Fleiri fréttir

Solo verður sóló

Enn berast fregnir úr Star Wars-heimum. Auk nýju myndarinnar, sem stefnt er á að frumsýna árið 2015, stendur til að gera sérstakar myndir um þá Han Solo og Boba Fett.

Wiig í Anchorman 2

Kristin Wiig bætist við stórkostlegan leikarahóp Anchorman: The Legend Continues.

Siðferðislega rangar sögur

"Það er allt á fullu núna enda styttist óðum í frumsýningu,“ segir Bergþóra Kristbergsdóttir, formaður leikfélags Borgarholtsskóla sem frumsýnir leikritið Grimmd í Tjarnarbíó á morgun.

Dogma endurgerð af Chuck Norris-mynd

Kvikmyndin Zero Dark Thirty segir frá leit Bandaríkjahers að Osama bin Laden, leiðtoga al-Kaída. Myndin er tilnefnd til fimm Óskarsverðlauna og verður frumsýnd annað kvöld.

Stelpurnar í Girls mæta í kvöld

Önnur þáttaröð af frumlegu gamanþáttaröðinni Girls hefst á Stöð 2 í kvöld. Stelpurnar í Girls hafa slegið í gegn með sínum hráa húmor og þykja ferskur andblær.

Fullmótuð heild ógerðra verka

Ógerðu verkin nefnist sýning myndlistarmannsins Þórodds Bjarnasonar í Safnaskálanum á Akranesi. Sýningin er óvenjuleg að því leyti að hún samanstendur af verkum sem enn hafa ekki verið fullkláruð.

Flýgur heim til að taka þátt í Vetrarhátíð

Eðvarð Egilsson, betur þekktur sem Eddi í Steed Lord, mun koma heim til Íslands til að taka þátt opnunaratriði Vetrarhátiðar, en hann er búsettur í Los Angeles þar sem gerir það gott með hjómsveitinni Steed Lord. Eddi mun vinna með listamanninum Marcos Zotes, en hann vakti mikla athygli fyrir myndir sem hann varpaði á Hallgrímskirkju á Vetrarhátið í fyrra.

Fjölmennt á stærstu myndlistarsýningu Íslands

Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær á Kjarvalsstöðum á stærstu myndlistarsýningu sem haldin hefur verið hér á landi. Sýningin, sem ber heitið Flæði, var sett upp í tilefni af 40 ára afmælisári Kjarvalsstaða en markmiðið er að draga allan almennan safnkost safnsins fram úr geymslunum og sýna hann.

Milljarður í bresk bíóhús

Þrátt fyrir að sífellt fleiri nálgist kvikmyndir á netinu námu miðasölutekjur bíóa í Bretlandi meira en milljarði punda, eða 200 milljörðum íslenskra króna, árið 2012.

Heilluð af fangelsum

"Ég hef alltaf verið mjög heilluð af fangelsum,“ segir Þóra Tómasdóttir, ritstjóri tímaritsins Nýs lífs og umsjónarmaður útvarpsþáttanna Inni ásamt myndlistarmanninum Arnari Ásgeirssyni.

Tobba Marinós ritar sjálfsævisögu sína

Er sest við skriftir og leggur nú til atlögu við fjórðu bók sína, lauflétta sjálfsævisögu sem Tobba stefnir á að senda frá sér fyrir sumarið. Hún hefur áður skrifað bækurnar Makalaus, Dömusiðir og Lýtalaus.

Seldi Adam Sandler handrit að bíómynd

Kvikmyndagerðamaðurinn Gestur Valur Svansson hefur selt leikaranum Adam Sandler handrit sitt að kvikmynd. Samningar voru undirritaðir í gær og Gestur Valur er mjög sáttur með sinn hlut. Þetta er hans fyrsta bíómynd í fullri lengd.

Konur aðeins 9% leikstjóra

Aðeins 9% af þeim leikstjórum sem áttu 250 tekjuhæstu bíómyndirnar í Hollywood árið 2012 voru konur. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Rannsóknarmiðstöð kvenna í sjónvarpi og kvikmyndum í Bandaríkjunum gerði. Þrátt fyrir þessa lágu prósentutölu jókst fjöldi kvenna um 4% frá árinu á undan. Ef teknir eru saman allir leikstjórar, framleiðendur, handritshöfundar, kvikmyndatökumenn og klipparar var fjöldi kvenna 18%. Í könnuninni kom einnig fram að konur væru líklegri til að vinna við heimildarmyndir, dramamyndir og teiknimyndir.

