Tveir í gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikils mansalsmáls Tveir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 27. desember vegna gruns um umfangsmikla brotastarfsemi sem varðar mansal. Innlent 5. desember 2023 13:12
„Mín ábyrgð er talsverð“ Meiriháttar athugasemdir eru gerðar við íslenskt fullnustukerfi í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar. Staða húsnæðismála á Litla-Hrauni sé grafalvarleg og ógni heilsu starfsfólks og fanga. Brýnt sé að ráðast í viðhald á meðan framkvæmdir við nýtt fangelsi standi yfir. Fangelsismálastjóri segist lítið geta gert meðan fjármagn skortir. Innlent 4. desember 2023 23:00
Allt að sex ára fangelsisdómar í stóra skútumálinu Þrír danskir ríkisborgarar voru sakfelldir í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að standa að innflutningi á 157 kílóum af hassi. Innlent 4. desember 2023 14:59
Dæmd fyrir að þiggja styrk fyrir bíl sem hún keypti aldrei Fertug kona hefur verið dæmd til fjögurra mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir fjársvik, með því að hafa þegið styrk fyrir bíl sem hún keypti ekki. Innlent 4. desember 2023 13:17
Tólf ára dreng frá Palestínu verði vísað úr landi Tólf ára strák frá Palestínu sem hefur búið á hjá íslenskri fjölskyldu á Íslandi undanfarna mánuði hefur verið neitað um vernd. Að öllu óbreyttu verður honum vísað úr landi ásamt fjórtán ára frænda sínum til Grikklands þar sem engin fjölskylda bíður þeirra. