SA segir stöðuna í kjaradeilunni skelfilega
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir skelfilegt að verið sé að boða til enn frekari verkfalla á sama tíma og málaferli standi yfir bæði fyrir héraðsdómi og Félagsdómi. Hann og formaður Eflingar eru hins vegar bæði viss um sigur fyrir Félagsdómi þar sem málflutningur fór fram síðdegis.