Bakþankar

Bakþankar

Fréttamynd

Jólasaga

Pabbi trommar glaðlega á stýrið. Feðginin eru á leið í Kringluna að undirbúa jólin. Í bílstólnum situr lítil dúlla. Dúðuð í snjógalla, með gylltar englakrullur og eplakinnarnar gægjast undan lambhúshettu. „Pabbi, ertu nokkuð stressaður?“ spyr sú litla.

Bakþankar
Fréttamynd

Pistlahöfundur á lyfjum

Skrautbúinn maður rétti mér miða. Ég leit á og sá að hann var að bjóða stinningarlyf, vörn gegn illa auganu, seið til að vinna ástir kvenna og síðan sérstakt lygalyf. Þetta vakti athygli mína þó ég sé ýmsu vanur á leið minni heim úr vinnu enda margt kynlegra kvista í Malagaborg.

Bakþankar
Fréttamynd

Ég hata útlendinga

Ég er í lest. Er með mikinn farangur. Þegar komið er á leiðarenda þarf ég ég að fara tvær ferðir úr lestinni með allt dótið. Mér til skelfingar keyrir lestin af stað um leið og ég hef borið út töskurnar. En veskið, síminn og lyklarnir liggja enn á litlu borði við gluggann!

Bakþankar
Fréttamynd

Jafnaldrinn með pípuna

Ég hef aldrei haft áhyggjur af aldri, finnst verulega gaman að eldast og kannski sérstaklega vegna þess að mér líður alltaf eins og ég sé 22 ára. Ég læt mér það í léttu rúmi liggja hvort ég sé talin systir móður minnar eða dóttir systur minnar.

Bakþankar
Fréttamynd

Fíllinn í stofunni

Undanfarin vika hefur verið mannkyninu erfið. Fréttir af sjálfsmorðsárásum dynja á okkur úr öllum heimshornum. Margir setja upp franskan fána til þess að sýna samstöðu en aðrir eru brjálaðir yfir því að ekki sé boðið upp á líbanskan eða nígerískan fána. Hræsni er stóra vandamálið okkar.

Bakþankar
Fréttamynd

Spark í rassinn

Undanfarnar vikur hef ég ekki haft undan að svara vinabeiðnum á Facebook. Ekki eru það bakþankarnir sem eru að slá svona í gegn enda beiðnirnar allar frá erlendum aðilum. Hvað veldur hugsa ég í smástund en slæ mig svo utanundir.

Bakþankar
Fréttamynd

Litlar sálir

Það er nefnilega tækifæri falið í að vera nýja stelpan. Allar stelpurnar vilja vera memm. Strákarnir henda óvenju mörgum snjóboltum í mann. Fáránlega skemmtilegt! En það var eyðilagt fyrir mér.

Bakþankar
Fréttamynd

Heilinn og hörmungar

Það er með ólíkindum að geta ekki skellt sér á rokktónleika án þess að eiga það á hættu að verða myrtur af samviskulausum vitfirringum með vélbyssur.

Bakþankar
Fréttamynd

Anton afturgenginn

Aldargömul umræða um miðla og skyggnilýsingar blossaði upp á dögunum. Getur einhver náð vitrænu sambandi við annan heim? Nýlega hitti ég drykkfelldan, atvinnulausan miðil fyrir utan Borgarleikhúsið. Hann sagði mér

Bakþankar
Fréttamynd

Litlu kjánaprikin

Í vikunni benti vinkona mín á tvískinnunginn í því að bannað sé að kaupa áfengi í smásölu af öðrum en ríkinu en ekkert mál að kaupa það í netverslun.

Bakþankar
Fréttamynd

Besti Facebook-hrekkur sögunnar

Einu sinni vann ég með manni sem fannst fátt skemmtilegra en að vera sniðugur á Facebook. Hann var líka mjög góður í því og uppskar oftar en ekki fjölda læka sem glöddu hann mikið. Dag einn komst ég í tölvuna hans

Bakþankar
Fréttamynd

Útþrá

Ég hef alltaf verið meðvituð um sjúkdóma. Greindi vinkonu mína tólf ára gamla með heilaæxli sem reyndist vera stíflaður fitukirtill. Í dag er þessi æskuvinkona glæsileg táknmynd heilbrigðis sem þó tekur sveig fram hjá mér þegar við mætumst

Bakþankar
Fréttamynd

Aumkunarverði Stóri bróðir

Það er hræðilegur óskapnaður þetta Ísland sem blasir við manni þau fáu skipti sem ég kemst á internetið, en Vodafone hefur mig í viðskiptabanni um þessar mundir.

Bakþankar
Fréttamynd

Albúm

Fílar hafa ótrúlega gott minni og það sama má segja um mig. Ég man til dæmis einstaklega vel eftir æsku minni og öllum hennar smáatriðum. Ég komst að því um daginn þegar ég byrjaði að rifja upp minningar úr leik- og grunnskóla af slíkri nákvæmni að vinnufélagar mínir litu hvor á annan og sögðust sjálfir aðeins muna eftir tilvist sinni, svona nokkurn veginn, í grunnskóla en ekki mikið meira en það.

Bakþankar
Fréttamynd

Enga fædda stjórnendur!

Einræðisherra í fjarlægu ríki, köllum það N-Kóreu, deyr. Margir vonast eftir umbótaskeiði. Kaupsýslumenn frá nágrannaríkinu, köllum það S-Kóreu, reyna að tryggja ítök sín í landinu í því skyni að efla viðskipti sín við það. Menn binda vonir við að erfinginn í þjóðhöfðingjaembættinu verði minna þver.

