Bakþankar

Bakþankar

Fréttamynd

Góðæri Íslands

Ég verð að játa að ég er einn af þeim sem trúi mjög gjarnan á það, að ef eitthvað gengur vel muni það halda áfram að ganga vel til eilífðarnóns. Ef það er góðæri, muni halda áfram að vera góðæri alla tíð.

Bakþankar
Fréttamynd

Fiðrildaáhrif í Afríku

Fiðrildavika Unifem hefur það einfalda markmið að varpa kastljósinu að þremur Afríkuríkjum þar sem gegndarlaust ofbeldi gegn konum hefur viðgengist. Fiðrildavikan hefur þann tilgang að vekja athygli á því að í Líberíu, Súdan og Kongó, er það regla fremur en undantekning að konur verða fyrir alvarlegu ofbeldi, þannig að sums staðar hefur mikill meirihluti kvenna upplifað upplifað kynferðislegt ofbeldi.

Bakþankar
Fréttamynd

Heimsendir

Ég las það á ábyrgum stað á alnetinu að heimsendir verði árið 2028. Þá verður Evrópa orðin jafn lífvana og eyðimörkin í Sahara og fárveður geisa stanslaust um allan heim.

Bakþankar
Fréttamynd

Húmorslausar trukkalessur

Nýlega gengnir héraðsdómar fyrir ofbeldisverk gegn konum verða eftir hálfa öld notaðir í skólabókum um hið rammskakka siðferði aldamóta­samfélagsins sem við lifum í.

Bakþankar
Fréttamynd

Bankaþankar

Eitt sinn var ég á ferð með eldri manni um háhitasvæði. Ég horfði hugfangin út um bílrúðuna og dáðist að ósnortinni fegurð landsins þegar sá gamli fullyrti skyndilega að þarna yrði að virkja.

Bakþankar
Fréttamynd

Stormviðvörun

Skynsamlegustu skrif sem birst hafa um íslensk efnahagsmál í háa herrans tíð eru eftir Andrés Magnússon geðlækni. Þótt ég sé að sjálfsögðu fremur sjúklingur en læknir deili ég ákveðinni kvíðatilfinningu með Andrési.

Bakþankar
Fréttamynd

Sókn í Vatnsmýri

Þær hugmyndir um framtíðarskipulag Vatnsmýrarinnar sem nú liggja fyrir eru dásamlegar. Ég öfunda afkomendur mína af því að fá að njóta þeirrar byggðar sem þar mun rísa, því sjálfum mun mér varla endast aldur til að sjá hana fullkláraða.

Bakþankar
Fréttamynd

Innipúkar í afneitun

Í nýlegri sjónvarpsauglýsingu frá 66 gráðum norður situr ungur strákur við útvarpið að morgni dags og hlustar spenntur á þulinn lesa upp nöfn þeirra skóla þar sem kennsla fellur niður vegna veðurs. Það er ekki oft sem ég verð meyr yfir auglýsingum en þessi kallar fram svo notalegar tilfinningar að ég gæti horft á hana aftur og aftur. Mér finnst litli

Bakþankar
Fréttamynd

Aðal rasisti bloggheima

Þrennt er verulega athyglisvert við nýgenginn dóm yfir Gauki Úlfarssyni vegna þeirra ummæla hans að Ómar R. Valdimarsson sé ekki bara rasisti, heldur erkirasisti.

Bakþankar
Fréttamynd

Lítil þúfa

Ég hef enga hugmynd um hvaðan ókunna konan var að koma eða hvert hún var að fara. Ætlaði kannski að skreppa aðeins í Húsasmiðjuna án þess að það komi sögunni beint við, eða í bíltúr niður að sjó. Að minnsta kosti ók hún í sólskininu norður Kringlumýrarbrautina, hvorki hratt né hægt, bara svona ósköp hversdagslega.

Bakþankar
Fréttamynd

Sofandi hulduhrútar

Margir líta þá hornauga sem tala um fræðigreinar sínar á skiljanlegan hátt. Það þótti ekki fínt í fræðikreðsum hér áður að vera í talsambandi við illa þveginn almúgann. Þetta er þó að breytast. En lúshægt.

Bakþankar
Fréttamynd

Yes, we can

Forval fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum jafngildir jólunum fyrir áhugamenn um kosningar.

Bakþankar
Fréttamynd

Ný orð

Nú í vikunni áttaði ég mig á því að í öllum fréttum og víða annars staðar úti í þjóðfélaginu var fólk að nota orð sem ég skildi ekki. Þetta er orðið “skuldatryggingarálag”.

Bakþankar
Fréttamynd

Lömbin þagna

Senn gengur í garð sá árstími þegar fjórtán ára þrautaganga margra foreldra er á enda og börnin ganga í fullorðinna manna tölu. Ungviðinu er smalað í kirkju eins og lömbum til slátrunar, sem er í vissum skilningi viðeigandi líking því úr kirkjunni snúa engin lömb; aðeins spengilegar ær og graðir hrútar. Barndómnum er formlega lokið.

