Fleiri fréttir
Sjá næstu 50 greinar
Skrælingjadraumar Karen Kjartansdóttir skrifar Grænland er spennandi draumaland á hverfanda hveli í bókstaflegri merkingu. Þegar ég var yngri blundaði í mér draumur um að kynnast grænlenskum veiðimanni og njóta ásta með honum í snjóhúsi á hjara veraldar á meðan vindurinn geisaði um hjarn en norðurljós dönsuðu á himni í köldum bjarma starandi stjarna. En nóg um það. Þessi draumur blundar ekki lengur í brjósti mér en hugsanlegt er að eitthvað eimi enn af honum í undirmeðvitundinni, í það minnsta hlusta ég fremur mikið á grænlensku útvarpsstöðina Kalaallit Nunaata Radioa í gegnum snjallsímann minn þótt ég skilji ekki orð (kannski er það þess vegna sem ég þoli við). 30.3.2013 06:00
Að verða illt í auðmýktinni Saga Garðarsdóttir skrifar Fyrir nokkru fór ég á fund í Valhöll um stöðu femínisma á Íslandi. Ég hafði aldrei komið í Valhöll áður og aldrei, eflaust út af einhverri verndandi töfraþulu, hitt Brynjar Níelsson, einn framsögumanna. 28.3.2013 06:00
Hún amma sko Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar Ég fékk sæti á besta stað, í sófanum við blómabeðið. Ég var mætt tímanlega sem betur fer, þökk sé ábyrgum samferðakonum mínum, sem sáu fyrir að líklega yrði þétt setinn bekkurinn. Það stóð heima, fólkið streymdi að og fyllti stofuna svo opnað var inn í borðstofuna líka. 27.3.2013 06:00
Kurteisar aðvaranir Álfrún Pálsdóttir skrifar Í síðustu viku eyddi ég nokkrum afbragðsgóðum túristadögum í Skotlandi. Það er nú varla í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að Skotland kom mér skemmtilega á óvart. Ég sá ekki einn einasta mann í skotapilsi en bruggaði mitt eigið viskí. 26.3.2013 06:00
Innleggsnóta Charlotte Böving skrifar Ég á orðið nokkurn stafla af innleggsnótum. Ýmist vegna hluta sem ég hef séð eftir því að kaupa eða gjafa sem ég hef ekki getað notað. Ég verð að viðurkenna að ég myndi mun heldur vilja fá endurgreitt. En rétturinn á peningunum er hjá verslunareigendum og ekki viðskiptavinum í þessum tilfellum. 25.3.2013 06:00
Myndin af heiminum Hildur Sverrisdóttir skrifar Það er sniðugt þegar augnablik nást á filmu sem gefa spaugilegri mynd af aðstæðum en þær kannski voru. Nýleg dæmi eru þegar tveir ráðherrar virtust sofa í þingsal, sem og sendinefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum. Ég veit ekki hvert sannleiksgildi myndanna er og það skiptir minna máli – stundum má skemmtanagildið ráða för. 23.3.2013 06:00
Nauthólsvíkin kallar Magnús Þorlákur Lúðvíksson skrifar Á mínum yngri árum leið vart sú vika þar sem móðir mín lét ekki athugasemd falla í þá veru að ég væri ekki nægilega vel klæddur. Þetta var vitaskuld gert af væntumþykju en ég lét þetta samt sem áður fara nokkuð í taugarnar á mér. Rétt eins og það þegar hún krafðist þess að fá að kreista fílapenslana mína sem og mjög tíðar spurningar um matarvenjur mínar (sorrí mamma). Raunar er móðir mín alls ekkert hætt þessum athugasemdum en ég hef að vísu lært að klæða mig örlítið betur með árunum. Ekki mikið en örlítið. 22.3.2013 06:00
Femínistar og farísear Friðrika Benónýs skrifar Nauðgunardómurinn í Steubenville og fréttaflutningur af því máli hefur skekið íslenskar Facebook-síður og kommentakerfi undanfarna daga. Skiljanlega. Það er með ólíkindum að afstaða sé tekin með ofbeldismönnunum í jafnsvakalegu máli, jafnvel þótt þeir séu góðir í fótbolta. Þetta er viðbjóðslegt mál frá upphafi til enda og vandséð hvernig í 21.3.2013 06:00