Gerðu hryllingskitlu í Haukadal

Kynningarkitla, eða "teaser“, úr íslensku ráðgátu- og hryllingsmyndinni Ruins hefur verið frumsýnd á síðunni Ruinsthemovie.com.

Saga sem hefur fallið í gleymskunnar dá

"Við erum búin að vanda okkur mjög mikið. Það er mikil ábyrgð að gera þessari sögu skil,“ segir Grímur Hákonarson, leikstjóri heimildarmyndarinnar Hvells.

Leikur á móti sjálfum sér

"Ég kom mér sjálfur inn í þættina með því að stinga upp á að ég léki sjálfan mig að hitta tvíburabróður minn,“ segir leikarinn og tónlistarmaðurinn Björn Jörundur Friðbjörnsson. Hann leikur í þriðju seríu sjónvarpsþáttarins Hæ Gosi sem fer í loftið í lok mánaðarins.

Endurgerð Á annan veg sló í gegn á Sundance

"Þetta var mjög skemmtilegt og við vorum allir mjög sáttir með útkomuna," segir Sindri Páll Kjartansson, einn af framleiðendum íslensku bíómyndarinnar Á annan veg. Myndin var endurgerð á síðasta ári í Bandaríkjunum og var hún svo frumsýnd um helgina á kvikmyndhátíðinni Sundance.

Hefði ekki gefið bókina um Armstrong út

"Maður getur ekki sagt til um það hvernig maður hefði hugsað fyrir sjö árum, en ég hefði að öllum líkindum ekki gefið út bók eftir mann sem er stimplaður svindlari, þá hefur bókin auðvitað misst allan trúverðugleika," segir Rúnar Helgi Vignisson, dósent í ritlist við Háskóla Íslands og útgefandi bókarinnar Þetta snýst ekki um hjólið eftir Lance Armstrong. Rúnar Helgi lýsti því yfir á Facebook að hann hefði aldrei gefið bókina út hefði honum verið kunnugt um lyfjaneyslu hjólreiðakappans.

Ræður því nú sjálfur á hvaða fjöll hann fer

Arnar Jónsson leikari er sjötugur í dag. Þetta eru talsverð tímamót fyrir hann því lögum samkvæmt hættir hann nú störfum sem fastráðinn leikari hjá Þjóðleikhúsinu eftir langan og giftusamlegan feril. Hann er þó ekki á þeim buxunum að setjast í helgan stei

Selja íslenskan raunveruleikaþátt úr landi

"Þetta er í fyrsta sinn sem við seljum íslenskt format að skemmtiefni á borð við þetta úr landi," segir Kjartan Þór Þórðarson, framkvæmdastjóri Sagafilm, sem gekk nýlega frá sölu á raunveruleikaþáttunum Hannað fyrir Ísland til meðal annars Bretlands, Írlands og Norðurlandanna.

Borgað fyrir að hanga

"Ég viðurkenni að fyrst þegar ég prófaði þetta fékk ég smá fiðring en ég treysti strákunum á sviðinu vel svo það er ekkert að óttast," segir leikarinn Guðjón Davíð Karlsson sem þarf að fara út fyrir þægindarammann er hann tekst á við hlutverk sótarans Berts í leikritinu Mary Poppins.

Umhverfislist og málningadropar í Hafnarhúsinu

Tvær sýningar opna í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi í dag klukkan fjögur. Annars vegar sýning á verkum Roberts Smithsons, eins áhrifamesta myndlistamanns á síðari hluta 20. aldar og hins vegar sýning Ívars Valgarðssonar.

XL er saga alkóhólískrar þjóðar

"Maður hefði getað tekið mynd um stjórnmálamann og alkóhólista og gert leiðinda Bergman-drama sem enginn hefði nennt að horfa á," segir hann. "Í staðinn vildi ég gera hálfgerða "aksjón"-mynd úr þessu þar sem alltaf er eitthvað í gangi," segir leikstjórinn Marteinn Þórisson.

