Bakþankar

Bakþankar

Fréttamynd

Jafngildar tilfinningar

Ég stóð frammi fyrir því fyrir nokkru að missa góðan vin minn til margra ára. Þessi vinur minn er traustur og trúr, skapgóður en stríðinn, ljúfur í lund en á það til að vera fjandi frekur þegar sá gállinn er á honum. Þessi vinur minn hefur líka fjóra fætur og loðinn búk enda stór og stæðilegur hestur.

Bakþankar
Fréttamynd

Skera tærnar af?

Í sögunni um Öskubusku voru tær og hæll sneidd af til að skór passaði á fót. Grikkir sögðu forðum frá Prokrustes, sem teygði fórnarlömb sín eða hjó af þeim fætur til að þeir pössuðu í legstæði. Svona sögur voru mönnum áminning um að óhentugir staðlar valda skaða.

Bakþankar
Fréttamynd

Í fullkominni sambúð

Miðað við hvað trúarbrögð eiga stóran hlut í sögu og menningararfi heimsins er þekking á næringarinnihaldi í matvælum meiri í dag en helstu atriðum trúar­bragða. Sjálf get ég slumpað nokkurn veginn rétt á kolvetnismagnið í „Minna mál" bitum Ágústu Johnson og veit að fituinnihald í Kotasælu er 4,5 grömm (í 100 g). Hins vegar vissi ég ekki fyrr en árið 2001 að ég mætti ekki kalla múslima „múhameðs­trúarmenn". Að Múhameð væri í þeirra trúarheimi svipaður og Abraham í mínum. Allah var maðurinn. Þetta lærði ég fyrir slysni af sjónvarpinu en ekki á skólabekk.

Bakþankar
Fréttamynd

Gelt gelt

Það virðist einkenna Íslendinga um þessar mundir að skiptar skoðanir leiði aldrei af sér frjóa og skapandi umræðu. Kannski eru það vonbrigðin með hið nýja Ísland eða öllu heldur lífseigju hins gamla sem valda því.

Bakþankar
Fréttamynd

Bara grín

Nú er mér létt. Fram til þessa hef ég verið alveg sannfærð um að einum áberandi manni í þjóðfélaginu væri alveg sérstaklega illa við mig. Hann hefur nefnilega skrifað á netið eða látið hafa eftir sér í fjölmiðlum alls konar orð og ég ber virðingu fyrir því sem fólk segir og skrifar opinberlega og reikna með að viðkomandi meini það.

Bakþankar
Fréttamynd

Ömmurnar

Yrði ég einhvern tíma beðin um að tala á kvennafrídaginn myndi ég halda ræðu sem heiðraði ömmur og segja frá því hve ómissandi þær eru. Getur nokkur elskað barn meira en foreldri þess? - Já, amma!

Bakþankar
Fréttamynd

Hvað skal gera við forsetann?

Vilhjálmur Bretaprins og kærasta hans sáust kaupa frosna pitsu og ofnfranskar í verslun á dögunum. Breskir dálkahöfundar, æstir í fréttir af öðru en niður­skurði í ríkisútgjöldum sem einokað hafa umræðuna síðan öxin féll fyrir viku, drógu þá ályktun að kaupin gætu ekki þýtt annað en að konunglegt brúðkaup væri á næsta leiti. Svo óáhugavert virtist

Bakþankar
Fréttamynd

Allar í bæinn

„Sumir karlar eru svo frábitnir öllu kvenlegu/að þeir sjá ekki einu sinni móður sína/fyrir fjallskugga föðurins" segir í ljóðinu Furða eftir skáldið Vilborgu Dagbjartsdóttur. Hún var ein þeirra sem hrundi Kvennafrídeginum af stað fyrir 35 árum og gekk fylktu liði niður á Torg í hópi stoltra kvenna til að sýna hvað vinnuframlag þeirra vóg þungt fyrir samfélagið. Það er ekki aðeins við hæfi að vitna í hana í dag, heldur líka einmitt þetta ljóð. Það er nefnilega furðan sem einkennir gjarnan jafnréttissinna.