Ef væri ég hún Salome Svavar Hávarðsson skrifar Salome. Það var nafnið sem mamma og pabbi gáfu mér sumarið 1967. Um haustið, þegar ég fæddist, var ljóst að þau heiðurshjónin þyrftu að draga upp nýja áætlun. Ég var skírður eftir Svavari afa á Seyðisfirði og ég hef borið nafnið mitt með stolti. Ég man ekki eftir honum afa en frásagnir þeirra sem þekktu hann, þær duga mér. Hef ég staðið undir nafninu? Sennilega ekki. 20.3.2013 06:00
Það sem er bannað Álfrún Pálsdóttir skrifar Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið, það er alltaf að skamma mann.“ Þessi lína er ítrekað sungin af frumburðinum á heimilinu þessa dagana, ásamt öðrum stórskemmtilegum línum úr Laginu um það sem er bannað. "Það má ekki pissa bak við hurð“ og "Það má ekki hjóla inní búð“ er einnig vinsælar línur út textanum og vafalaust eitthvað sem mín kona hefur íhugað að prófa einhvern tímann á sinni fimm ára ævi. 19.3.2013 06:00
Þjóðrembingslegt stolt Sara McMahon skrifar Hver kannast ekki við að finna til svolítils stolts þegar útlendingar hrósa heimalandinu á einhvern hátt? Eða þeirrar réttmætu reiði sem blossar upp ef sami útlendingur segir nokkuð niðrandi eða ljótt um heimahagana? Það mun seint líða mér úr minni þegar austurrískur maður hélt því eitt sinn fram að besta vatn í heimi væri að finna í austurrísku Ölpunum. Það veit hvert mannsbarn að besta vatn í heimi finnst á Íslandi! 18.3.2013 06:00
Bíó Stígur Helgason skrifar Það var ekki beint þannig að hún hefði snert við mínum innstu hjartastrengjum, myndin sem ég sá í bíó um liðna helgi. Mér fannst hún meira að segja frekar óeftirminnileg og klisjukennd vella – einslags dulbúið AA-sjálfshjálparmyndband – þótt Denzel Washington stæði sig að vanda með prýði í hlutverki Denzels Washington. 15.3.2013 06:00
Bilað Það var vel til fundið hjá dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna að veita Sunnu Valgerðardóttur, blaðakonu á Fréttablaðinu, verðlaun fyrir fréttaskýringar um stöðu geðsjúkra. Sagði dómnefndin að greinaflokkur hennar væri áhrifamikill, heildstæður og vel unninn. Það er hverju orði sannara. 14.3.2013 06:00
Hvar eru konurnar? Kolbeinn Óttarsson Proppe skrifar Nýr ritstjóri Fréttatímans, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, hefur tekið saman athyglisverða tölfræði um konur og dagblöð. Af þeim 130 ritstjórum sem verið hafa á dagblöðum á Íslandi frá upphafi er hún fimmta konan. Fyrir einni og hálfri viku höfðu sem sagt fjórar konur gegnt ritstjórastöðu á íslenskum dagblöðum. Og samanlagður starfstími þeirra er skemmri en forsætisráðherratíð Jóhönnu Sigurðardóttur. Frá upphafi blaðaútgáfu hér á landi hefur lengur verið kvenkyns forsætisráðherra en kvenkyns ritstjóri dagblaðs. 13.3.2013 06:00
Vertu óþæg! Erla Hlynsdóttir skrifar Ég gleðst vissulega yfir því þegar dóttir mín hlýðir mér og gerir það sem henni er sagt. Það getur verið pirrandi þegar hún neitar að hlýða, því ég veit að hún gerir það. Samt gleðst ég líka þegar hún lætur skipanir sem vind um eyru þjóta og gerir eitthvað allt allt annað. Þá veit ég nefnilega að hún er að sýna sjálfstæði sitt og brjótast út úr kassanum. 12.3.2013 06:00
Bilað Charlotte Böving skrifar Þvottavélin mín bilaði um daginn, eftir fimm ára dygga þjónustu. Fimm ár eru nú ekki svo langur tími. Ég man tíma þegar fólk átti sömu þvottavélina í tuttugu – þrjátíu ár. Sá tími er liðinn. 11.3.2013 06:00