Spagettívestri sem fjallar um erfiða sögu Bandaríkjanna

Kvikmyndin Django Unchained er frumsýnd í kvikmyndahúsum annað kvöld. Myndin er sú nýjasta frá leikstjóranum Quentin Tarantino, en hann skrifar einnig handritið. Tarantino endurnýjar hér samstarf sitt við leikarana Christoph Waltz og Samuel L. Jackson.

Of mikil frekja til að verða leikari

Egill Heiðar Anton Pálsson er einn okkar best menntaði og víðförlasti sviðslistamaður. Hann hefur starfað sem leikstjóri víða um Evrópu, er prófessor í leikstjórn við Statens Teaterskole í Kaupmannahöfn, kennir við Listaháskóla Íslands og leikstýrði eigin leikgerð af kvikmynd eftir Kaurismäki hjá LA í haust. Hann er nú í Berlín að setja upp sýningu sem tengist matarást Leonardos da Vinci.

Gamanleikur með broddi

Í leikritinu Nanna systir koma upp málefni á borð við barnaníðinga, kvótamál, eignahlut í litlum plássum og presta. "Verkið sló í gegn árið 1996 og var einnig sýnt í Þjóðleikhúsinu sama ár. Þetta er skemmtilegt verk sem ég tel eiga erindi við samfélagið í dag," segir Rúnar Guðbrandsson leikstjóri.

Tengdir fjölskylduböndum

Kvikmyndirnar Amour og The Intouchables eru framlög Austurríkis og Frakklands til Óskarsverðlaunanna í ár. Aðalleikarar myndanna, Jean-Louis Trintignant og François Cluzet, eru tengdir fjölskylduböndum. Cluzet á soninn Paul með Marie Trintignant, dóttur Jean-Louis. Marie var þekkt leikkona og leikstjóri en lést eftir að kærasti hennar, franski söngvarinn Bertrand Cantat, hafði barið hana ítrekað í höfuðið eftir rifrildi.

Amour frumsýnd á Íslandi annað kvöld

Kvikmyndin Amour er fimmta myndin í sögunni sem er bæði tilnefnd sem besta mynd og sem besta erlenda mynd á Óskarsverðlaunahátíðinni. Hún er einnig tilnefnd fyrir leikstjórn, handrit og aðalleikkonu. Hún segir frá Georges, sem þarf að endurmeta framtíð sína þegar eiginkona hans veikist mjög alvarlega.

Keppa í snjóskúlptúrakeppni í BNA

Hálfdan Pedersen og Sara Jónsdóttir eru meðlimir í Snjóhöggvurum Íslands. Þrátt fyrir litla reynslu munu þau taka þátt í snjóskúlptúrakeppni í Colorado.

Lincoln með 10 Bafta-tilnefningar - Bond með átta

Lincoln fékk flestar tilnefningar til bresku Bafta-verðlaunanna, eða tíu talsins, þar á meðal fyrir bestu myndina og besta leikarann, Daniel Day-Lewis. Athygli vekur að leikstjóri myndarinnar, Steven Spielberg, hlaut ekki tilnefningu sem besti leikstjórinn.

Leikið með tímann

Tíminn er viðfangsefni sýningarinnar Stundarbrot sem frumsýnd verður á Nýja sviði Borgarleikhússins í kvöld. Leifur Þór Þorvaldsson, höfundur og leikstjóri verksins, segir vangaveltur um tímann vekja upp spurningar um líf og dauða.

Framhaldið af Breaking Dawn verst allra - Razzie tilnefningarnar í heild sinni

Líklegt þykir að framhald myndarinnar The Twilight Saga: Breaking Dawn fái flest verðlaunin á Razzie verðlaunahátíðinni sem fram fer í næsta mánuði. Þetta eru umdeild hlutskipti því að um er að ræða skammarverðlaun fyrir verstu mynd. Búið er að kynna tilnefningar en myndin er tilnefnd í flokknum Versta mynd, versti leikari, versta leikkona og versti leikstjóri svo dæmi séu tekin. Óskarsverðlaunin verða svo afhent nokkrum dögum eftir að Razzie verða afhent, en tilnefningar til þeirra verðlauna verða kynntar á morgun.

Tíu heitustu kvikmyndirnar 2013

Margar áhugaverðar kvikmyndir eru væntanlegar frá Hollywood árið 2013. Eins og oft áður eru framhaldsmyndir áberandi, þar á meðal Hangover Part III og sjötta Súperman-myndin.

Sjá næstu 50 fréttir