Bakþankar
Fréttamynd

Ísland, verst í heimi

Ísland, best í heimi-áróðurinn fór alltaf í taugarnar á mér. Ég elska landið mitt og er viss um að hér býr hellingur af hæfileikaríku fólki, sem nýtir guðsgjafir sínar til góðs. Ég er jafnvel til í að taka svo djúpt í árinni að segja að hér séu alveg jafn stórkostlegir hæfileikar og annars staðar í heiminum, miðað við höfðatölu að sjálfsögðu. Ekki erum við Indland.

Bakþankar
Fréttamynd

Dagar kvenna og hagtalna

Dagarnir líða og allir eru þeir helgaðir einhverju ákveðnu. Það sem af er október hafa liðið bleiki dagurinn og fjólublái dagurinn, dagur hvíta stafsins, dagur gegn einelti, dagur án ofbeldis, dagur myndlistar, dagur samkeppnishæfni og PBS-dagurinn, dagur hrunsins og alþjóðlegur dagur öndunarmælinga.

Bakþankar
Fréttamynd

Vinna af sér „fríið“

Konur eiga að ganga út af vinnustöðum sínum klukkan 14.25 á mánudaginn. Samkvæmt útreikningum eru þær þá víst búnar að vinna tímana sem þær fá greitt fyrir, miðað við karla.

Bakþankar
Fréttamynd

Ég öfunda þig svo…

Í fermingarfræðslunni í haust heyrði ég: "Ég öfunda þig svo af skónum þínum." "Ég öfunda þig ógeðslega af að fara í helgarferð til London!" "Ég öfunda þig svo… af þessu… af hinu…" Ég spurði öfundarfólkið hvað það meinti með svona setningum og ræddi svo við það um afstöðu og eðli öfundar.

Bakþankar
Fréttamynd

Ekki trufla

Það er alkunna að spjót auglýsingaherferða beinast að því að sýna fólki hvernig líf þess gæti hugsanlega verið. Síðustu árin hefur hamingjan gjarnan verið kynnt til sögunnar sem sjálfhverf „þín stund, þinn staður". Þær stundir eru hljóðeingraðar, stílhreinar, börnin komin í pössun og ekki einn aukasokkur á eldhúsborðinu. Engin háreysti, engin gæludýr, engir nágrannar. Þú átt einlæga stund með sjálfum þér, ávexti eða bolla af góðu kaffi. Og slakar á.

Bakþankar
Fréttamynd

Hvatt til dáða

Landið út við ysta sæ oft er súrt að gista, en bölvað ástand bætir æ að berja nýnasista.

Bakþankar
Fréttamynd

Menningararður

Hingað til hefur verið nokkuð almenn sátt hér á landi um að það séu viss samfélagsleg verðmæti í því að greiða listamönnum laun úr opinberum sjóðum. Að undanförnu hefur sú skoðun gert vart við sig að listir séu fyrst og fremst samfélagslegur lúxus sem við höfum ekki efni á á krepputímum; eins konar andlegt súkkulaði sem fýkur um leið og við þurfum að herða sultarólina. Þetta er misskilningur.

Bakþankar
Fréttamynd

Menningararður

Hingað til hefur verið nokkuð almenn sátt hér á landi um að það séu viss samfélagsleg verðmæti í því að greiða listamönnum laun úr opinberum sjóðum. Að undanförnu hefur sú skoðun gert vart við sig að listir séu fyrst og fremst samfélagslegur lúxus sem við höfum ekki efni á á krepputímum; eins konar andlegt súkkulaði sem fýkur um leið og við þurfum að herða sultarólina. Þetta er misskilningur.

Bakþankar
Fréttamynd

Plús eða mínus?

Það er ekki óvenjulegt að í sambandi sem staðið hefur um nokkurt skeið dragi úr líkamlegri ástríðu með tímanum. Við tölum ekki mikið um það, vegna þess að það er víst mælikvarði á árangur að gera það oft.

Bakþankar
Fréttamynd

Niðurskurður í vinnustaðahúmor

Grænmetisætur lifa ekki lengur en við hin – þær líta bara út fyrir að vera eldri. Sama dag og grænmetisafurðum rigndi yfir íslenskan þingheim við setningu Alþingis setti breska þingið lög sem vernda grænmetisætur gegn bröndurum sem þeim hér að ofan. Með nýrri löggjöf um jafnrétti á breskum vinnustöðum er nú bannað að segja brandara um

Bakþankar
Fréttamynd

Þetta átti aldrei að vera auðvelt

Fyrir forvitni sakir eyddi ég dágóðum tíma í það í gær að lesa tveggja ára gömul dagblöð. Mig langaði að rifja upp hvernig umræðan og ástandið hefði raunverulega verið mánuðinn sem allt fór endanlega í klessu.