Bakþankar
Fréttamynd

Lærðu að ljúga

Börnum er uppálagt að vera góð hvert við annað, hegða sér vel og ekki undir neinum kringumstæðum segja ósatt. Samt er um það bil helmingurinn af þeim upplýsingum sem börn taka með sér út í lífið lygi.

Bakþankar
Fréttamynd

Íslendingabækur

Það er ekkert grín að búa á einangraðri eyju lengst norður í Atlantshafi. Íslensk þjóð er því marki brennd að hafa í þúsund ár þurft að berjast fyrir lífi sínu í harðgerðri náttúru á mörkum hins byggilega heims.

Bakþankar
Fréttamynd

Vinstri og hægri á Tinder

Á aðfangadag í fyrra skellti ég mér í göngutúr um miðbæ Reykjavíkur. Úr varð stopp á Bæjarins bestu þar sem ég hitti gamlan og góðan vin í röðinni.

Bakþankar
Fréttamynd

#skammakrókur

Mér fannst síðasta viku óvenju þrungin stressi og áhyggjum. En þetta var bara venjuleg vika. Þið vitið. Langir vinnudagar, heimanám með börnunum, matarinnkaup og klósettþrif. Það var starað á netbankann, bölvað iðnaðarmannaskorti í fjölskyldunni

Bakþankar
Fréttamynd

Passa sig

Það er mikil frjósemi í kringum mig þessa dagana og liggur við að önnur hver kona nálægt mér sé ólétt eða nýbúin að eiga. Ég á 50% í einu þessara væntanlegu barna og er því eðlilega með þetta svolítið á heilanum. Og það er alveg ótrúlegt hvað margir eru enn ekki búnir að læra af ótal sjónvarpsþáttum, bíómyndum og munnmælasögum, sem segja frá gasprandi fábjánum sem segja eitthvað óviðeigandi við óléttar konur og uppskera þannig fyrirlitningu allra nærstaddra.

Bakþankar
Fréttamynd

Harmsaga ævi minnar

Árið 1945 gaf Jóhannes Birkiland, þekktur blaðamaður og skáld í Reykjavík, út bókina, „Harmsaga ævi minnar. Hvers vegna ég varð auðnuleysingi.“ Birkiland uppskar einungis háð og spott fyrir bók sína.

Bakþankar
Fréttamynd

Kirkjan er ávöxtur vináttu og trúar

Við sem þetta ritum höfum lengi verið vinir. Við höfum ræktað með okkur sérstaka vináttu sem okkur langar að deila með öðru fólki. Um árabil hittumst við hvern þriðjudagsmorgun kl. 10 til að lesa Biblíuna, biðja saman og eiga gott samtal með það að markmiði að veita hvor öðrum aðhald til að lifa ósviknu andlegu lífi.

Skoðun
Fréttamynd

Ríkið mælir ást

Í kvikmyndinni Green Card er Gérard Depardieu hundeltur af bandarískum yfirvöldum vegna gruns um málamyndahjónaband fyrir landvistarleyfi.

Bakþankar
Fréttamynd

Þjóðkirkjan 2.0

„Við þurfum app!“ Séra Helgi var staðinn upp úr sæti sínu og baðaði höndum til himins eins og undir lokin á velheppnaðri sunnudagsmessu. Hann leit á kollega sína sem virtust ekki sannfærðir og þögðu.

Bakþankar
Fréttamynd

Yfirborðslegt spjall

Skiljanlega er ekki til íslenskt orð yfir "small talk“. Það er ekki þáttur í menningunni. Fólk ræðir veðrið en aldrei af léttúð. Enda oft spurning um líf og dauða hvort maður fer fótgangandi í vinnuna. Þegar tvær manneskjur ræða um veðrið sameinast auðmjúkar sálir í vanmætti sínum gagnvart ósigrandi náttúruöflum.

Bakþankar
Fréttamynd

Samfarir okkar Dollíar Parton

Enginn skyldi vefengja Paulo Coelho þegar hann segir að þú feykir ósk þinni til alheimsins sem síðan reynir að láta hana rætast. Vandinn er hins vegar sá að við erum orðin svo áhrifagjörn að við megum ekki sjá eina bíómynd þá rignir alls konar hégómlegum óskum yfir alheiminn.

Bakþankar
Fréttamynd

Þytur í laufi

Ekkert öskrar íslenskur realismi eins og stingandi ískalt loft og laufhrúgur í innkeyrslu. Brennið sólstólana og dragið fram kakóið, veturinn er loksins kominn.

Bakþankar
Fréttamynd

Víst frelsi einstaklinga

Í umræðum um vínfrumvarpið á þingi sagði Katrín Jakobsdóttir að málið snerist ekki um einstaklingsfrelsi, heldur verslunarfrelsi. Svipuð rök hefur heimspekingurinn Róbert H. Haraldsson sett fram. Hugmyndin er nokkurn veginn þessi: "Áfengi er lögleg vara. Einstaklingar geta keypt áfengi ef þeir vilja. Einstaklingsfrelsi er ekki skert.“ Vandinn er bara að þessi skilgreining á "einstaklingsfrelsi“ er ansi þröng.

Bakþankar
Fréttamynd

Grátt í höllinni

Málefni flóttamanna og innflytjenda eru í algleymingi og stór hluti umræðunnar snýst um hvernig búa megi í haginn til þess að þeim sem náðarsamlegast fá hingað að flytja líði vel.

Bakþankar
Fréttamynd

Það er veisla!

Á Vesturlöndum gerast nú víða spennandi hlutir í stjórnmálum. Í Bandaríkjunum fer eldri borgarinn Bernie Sanders um sem öskrandi byltingarmaður, boðar nýjar áherslur sem hingað til hafa þótt helgispjöll þar í landi. Mannsæmandi kjör fyrir almúgann á kostnað hinna moldríku.

Bakþankar