir kórónuveirunni í gær. 3.3.2021 17:01
Segir að ef hann verði ekki kosinn forseti fari Messi frá Barcelona Joan Laporta segir að ef einhver annar en hann verði kosinn forseti Barcelona fari Lionel Messi frá félaginu í sumar. 3.3.2021 16:00
Solskjær segir að Man Utd verði að sýna ábyrgð og raunsæi í peningamálunum Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur varað stuðningsmenn félagsins við því að búast við einhverju eyðslufylleri í nýja leikmenn í sumar. 3.3.2021 14:00
Pep tjáði sig um Bartomeu: Saklaus þar til dómstólarnir sanna annað Pep Guardiola, fyrrverandi knattspyrnustjóri Barcelona og núverandi stjóri Manchester City, segist fylgjast með því sem er að gerast hjá Barcelona. 3.3.2021 13:30
Liverpool menn yfir þúsund daga á meiðslalistanum Englandsmeistarar Liverpool eru langefstir á listanum yfir meiðsli leikmanna í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. 3.3.2021 12:30
Malasískur prins vill kaupa Valencia Stuðningsmenn spænska fótboltafélagsins vilja fá nýjan eiganda til að rífa upp félagið og sá gæti komið úr einni af konungsfjölskyldum heimsins. 3.3.2021 12:01
Pep segir að City-liðið hafi komist í gegnum helvíti Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, er áfram varkár í yfirlýsingum sínum þrátt fyrir að lið hans hafi í gær náð fimmtán stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. 3.3.2021 10:30
Karlrembukveðja á vegg þjálfarans blasti við í sjónvarpsviðtali Norðmenn eru mjög hneykslaðir á forráðamönnum knattspyrnufélagsins Brann vegna skilaboða sem norska þjóðin fékk í gegnum sjónvarpið með morgunmatnum sínum. 3.3.2021 09:30
„Hann er hrifinn af Manchester United en vill komast til Klopp hjá Liverpool“ Orðrómurinn um Kylian Mbappe og Liverpool verður bara sterkari og sterkari en miklar líkur er á því að franski framherjinn yfirgefi Paris Saint Germain í sumar. 3.3.2021 08:01
Pep Guardiola: Manchester United er það eina sem ég er að hugsa um núna Pep Guardiola vildi lítið ræða ótrúlegu sigurgöngu Manchester City eftir 4-1 sigur liðsins á Wolverhampton Wanderers í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. 2.3.2021 22:46
Sancho skaut Dortmund áfram Borussia Dortmund vann 0-1 útisigur Borussia Mönchengladbach í 8-liða úrslitum þýska bikarsins í kvöld. 2.3.2021 22:21
Sigurganga Manchester City heldur áfram Manchester City hefur nú leikið 28 leiki í röð án þess að bíða ósigur en liðið vann Wolverhampton Wanderers 4-1 í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Þá hefur City-liðið unnið 21 leik í röð. 2.3.2021 21:55
Varamennirnir komu Juventus á bragðið Ítalíumeistarar Juventus átti í vandræðum með nýliða Spezia framan af leik liðanna í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni, í kvöld. Það fór þó svo að Juventus vann 3-0 sigur og heldur í vonina um að vinna deildina tíunda árið í röð. 2.3.2021 21:40
Jón Daði byrjaði í dramatískum sigri og Jökull hélt hreinu Fjöldi leikja fór fram í ensku neðri deildunum í kvöld. Jón Daði Böðvarsson var í eldlínunni er Millwall vann Preston 2-1 í ensku B-deildinni. Sömu sögu er að segja af Jökli Andréssyni sem lék allan leikinn í markalausu jafntefli Exeter City gegn Walsall. 2.3.2021 21:06
Ísak Óli líklega á förum frá SønderjyskE Svo virðist sem varnarmaðurinn Ísak Óli Ólafsson sé á förum frá danska úrvalsdeildarfélaginu SønderjyskE áður en langt um líður. 2.3.2021 20:36
Kom inn af bekknum og skoraði Birkir Bjarnason skoraði fyrra mark Brescia er liðið vann 2-0 sigur á Cosenza í Serie B á Ítalíu í kvöld. 2.3.2021 20:11
Segir vonbrigði sumra liða hafa verið það mikil að hann telji að menn hafi ekki kosið málefnalega Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, telur að ekki hafi verið um málefnalegar kosningar að ræða á ársþingi knattspyrnusambands Íslands um helgina þar sem tillaga um fjölgun leikja í efstu deild karla náði ekki í gegn. 2.3.2021 18:31
Liverpool og United hafa áhuga á staðgengli Bruno Fernandes Þó að Bruno Fernandes hafi frá fyrsta degi orðið lykilmaður hjá Manchester United við komuna frá Sporting Lissabon hefur portúgalska félagið spjarað sig afar vel án hans. Staðgengill hans hefur raunar komið að fleiri mörkum en Fernandes hafði gert á síðustu leiktíð. 2.3.2021 17:45