Telur ekki tilefni til að segja af sér
Matvælaráðherra telur ekki tilefni til að segja af sér þrátt fyrir álit umboðsmanns Alþingis þess efnis að ákvörðun hennar um að fresta hvalveiðum hafi verið í andstöðu við lög. Hún taki álitið alvarlega og segist ekkert geta sagt um framhald hvalveiða á þessari stundu.