Bakþankar
Fréttamynd

Kanasöknuður

Aldrei datt mér í hug að ég ætti eftir að segja þetta, en ég sakna Kanans á Miðnesheiði. Hann yfirgaf okkur með lágværu blístri, fánar voru dregnir niður og svo var þetta, sem hafði skipt þjóðinni í tvennt áratugum saman, bara búið.

Bakþankar
Fréttamynd

Veistu ekki hver er pabbi þinn?

Sá ferill sem það tekur foreldra að velja nafn á ungann sinn getur verið langur og flókinn. Einu sinni var algengt að álfar og framliðnir vitjuðu nafns, sem var ágætt svo lengi sem viðkomandi hét ekki Hrolllaugur eða Skessujurt, en langt er síðan allt slíkt datt úr tísku.

Bakþankar
Fréttamynd

Blint réttlæti og heimskulegt

Þrír menn fæddir á árunum 1980, 1982 og 1984 voru um daginn dæmdir í héraðsdómi fyrir stórfelldasta smygl á fíkniefnum sem komið hefur upp á Íslandi í einstöku máli. Sá sem þyngstan dóm hlaut var dæmdur í níu og hálfs árs fangelsi, einn í sjö ára og fimm mánaða fangelsi og sá þriðji í sjö ára fangelsi. Þurfa þeir að afplána tvo þriðju hluta dómanna áður en þeir eiga möguleika á reynslulausn.

Bakþankar
Fréttamynd

Fallegur boðskapur

Summa jarðar virðist hafa verið furðu jöfn í gegn um aldirnar. Fjöldi atómanna, sem hér eru á sveimi og mynda reikistjörnuna með öllu sem á henni er, hefur víst sveiflast sáralítið síðastliðin árþúsund.

Bakþankar
Fréttamynd

Rotin rómantík

Mikið skelfing er ég fegin að betri helmingurinn skuli ekki hafa asnast til þess að færa mér valentínusargjöf í gær. Tilbúin rómantík í hjartalaga súkkulaðiboxi hefði verið tilvalin leið til þess að eyðileggja fyrir mér annars ágætan fimmtudag enda vekur fátt hjá mér meiri viðbjóð en allt þetta væmna valentínusardót sem sjá hefur mátt í búðum undanfarna daga.

Bakþankar
Fréttamynd

Svona er ástin

Það er táknrænn dagur í dag. Valentínusardagur er notaður til að minna hluta af þjóðinni á að hún eigi maka og hinn hlutann á að hún eigi engan.

Bakþankar
Fréttamynd

Sölumenn óttans

Stundum er fullyrt að með hækkandi aldri fylgi ákveðin fríðindi. Þá er ekki verið að vísa í forréttindi ellilífeyrisþega sem fá afslátt í sund og ókeypis rútuferðir í Bónus, heldur sérstaka tegund af sálarró sem kemur ekki sjálfkrafa en eykst samkvæmt kenningunni í réttu hlutfalli við fjölgandi hrukkur.

Bakþankar
Fréttamynd

Heiðarleiki

Ég var skínandi ánægð þegar Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson var kjörinn borgarstjóri á sínum tíma.

Bakþankar
Fréttamynd

Saklaust gæðablóð?

Tvisvar hef ég séð stjórnmálaflokka veikjast heiftarlega. Sá fyrri dó drottni sínum í sælli trú á framhaldslíf á bleiku skýi jafnaðarstefnu á rauðum sokkum.

Bakþankar
Fréttamynd

Hryllingurinn á hæðinni

Fimm hundruð pör sækjast nú eftir því að fá að vera með í íslenskum sjónvarpsþætti, þar sem verkefnið er að innrétta hús innan ákveðins tímafrests.

Bakþankar
Fréttamynd

Auli

Fyrir skemmstu tók ég mér frí frá vinnu á föstudegi, drakk kaffi á kaffihúsi og vafraði um netið. Ég notaði líka tækifærið til að skrifa útlenskum vini tölvupóst á ensku. Skyndilega tók ég eftir að tölvan var að verða rafmagnslaus.

Bakþankar
Fréttamynd

Stjórnmálaútlitið

Sá sem fann upp á spekinni um að ekki skuli dæma bókina eftir kápunni var augljóslega að þvaðra út um vitlausan enda.

Bakþankar
Fréttamynd

Orðrómur deyr

Hvort sem meðfæddri leti er um að kenna eða áunnu metnaðarleysi, þá sofnar í mér heilinn um leið og farið er að tala um peninga af alvöru og þekkingu.

Bakþankar
Fréttamynd

Elsku Páll

Þegar ég var tvítug festi ég kaup á forláta sjónvarpi í verslun sem seldi notuð tæki.

Bakþankar
Fréttamynd

Að flytja flugvöll

Með nýjum og yfirveguðum borgarstjóra er í bili búið að skrúfa fyrir hina flóknu umræðu um hvert skuli flytja Reykjavíkurflugvöll – hvort fara skuli með flugvöllinn upp á heiðar eða út í sjó eins og ýmsir stórgáfaðir menn hafa gert að tillögum sínum.

Bakþankar