Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þrjú skip til loðnumælinga eftir að torfur sáust á Austfjarðamiðum Þrjú loðnuskip hafa verið send til loðnumælinga út af miðjum Austfjörðum eftir að fréttist af loðnutorfum á stóru svæði um helgina. Sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar eru um borð til að kanna hvort þarna séu nýjar loðnugöngur á ferð. 18.1.2021 12:21
BÍ telur lokaða dagskrá Stöðvar 2 „lægsta punkt í samtímasögu íslenskrar fjölmiðlunar“ „Það verða straumhvörf í íslenskri fjölmiðlasögu þegar fréttir Stöðvar 2 hætta að vera í opinni dagskrá núna í janúar eftir 34 ára nánast samfellda starfsemi. Það eru tímamót þegar fréttir Stöðvar 2, til að mynda af náttúruhamförunum á Seyðisfirði fyrir fáum vikum síðan, verða fyrir áskrifendur eingöngu en ekki fyrir allan almenning þessa lands.“ 15.1.2021 17:45
Fólki sem hefur verið án atvinnu í meira en ár fjölgað um 156 prósent Heildaratvinnleysi mældist 12,1% hér á landi í desember sem er óveruleg aukning frá nóvermber. Þar af var almennt atvinnuleysi 10,7% í desember og atvinnuleysi tengt minnkuðu starfshlutfalli 1,4%. Vinnumálastofnun spáir því að almennt atvinnuleysi aukist í janúar og verði á bilinu 11,3% til 11,7%. 15.1.2021 15:01
Stjórnvöld greiddu Icelandair 350 milljónir króna vegna flugferða Íslensk stjórnvöld greiddu Icelandair tæpar 350 milljónir króna á síðasta ári til að tryggja lágmarksflug til og frá landinu. Fyrsti samningur þess efnis tók gildi í lok mars á síðasta ári og fól í sér að ríkið myndi greiða upp tap flugfélagsins sem hlaust af því að halda flugi gangandi til og frá Evrópu og Bandaríkjunum. 15.1.2021 13:21
Gengi krónunnar lækkaði um 10,4 prósent Gengi krónunnar lækkaði um 10,4% á árinu 2020 og heildarvelta á millibankamarkaði með gjaldeyri jókst um 124% frá fyrra ári. Heimsfaraldur Covid-19 hafði mikil áhrif á innlendan gjaldeyrismarkað og átti Seðlabankinn umfangsmikil gjaldeyrisviðskipti til að draga úr sveiflum og bæta verðmyndun á markaðnum. 15.1.2021 09:24
Vonbrigði móður mikilvæg lexía Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir er 21 árs ung kona frá Akureyri sem útskrifaðist frá Menntaskólanum á Akureyri árið 2019. Hún hefur frá útskrift unnið þrjú störf og segist hafa lagt gríðarlega mikla áherslu á sparnað. Hún hafi þegar náð að safna sér dágóðri upphæð en hún hyggur á nám og vill eiga sparnað þegar þar að kemur. 15.1.2021 07:01
Hafa sótt um tekjufallsstyrki fyrir 2,7 milljarða króna 419 rekstraraðilar hafa sótt um tekjufallsstyrki hjá hinum opinbera vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar. Alls hafa þessir aðilar sótt um styrki fyrir 2,7 milljarða króna og er búið að afgreiða 69 umsóknir fyrir um 590 milljónir. 14.1.2021 17:28
Sparisjóður gerir sátt vegna ófullnægjandi aðgerða gegn fjármögnun hryðjuverka Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands og Sparisjóður Strandamanna hafa gert með sér samkomulag um sátt vegna brota sparisjóðsins á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. 14.1.2021 16:53
Sýn sækir liðsauka til Icelandair, Arion banka og Bláa lónsins Sýn hefur ráðið þau Hákon Davíð Halldórsson, Björgvin Gauta Bæringsson, Ernu Björk Sigurgeirsdóttur, Guðlaugu Jökulsdóttur og Hörð Bjarkason til starfa á rekstar-, fjármála- og mannauðssviði félagsins. 14.1.2021 13:16