Þær sem elska storminn Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar Þegar ég var á fullu að slíta barnsskónum vestur á Bíldudal kom frú Vigdís Finnbogadóttir, þáverandi forseti, þangað í heimsókn. 9.3.2013 06:00
Sir Alex Ferguson bjargar krónunni Magnús Þorlákur Lúðvíksson skrifar Krónan er ekkert vandamál í sjálfu sér. Vandinn er sá að hagstjórnin á Íslandi hefur ekki verið nægilega vönduð. Með agaðri hagstjórn verður krónan ekkert vandamál.“ 8.3.2013 06:00
Fordómar orðanna Friðrika Benónýs skrifar Fyrirsögn á Vísi vakti athygli mína í gærmorgun: Samkynhneigð hjón fá hæli í Svíþjóð. Skilyrt hugsanaferli fór í gang og ég átti erfitt með að koma því heim og saman hvernig hjón gætu verið samkynhneigð. "Er hann þá hommi og hún lesbía?“ stóð ég mig að því að hugsa áður en það rann upp fyrir mér að auðvitað var verið að tala um tvo karlmenn sem eru giftir. Og, já, giftir hvor öðrum. 7.3.2013 06:00
Dæmigerðir Íslendingar Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar Norðlenskur hroki og þingeyskt loft eru frasar sem stundum er slengt framan í mig, þegar ég er að belgja mig eitthvað um veðrið. 6.3.2013 06:00
Af því við vitum best Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar Af hverju sitja Hans og Gréta uppi á þaki? Þau eru að bíða þess að mamma og pabbi komi upp um skorsteininn. Þessi brandari, og aðrir af sama toga, voru vinsælir í útrýmingarbúðum nasista í síðari heimsstyrjöldinni. Mitt í hörmungunum léttu gyðingar sér sitt ömurlega líf með gríni. Kannski er það þannig að þegar aðstæður eru jafn skelfilegar og raun bar vitni þar er ekkert eftir nema húmorinn. 5.3.2013 06:00
Gríma, sál og systir Sigurður Árni Þórðarson skrifar Að baki vestrænum heitum fræðigreinarinnar sálfræði er nafn grísku gyðjunnar Psyche. C. S. Lewis skrifaði ekki aðeins ævintýrabækur um Narníu heldur um bókmenntir og trúarefni og m.a. um systurnar Psyche og Órúal. Psyche var sögð traust í lífsraunum og fögur. Hún fangaði hjarta elskuguðsins Erosar. Saga Psyche er fyrirmyndar- eða 4.3.2013 06:00
Dagar skeggs og hrósa Brynhildur Björnsdóttir skrifar Stundum kemur Skeggapinn heim til mín á nóttunni meðan allir sofa. Hann safnar hári á sinn risastóra og hárlausa skrokk enda enginn api með öpum án myndarlegrar bringu- og bakmottu. Hann gengur því milli heimila, stundum í fylgd góðvinar síns tannálfsins, og tínir tilfallandi skeggvöxt af pöbbum, öfum og frændum og reynir að festa á sig með ýmsum ráðum. Sumir telja að hann beri ábyrgð á hvarfi teygja og hárspenna líka en það hefur ekki fengist staðfest. Þessu trúum við öll á heimilinu, einkum þó heimilisfaðirinn, sem er jafnhissa og allir aðrir yfir því að hann skuli sofna með nokkurra daga brodda og vakna morguninn eftir jafn nauðasköllóttur í framan og aðrir í fjölskyldunni. 2.3.2013 06:00
Góði guð Stígur Helgason. skrifar Trúlega fundu flest mannsbörn fyrir óvenjulegri tómleikatilfinningu við morgunverðarborðið áðan, að þeim hefur sett hroll í bílnum á leiðinni í vinnu og skóla og jafnvel hafa sumir upplifað sig hálfráðalausa frammi fyrir verkefnum dagsins. Ég segi ekki að örvænting hafi gripið um sig í öllum hjörtum – en ábyggilega sumum. 1.3.2013 06:00
Geðveiki krónuhagkerfisins: Tók 35 milljón króna lán, búinn að greiða til baka 91 milljón, skuldar samt enn 64 milljónir! Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Vegið að íslenskri kvikmyndagerð Grímur Hákonarson,Hafsteinn Gunnar Sigurðsson,Hrafnhildur Gunnarsdóttir Skoðun