Tíska og hönnun

Tískan við þing­setningu: Hverjir voru í hverju?

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Þingmenn klæddu sig upp fyrir þingsetningu.
Þingmenn klæddu sig upp fyrir þingsetningu. SAMSETT

Á hverju hausti mæta þingmenn landsins í sínu fínasta pússi til þingsetningar og var dagurinn í dag engin undantekning þar á. Tískuunnendur bíða gjarnan spenntir eftir því að sjá hvaða klæðnað embættismenn velja fyrir tilefnið. 

Halla Tómasdóttir forseti setti alþingi í fyrsta sinn klædd í drapplitaðan jakka frá merkinu ROFA úr versluninni Hjá Hrafnhildi og buxur í sömu litapallettu með klút við.

Séra Guðrún Karls Helgudóttir biskup var í opnum háhæluðum skóm við embættisklæðnaðinn.

Þetta er í fyrsta sinn sem bæði forseti og biskup eru konur samtímis hérlendis og má því segja að þetta hafi verið söguleg stund. 

Guli liturinn er áberandi í formi til dæmis blóms eða klúts hjá embættismönnum í dag enda guli dagurinn í dag, þar sem allir sem geta eru hvattir til að taka þátt með því að klæðast gulu og sýna þannig stuðning við geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir. 

Þá vakti bleiki liturinn sömuleiðis athygli enda sker hann sig úr hinni hefðbundnu litapallettu Íslendinga. Lilja Alfreðsdóttir klæddist ljósbleikum Yeoman kjól, Bryndís Haraldsdóttir skartaði bleikri dragt og Jóhann Páll Jóhannsson var með bleikt bindi. 

Jakob Frímann og Tómas Tómasson hjá Flokki fólksins báðir í köflóttum jakkafötum og Jóhann Páll hjá Samfylkingunni í brúnum jakka fyrir miðju með bleikt bindi.Vísis/Vilhelm
Guðmundur Ingi félags-og vinnumarkaðsmálaráðherra og formaður Vinstri grænna í gulri skyrtu við svört jakkaföt, Sigurður Ingi fjármálaráðherra og formaður Framsóknarflokksins í dökkum jakkafötum með gult blóm.Vísir/Vilhelm
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar í dökkblárri dragt og Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, í rauðum kjól með rauða lokka í lit flokksins hennar og brúnum hælaskóm við.Vísir/Vilhelm
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir hjá Viðreisn í grænni satínskyrtu við svartan kjól og svarta hæla. Sigmar Guðmundsson hjá Viðreisn var í dökkbláum jakkafötum. Ingibjörg Ólöf Isaksen hjá Framsókn klæddist brúnum, hvítum og svörtum kjól. Vísir/Vilhelm
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra og alþingismaður Sjálfstæðisflokksins klæddist í dökk jakkaföt við ljósblátt belti.Vísir/Vilhelm
Inga Sæland í svörtu og hvítu og Eyjólfur Ármannsson í dökkbrúnum jakkafötum með bindi og í skóm í stíl. Bæði eru þau hjá Flokki fólksins. Guðmundur Ingi Kristinsson fyrir miðju er hjá sama flokki og klæddist dökkbláum jakkafötum við rautt bindi.Vísir/Vilhelm
Jódís Skúladóttir þingmaður Vinstri grænna klæddist blómadragt við bláa skyrtu.Vísir/Vilhelm
Orri Páll Jóhannsson hjá Vinstri grænum í dökkum jakkafötum með gult bindi og Þórunn Sveinbjarnadóttir hjá Samfylkingunni í appelsínugulum jakka.Vísir/Vilhelm
Bjarkey Olsen hjá Vinstri grænum í sumarlegum síðkjól, ljósum jakka og svörtum skóm. Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir aftan í íslenska þjóðbúningnum.Vísir/Vilhelm
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-og nýsköpunarráðherra og þingmaður hjá Sjálfstæðisflokknum klæddist bláum kjól við ljósan ullarjakka og í ljósum hælaskóm. Willum Þór heilbrigðisráðherra og þingmaður hjá Framsókn klæddist dökkbláum jakkafötum með gult og blátt bindi og gult blóm.Vísir/Vilhelm
Miðflokksmennirnir Bergþór Ólason og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í bláum jakkafötum, Bergþór með gult bindi og Sigmundur með blátt.Vísir/Vilhelm
Bryndís Haraldsdóttir hjá Sjálfstæðisflokknum er óhrædd við litina og klæddist skærbleikri dragt við rauða skó. Ragna Árnadóttir til hægri skrifstofustjóri Alþingis og fyrrverandi dómsmálaráðherra í gulum rúllukragabol við svarta pilsadragt.Vísir/Vilhelm
Njáll Trausti Friðbergsson hjá Sjálfstæðisflokknum og Stefán Vagn Stefánsson og Þórarinn Ingi Pétursson hjá Framsókn voru í hópi þeirra sem skörtuðu gulu blómi.Vísir/Vilhelm
Lilja Alfreðsdóttir viðskipta- og menningarmálaráðherra og þingmaður Framsóknar í bleikum Yeoman kjól með gult blóm. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins klæðist drapplituðu ullarpilsi og ullarpeysu í stíl.Vísir/Vilhelm
Ásthildur Lóa Sturludóttir hjá Flokki fólksins í dökkblárri dragt.Vísir/Vilhelm
Oddný G. Harðardóttir fyrrverandi ráðherra og þingmaður Samfylkingarinnar í svörtum og hvítum mynstruðum kjól í svörtum skóm. Guðbrandur Einarsson hjá Viðreisn í dökkgráum jakkafötum með bleiktóna bindi í brúnum skóm.Vísir/Vilhelm
Berglind Ósk Guðmundsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins í einkennislitunum, bláum kjól, og Teitur Björn Einarsson, Sjálfstæðisflokknum, í dökkbláum jakkafötum við brúna skó með rautt bindi.Vísir/Vilhelm

Tengdar fréttir

Tískan við þingsetningu: Litagleði og munstur

Þingmenn mættu prúðbúnir til þingsetningar í dag þegar Guðni Th. Jóhannesson forseti setti Alþingi. Ljósmyndari á vegum Vísis var á staðnum og myndaði þingmenn.

Bjarkey stal senunni á fyrsta ríkisstjórnarfundi Bjarna

Ný ríkisstjórn Bjarna Benediktsonar kom saman á sínum fyrsta ríkisstjórnarfundi í morgun. Ríkisstjórnin var kynnt á þriðjudaginn og lyklaskipti fóru fram á miðvikudagsmorgun. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir nýr matvælaráðherra skartaði rauðri blússu og svörtu pilsi í tilefni dagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×