Héraðsdómur féllst ekki á að kona hafi ætlað að kaupa hjólhýsi með Land Rovernum Kona var í gær dæmd í Héraðsdómi Reykjaness til að greiða hátt í 5,3 milljóna króna sekt fyrir að hafa gefið upp rangt kaupverð á Land Rover Defender 90 Ts Xs bifreið sem hún flutti inn til Íslands. 14.1.2021 12:49
Elín Jónsdóttir deildarforseti nýrrar lagadeildar á Bifröst Elín Jónsdóttir hefur verið ráðin deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst. Hún hefur gegnt starfi umsjónarmanns laganáms síðan í haust en ákveðið hefur verið að lagadeildin verði aftur sérstök deild við skólann. 14.1.2021 12:10
Sex verkefni tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands Alls hafa sex verkefni verið tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands sem afhent verða við hátíðlega athöfn á Bessastöðum, 20. janúar næstkomandi. 14.1.2021 11:55
Keyptu GAMMA-húsið við Garðastræti á 420 milljónir Félag í eigu hjónanna Aðalsteins Karlssonar, fjárfestis og fyrrverandi eiganda heildverslunarinnar A. Karlsson, og Steinunnar Margrétar Tómasdóttur hefur keypt húsið við Garðastræti 37 í Reykjavík á 420 milljónir króna. 14.1.2021 09:04
Starfsmönnum Icelandair gert að gangast undir reglubundið vímuefnapróf Öllum starfsmönnum Icelandair verður framvegis gert að gangast undir reglubundið vímuefnapróf. Þetta er liður í nýrri stefnu fyrirtækisins sem áfengis- og vímuefnalaus vinnustaður, en starfsmenn verða prófaðir bæði af handahófi og kerfisbundið. 14.1.2021 08:07
Staðfesta niðurstöður Samkeppniseftirlitsins en lækka sekt um 300 milljónir króna Áfrýjunarnefndar samkeppnismála hefur staðfest ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að sekta Símann hf. fyrir að brjóta gegn sátt sem fyrirtækið gerði við stofnunina um markaðssetningu og sölu á enska boltanum. 13.1.2021 20:08
Skora á stjórnvöld að koma veitingageiranum til aðstoðar hið snarasta Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði segja mörgum veitingahúsum hafa verið lokað og fjölmörg séu á ystu nöf. Þau rekstrarlegt úthald í óbreyttum takmörkunum. Því skora samtökin á stjórnvöld að bregðast við og létta á takmörkunum sem snúa að veitingahúsum og krám. 13.1.2021 18:28
Söknuðu starfsmanns hjá Skattinum og forrituðu yrki í hans stað Um árabil sendi Steinþór Haraldsson hjá Ríkisskattstjóra út fréttabréf að eigin frumkvæði til ráðgjafa, stjórnenda fyrirtækja og áhugafólks um skattamál. 13.1.2021 17:24
Finnur yfirgefur Fjármálaeftirlitið Finnur Sveinbjörnsson hætti sem framkvæmdastjóri bankasviðs fjármálaeftirlits Seðlabankans nú um áramótin. Elmar Ásbjörnsson, sem hefur gegnt stöðu forstöðumanns áhættugreiningar á bankasviðinu, verður settur framkvæmdastjóri þangað til starfið verður auglýst. 13.1.2021 16:05
Sigríður Guðmundsdóttir tekur við sem framkvæmdastjóri FA Sigríður Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Hún tekur við starfinu af Sveini Aðalsteinssyni. 13.1.2021 15:42
Ljósabekkjum fer fjölgandi á höfuðborgarsvæðinu Lítilleg fjölgun hefur orðið á þeim fjölda ljósabekkja sem fólki er seldur aðgangur að hér á landi frá árinu 2017. Eru þeir nú 97 talsins og hefur fjölgað um sjö á síðustu þremur árum. Aukningin á sér öll stað á höfuðborgarsvæðinu en fjöldi ljósabekkja á landsbyggðinni hefur minnkað lítillega á sama tímabili. 13.1.2021 14:47
Ráðin nýr forstöðumaður hitaveitu hjá Veitum Hrefna Hallgrímsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður hitaveitu hjá Veitum. 13.1.2021 12:31
