Segir leikskólastigið í alvarlegum vanda ef ekki verði brugðist við
Formaður félags leikskólakennara hefur áhyggjur af því að leikskólakennarar flytji sig yfir á önnur skólastig vegna ólíkra starfsaðstæðna og vinnufyrirkomulags þegar lög um leyfisbréf þvert á skólastig taka gildi. Bregðist sveitarfélögin ekki við vandanum við gerð kjarasamninga er leikskólastigið í alvarlegum vanda.