Stefnt er að því að ferðagjafabréf til landsmanna verði tilbúin í byrjun júní
Stefnt er að því að ferðagjafabréf til landsmanna verði tilbúin í byrjun júní, en unnið er að tæknilegri útfærslu þessa dagana. Gjafabréfið mun hljóða upp á 5 þúsund krónur, það verður framseljanlegt og aðgengilegt á netinu. Ferðaþjónustufyrirtæki munu fá kynningu á verkefninu á næstu vikum.