Vinnslan hefst á ný á Seyðisfirði Vinnsla hófst á ný í frystihúsi Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði en hún féll niður þegar stóra skriðan féll þar 18. desember síðastliðinn. 13.1.2021 12:05
Bitcoinæði á Íslandi Kjartan Ragnars lögmaður, einn eigenda Myntkaupa á Íslandi, segist ekki hafa undan að svara spurningum fólks um bitcoin. 13.1.2021 11:37
Jóhanna Harpa til Kontor Reykjavík Jóhanna Harpa Agnarsdóttir hefur verið ráðin í starf viðskiptastjóra hjá auglýsingastofunni Kontor Reykjavík. 13.1.2021 09:29
Hægist á fasteignamarkaði og sölutími íbúða aldrei styttri Vísbendingar eru um að aðeins sé tekið að hægjast á fasteignamarkaði eftir mikið líf síðan í sumar en aðeins dró úr fjölda útgefinna kaupsamninga og veltu í nóvember samanborið við mánuðinn á undan. 13.1.2021 07:54
Þórarinn Ævarsson vill kaupa Domino‘s Fjárfestahópur sem Þórarinn Ævarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi og stofnandi pizzustaðarins Spaðans, fer fyrir er einn af þremur fjárfestahópum sem vilja kaupa rekstur Domino‘s á Íslandi af Domino‘s Pizza Group í Bretlandi. 13.1.2021 07:09
Tólf milljarða króna framkvæmdir að hefjast við stækkun Reykjanesvirkjunar HS Orka hefur ákveðið að hefja tólf milljarða króna framkvæmdir við stækkun Reykjanesvirkjunar. Verksamningar við þrjú verktakafyrirtæki, Ístak, Hamar og Rafal, verða undirritaðir næstkomandi föstudag. 12.1.2021 22:52
Forstjóri Hafrannsóknastofnunar heldur í vonina um loðnuvertíð Ekki er grundvöllur til að hefja loðnuveiðar þar sem mun minna mældist af loðnu í nýafstöðnum loðnuleiðangri en í desember. Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, er þó ekki tilbúinn að afskrifa loðnuvertíð í vetur. 12.1.2021 20:38
Minna fannst af loðnu og bið eftir loðnuvertíð Hafrannsóknastofnun telur ekki ástæðu til að breyta ráðgjöf um loðnuveiðar eftir loðnuleiðangur fimm skipa, sem lauk nú um helgina. Stofnunin hafði áður lagt til 22 þúsund tonna kvóta, sem gengur til Norðmanna, en nægir ekki til að íslenski loðnuflotinn geti hafið veiðar. 12.1.2021 17:37
Úlla Árdal yfirgefur RÚV og kynnir náttúruperlur Úlla Árdal hefur verið ráðin í starf markaðs- og þróunarstjóra Mývatnsstofu og hóf störf þann 5. janúar. Þar mun hún sinna verkefnum sem er ætlað að styðja við uppbyggingu innviða í Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit með það að markmiði að gera svæðið ákjósanlegra til búsetu og fjárfestinga. 12.1.2021 16:52
Skúli í Subway sýknaður Skúli Gunnar Sigfússon, oft kenndur við skyndibitastaðinn Subway, var í dag sýknaður af ákæru fyrir millifærslur af bankareikningi félags sem stefndi í gjaldþrot. Tveir til viðbótar voru sýknaðir af ákæru héraðssaksóknara í málinu. 12.1.2021 15:54
Bandarískt fyrirtæki festir kaup á LS Retail Bandaríska fyrirtækið Aptos hefur undirritað samning um kaup á íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu LS Retail sem sérhæfir sig í þróun verslunar- og afgreiðslukerfa. Í tilkynningu frá LS Retail er Aptos sagt vera leiðandi fyrirtæki í tæknilausnum fyrir verslanir og að íslenska fyrirtækið verði starfrækt sem sjálfstæð eining innan Aptos samstæðunnar. 12.1.2021 14:48
Kristinn Harðarson ráðinn framkvæmdastjóri framleiðslu Kristinn Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri framleiðslu hjá HS Orku. Kristinn mun stýra allri framleiðslu HS Orku í jarðvarmavirkjununum í Svartsengi og á Reykjanesi auk vatnsaflsvirkjunarinnar á Brú í Tungufljóti. 12.1.2021 11:02
