Segir heilbrigðiskerfið hafa brugðist henni og syninum
Kona sem varð 75 prósent öryrki eftir fæðingu sonar síns um aldamótin segir að heilbrigðiskerfið hafi brugðist henni og syninum, sem var hætt kominn í fæðingunni. Doktor í félagsfræði segir ofuráherslu á náttúrulegar fæðingar á Íslandi skaðlega mæðrum.