Spáir því að á næstu árum komi rafhjól og rafhlaupahjól í stað bíls númer tvö hjá fjölskyldum í borginni
Ráðgjafi á sviði borgarsamgangna spáir því að á næstu árum komi rafhjól og rafhlaupahjól í stað bíls númer tvö hjá fjölskyldum í borginni. Fólk fari mun lengri vegalengdir en á hefðbundnu hjóli.