Rólegra yfir leigumarkaðnum en íbúðamarkaðnum á tímum faraldurs Á sama tíma og íbúðaverð tók að hækka í kjölfar vaxtalækkana á seinni hluta síðasta árs hefur leiguverð á höfuðborgarsvæðinu að jafnaði staðið í stað. Frá janúar og fram í maí mældist lækkun milli mánaða samkvæmt nýþinglýstum leigusamningum en síðan tók við lítils háttar hækkun milli mánaða fram að október þegar verð tók að lækka. 12.1.2021 10:42
Bein útsending: Skattadagurinn 2021 Skattadagurinn 2021 er haldinn í dag og hefst dagskráin klukkan 9. Hægt er að fylgjast með dagskránni í streymi hér á Vísi. 12.1.2021 08:30
Ragnheiður Elín ráðin framkvæmdastjóri Alor Ragnheiður Elín Árnadóttir, ferrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Alor ehf. 12.1.2021 08:01
Hvetur til skipaflutninga til að létta á þjóðvegakerfinu Framkvæmdastjóri Odda á Patreksfirði, stærsta sjávarútvegsfyrirtækis sunnanverðra Vestfjarða, segir galið að allir þungaflutningar landsins fari um þjóðvegakerfið. Hann hvetur til skipaferða og að ferjusiglingar yfir Breiðafjörð verði efldar. 11.1.2021 21:34
Fjölmiðlafólk á meðal umsækjenda hjá Reykjavíkurborg Alls bárust 45 umsóknir um stöðu teymisstjóra samskiptateymis Reykjavíkurborgar, en staðan var auglýst til umsóknar í byrjun desember. RÚV greinir frá. 11.1.2021 19:07
Kólus innkallar Risaþrista Sælgætisframleiðandinn Kólus hefur ákveðið að innkalla Sambó Ristaþrist í fimmtíu gramma umbúðum. Ástæðan er sögð sú að aukabragð hafi borist úr plastumbúðum í vöruna. Talið er mögulegt að tilvikin geti verið fleiri að því er segir í tilkynningu frá Kólus. 11.1.2021 16:35
Rúmlega tuttugu ára sögu Café Bleu lokið Kaffihúsinu Café Bleu, sem starfrækt hefur verið í Kringlunni frá árinu 1999, hefur verið lokað. Eigendur kaffihússins segjast sjá á eftir fjölmörgum fastakúnnum en tími hafi verið kominn á breytingar. Nýr veitingastaður verður opnaður í rýminu að loknum framkvæmdum. 11.1.2021 13:48
Kvöldfréttir Stöðvar 2 verða framvegis fyrir áskrifendur Stöð 2 verður hrein áskriftarstöð frá og með 18. janúar. Frá og með þeim tíma verður kvöldfréttatími Stöðvar 2 aðeins aðgengilegur áskrifendum. Sama gildir um Sportpakkann, Ísland í dag og annað fréttatengt efni sem hefur verið í opinni dagskrá. 11.1.2021 11:25
Leiðrétta nýkynntar sóttvarnareglur: Engar breytingar hjá verslunum Heilbrigðisráðuneytið hefur sent frá sér leiðréttingu og áréttað að engar breytingar verði gerðar á takmörkunum í verslunum þegar nýjar sóttvarnareglur taka gildi þann 13. janúar næstkomandi. 8.1.2021 15:16
Skilja ekki rökin á bak við tillögu Þórólfs Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, skilur ekkert í að þrengja eigi að verslunum frá og með 13. janúar næstkomandi. Heilbrigðisráðherra tilkynnti í dag væntanlegar breytingar á sóttvarnareglum, með fyrirvara um að faraldurinn haldist í lágmarki. 8.1.2021 14:48
Ósáttur með að krár þurfi áfram að hafa lokað: „Munurinn er þessi eina kleina!“ „Okkur finnst verulega að okkur vegið og mikil mismunun í gangi,“ segir kráaeigandinn Arnar Þór Gíslason um nýjar reglur um samkomutakmarkanir sem kynntar voru í hádeginu. 8.1.2021 14:20
Tesla Model 3 mest seldi bílinn á Íslandi Tesla Model 3 var mest seldi bíllinn á Íslandi á síðasta ári en 858 slíkir rafbílar voru nýskráðir árið 2020. Næst á eftir kom tengiltvinnbíllinn Mitsubishi Outlander en 773 slík eintök voru nýskráð hér á landi, samkvæmt tölum frá Samgöngustofu. 8.1.2021 13:36