Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Byrja að nota stærstu farþegaþotur heims á ný Flugfélagið Lufthansa hyggst byrja að nota Airbus A380-farþegaþotur sínar að nýju. Flugfélagið hefur ekki notast við þoturnar síðan árið 2020 þar sem ekki var hægt að fylla þær af farþegum í miðjum heimsfaraldri. 27.6.2022 20:33
„Frá Sviss“ hverfur af umbúðum Toblerone Toblerone-súkkulaði hefur alla tíð einungis verið framleitt í Sviss, en framleiðandinn hyggur nú á opnun nýrrar verksmiðju í Slóvakíu. Svissnesk lög kveða á um að vegna þessa þurfi nú að breyta því sem stendur á umbúðunum. 27.6.2022 08:31
Juul fær áfram að selja vörur sínar eftir dómsúrskurð Alríkisáfrýjunardómstóll stöðvaði tímabundið bann sem Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna lagði á vörur rafrettuframleiðandans Juul. Stofnunin sagði fyrirtækið ekki hafa sýnt fram á að vörur þess gögnuðust lýðheilsu. 25.6.2022 11:17
Hráolíuverð heldur áfram að lækka Heimsmarkaðsverð á Brent-hráolíu lækkaði á föstudag og stefnir í lækkun aðra vikuna í röð. Olíuverð náði miklum hæðum í kjölfar stríðsins í Úkraínu en frá maílokum hefur Brent-olíuverð lækkað úr 120 bandaríkjadölum á tunnu niður í um 109, næstum tíu prósent lækkun. 24.6.2022 11:13
Stærsta rafrettuframleiðandanum skipað að taka vörur af markaði Rafrettuframleiðandanum Juul var skipað að fjarlægja vörur sínar af markaði í Bandaríkjunum í gær. Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) telur fyrirtækið ekki hafa sýnt fram á að vörur þess gagnist lýðheilsu. 24.6.2022 10:19
Þrjú hundruð sagt upp hjá Netflix Bandaríska streymisveitan Netflix hefur sagt upp þrjú hundrið starfsmönnum. Ástæðan er sú að áskrifendum fer fækkandi. 23.6.2022 22:35
Mesta vaxtahækkun í Noregi í tuttugu ár Norski seðlabankinn hækkaði í morgun stýrivexti um hálft prósentustig, úr 0,75 í 1,25 prósent. Norskir fjölmiðlar segja að þetta sé mesta hækkun stýrivaxta í landinu í heil tuttugu ár. 23.6.2022 12:56
Húsleit gerð hjá dönsku dótturfélagi Eimskips Danska samkeppniseftirlitið framkvæmdi í dag húsleit hjá Atlantic Trucking, dönsku dótturfélagi í eigu Eimskipafélags Íslands, í Álaborg í Danmörku. 20.6.2022 20:57
Musk og fyrirtækjum hans stefnt vegna pýramídasvindls með rafmynt Fjárfestir í rafmyntinni Dogecoin stefndi Elon Musk, rafbílaframleiðandanum Tesla og og geimferðafyrirtækinu SpaceX vegna meints pýramídasvindls með myntina í dag. Hann krefst 258 milljarða króna frá Musk og fyrirtækjum hans. 16.6.2022 20:16
Rafmyntir í ólgusjó Einn versti dagur í sögu rafmyntamarkaðsins rann upp nú á mánudag. Markaðurinn hefur tekið vænar niðursveiflur á síðustu vikum vegna hækkandi vaxta og aukinnar verðbólgu en heildarvirði rafmyntamarkaðsins hrundi niður fyrir eina trilljón Bandaríkjadala. 14.6.2022 16:39
Sriracha-sósuskortur vegna veðurs Skortur á Sriracha sósu er yfirvofandi vegna veðrabreytinga í Mexíkó en Huy Fong Foods, framleiðandi sósunnar notar um það bil fimmtíu þúsund tonn af eldpipar í sósurnar sínar. Þetta hráefni er nú veðursins vegna af skornum skammti. 14.6.2022 13:18
Opna McDonald's aftur í Rússlandi undir nýju nafni Veitingastaðir McDonald‘s í Rússlandi voru opnaðir á nýjan leik í morgun eftir að stórfyrirtækið yfirgaf landið fyrr í vor vegna innrásarinnar í Úkraínu. Litlar breytingar hafa verið gerðar á veitingastöðunum eða matnum sem seldur er þar. 12.6.2022 09:50
Hækka stýrivexti í fyrsta sinn í ellefu ár Evrópski seðlabankinn hyggst færa stýrivexti sína upp um 0,25 prósentustig í júlí sem verður fyrsta hækkunin í ellefu ár. Þá boðar seðlabankinn aðra hækkun í september sem gæti reynst umfangsmeiri ef ekki tekst að koma böndum á verðbólguna. 9.6.2022 21:17
Apple þarf að breyta hleðslutengjum fyrir 2024 Evrópusambandið og Evrópuþingið hafa náð samkomulagi um að snjalltæki þurfi að hafa einu og sömu tegundina af hleðslutengi fyrir árið 2024. Samkomulagið þýðir að tæknirisinn Apple þarf að breyta hleðslutengjum í snjalltækjum sínum í Evrópu. 7.6.2022 13:09
Samþykktu tímabundið bann við rafmyntargreftri Ríkisþing New York samþykkti frumvarp sem leggur tímabundið bann við að gefin verið út ný eða endurnýjuð leyfi fyrir jarðefnaeldsneytisorkuver sem eru notuð til að knýja gröft eftir rafmyntum. Slíkur gröftur hefur stórt kolefnisspor. 3.6.2022 15:40
Sheryl Sandberg hættir hjá Meta Sheryl Sandberg, framkvæmdastjóri Meta, ætlar að hætta hjá fyrirtækinu eftir að hafa verið mjög áberandi í fremstu röðum þar í fjórtán ár. Í tilkynningu segist hún ætla að einbeita sér að mannúðarstarfi og að öðru leyti viti hún ekki hvað framtíðin beri í skauti sér. 1.6.2022 22:21
Króatía tekur upp evruna á næsta ári Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir að Króatía uppfylli öll skilyrði til þess að taka upp evruna, strax á næsta ári. Minna en áratugur er liðinn síðan Króatía gekk í Evrópusambandið. 1.6.2022 17:47