Víðir Reynisson fer yfir stöðuna í Grindavík
Land hefur risið hraðar í Svartsengi síðustu daga en fyrir eldgosið við Grindavík fjórtánda janúar. Veðurstofan telur að svipuð kvikusöfnun og fyrir gos gæti náðst innan nokkurra vikna. Hættumat fyrir svæðið var þó fært niður um eitt stig síðdegis.