Fleiri fréttir

Alonso skammaði Massa

Heimsmeistarinn Fernando Alonso vandaði Brasilíumanninum Felipe Mass ekki kveðjurnar í dag eftir að hann landaði sigrinum í Þýskalandskappakstrinum í Formúlu 1 á Nurburgring. Alonso skammaði Massa fyrir glæfralegan akstur í æsilegu einvígi þeirra um sigurinn.

Alonso sigraði í æsilegri keppni á Nurburgring

Heimsmeistarinn Fernando Alonso á McLaren sigraði með glæsibrag í Þýskalandskappakstrinum í Formúlu 1 í dag og saxaði þar með forskot félaga síns Lewis Hamilton niður í tvö stig í keppni ökumanna. Lewis Hamilton lenti í vandræðum og þurfti að sætta sig við að ná ekki á verðlaunapall í sinn á tímabilinu.

Hamilton vongóður um að keppa á morgun

Bretinn Lewis Hamilton er vongóður um að geta ekið fyrir McLaren í Þýskalandskappakstrinum á morgun þrátt fyrir að hafa verið fluttur á sjúkrahús í dag eftir árekstur í tímatökunum. Forráðamenn McLaren liðsins taka í sama streng eftir að í ljós kom að meiðsli ökuþórsins voru ekki eins alvarleg og óttast var í fyrstu.

Raikkönen á ráspól - Hamilton á sjúkrahús

Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen verður á ráspól í þýska kappakstrinum á Nurburgring í Formúlu 1 á morgun eftir að hann náði besta tímanum í tímatökum í dag. Lewis Hamilton ók út af brautinni og var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa klesst bíl sinn. Fernando Alonso hjá McLaren náði öðrum besta tímanum og Felipe Massa félagi Raikkönen á Ferrari þriðja.

Hamilton vonsvikinn að mæta ekki Schumacher

Breski nýliðinn Lewis Hamilton hefur viðurkennt að hann sé mjög vonsvikinn yfir hann muni aldrei fá tækifæri til að keppa við Michael Schumacher í formúlunni. Schumacher varð sjö sinnum heimsmeistari í íþróttinni, og sigraði 91 sinnum á 15 ára ferli. Schumacher hætti svo í fyrra, áður en Hamilton keppti í sinni fyrstu keppni.

Engin Formúla í Bandaríkjunum á næsta ári

Formúlumógúllinn Bernie Ecclestone hefur tilkynnt að ekki verði keppt í Indianapolis í Bandaríkjunum á næsta ári. Ecclestone er einráður þegar kemur að auglýsingasamningum í Formúlu 1 og segir hann að slitnað hafi upp úr viðræðum við Bandaríkjamenn um mótshald á næsta ári. "Við náðum ekki samningum - við skulum sjá hvort við söknum Bandaríkjanna á næsta ári," sagði Ecclestone í samtali við Reuters í dag.

Hamilton: Ég verð að herða mig

Breska ungstirnið Lewis Hamilton hjá McLaren í Formúlu 1, segir að hann verði greinilega að herða sig í næstu keppnum í kjölfar þess að Kimi Raikkönen hjá Ferrari vann sína aðra keppni í röð á Silverstone í gær.

Raikkönen á sigurbraut

Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen hjá Ferrari vann í dag sinn annan sigur í röð í Formúlu 1 þegar hann kom fyrstur í mark í Silverstone kappakstrinum á Englandi. Hann gerði þar með út um vonir hins unga Lewis Hamilton um að landa sigri á heimavelli í sinni fyrstu keppni þar.

Hamilton á ráspól á heimavelli

Breska ungstirnið Lewis Hamilton hjá McLaren heldur áfram að stimpla sig inn í metabækurnar í Formúlu 1 og í dag náði hann besta tíma í tímatökunum fyrir breska kappaksturinn á Silverstone-brautinni á morgun.

Hamilton bjartsýnn á heimavelli

Breska ungstirnið Lewis Hamilton hjá McLaren liðinu í Formúlu 1 segist fullviss um að hans menn geti endurheimt yfirburði sína í breska kappakstrinum á Silverstone um helgina. Ferrari stal loksins senunni á Magny-Cours um síðustu helgi og náðu ökumenn liðsins fyrsta og öðru sæti.

Alonso: Ég get náð Hamilton

Heimsmeistarinn Fernando Alonso segist vel geta náð félaga sínum Lewis Hamilton hjá McLaren í stigakeppni ökuþóra í Formúlu 1, þú breska ungstirnið hafi á hann 14 stiga forystu það sem af er mótinu.

Hamilton spenntur fyrir næstu helgi

Lewis Hamilton segir það vera frábæra tilfinningu að vita það að hann sé stigahæsti ökuþórinn á tímabilinu þegar hann tekur þátt í breska kappakstrinum í Silverstone um næstu helgi.

Raikkonen sigraði í Frakklandi

Finninn Kimi Raikkonen sigraði í Frakklandi í dag á Magny-Course brautinni. Raikkonen sem ekur fyrir Ferrari kom í mark á undan félaga sínum hjá Ferrari, Felipe Massa, en sá hafði byrjað fremst á ráslínu í dag. Breski nýliðinn, Lewis Hamilton, endaði í þriðja sæti.

Sjá næstu 50 fréttir