Bakþankar
Fréttamynd

Kreppa er jafnréttisteppa

Mánudaginn 25. október, eftir aðeins tvær vikur, halda íslenskar konur kvennafrídag og minnast um leið kvennafrísins mikla fyrir 35 árum. Klukkan 14.25 þennan dag leggja því vonandi sem flestar okkar niður vinnu og sýna þar með hvað vinnuframlag okkar er samfélaginu mikilvægt. Tímasetningin er engin tilviljun því samkvæmt fróðum freyjum hafa íslenskar konur þegar unnið fyrir laununum sínum kl. 14.25 og ættu því í raun alltaf að geta stimplað sig út á þessum tíma. Konur eiga nefnilega enn langt í land með að ná sömu launum og karlar.

Bakþankar
Fréttamynd

Leitin að ljúfa október

Mér hefur alltaf þótt vænt um október. Þá ná haustlitirnir hámarki í allri sinni dýrð, uppnámið sem skapast í septem­ber þegar nýjar skorður eru settar á daglegt líf eftir upplausn sumarleyfa er að baki og veturinn blasir við, fullur af bókum og tónlist, kertaljósi og notalegum kulda.

Bakþankar
Fréttamynd

Hvað á þetta að þýða!

Stjórnarandstaðan mætti ekki á fund ráðherra var fyrirsögn fréttar á Vísir.is í gær. Svo ég vitni nánar í fréttina átti á fundinum að ræða aðgerðir til að koma til móts við skuldavanda heimilanna! Enginn fulltrúi stjórnarandstöðunnar mætti en í Fréttablaðinu í gær var haft eftir forsætisráðherranum á forsíðunni að stjórnarandstaðan hefði víst ekki tekið vel í samstarf.

Bakþankar
Fréttamynd

Gull í kóngssorpinu

Heimsins kóngalýður er, í mínum huga, þjóðum sínum yfirleitt til ósóma frekar en hitt. Ég finn til með fjámálaráðherrum þessara þjóða, nú á niðurskurðartímum, að geta ekki skorið þennan tilvalda útgjaldalið af rétt eins og botnlangatotu af sjúklingi með botnlangabólgu.

Bakþankar
Fréttamynd

101 Öxará

Hvað tekur þú með þér inn í haust, myrkur og vetur? Hvaða liti, hljóð, sögur, orð og upplifanir eru þitt vetrarnesti? Ég nýt þeirrar blessunar með konu minni að horfa líka á veröldina með fimm ára drengjum okkar.

Bakþankar
Fréttamynd

Sönn íslensk furðusaga

Fyrir um þremur árum vaknaði ég einn morguninn upp við þá undarlegu tilfinningu að talfæri mín væru andsetin. Málstöðvarnar höfðu fundið drekasvæði blótsyrða í heilabúinu.

Bakþankar
Fréttamynd

Orð

Ég hef yndi af orðum. Þau hafa persónuleika. Það er eins og sum orð beinlínis iði af lífi; "keikur", "dillandi", "kotroskinn", á meðan önnur nánast lúta höfði í hljóðri auðmýkt; "náð", "andvari", "hógvær". Sum orð eru þess eðlis að maður finnur næstum því ilminn og sér safann drjúpa af þeim;

Bakþankar
Fréttamynd

Á hærra plani

Munið þið eftir því þegar brandarakallinn í Seðlabankanum líkti starfslokum sínum við aftöku Jesú Krists? Það féll í frekar grýttan jarðveg.

Bakþankar
Fréttamynd

Dugleg-fasismi 2

Fyrir nokkru skrifaði ég pistil um "dugleg-fasisma", sem er útbreiddur hér á landi. Um það hvernig við ölum börnin okkar upp við það frá unga aldri að vera dugleg. Sem í sjálfu sér væri kannski ekki alslæmt, ef við notuðum orðið duglegur bara þegar eitthvað væri raunverulega þess virði að hrósa fyrir.

Bakþankar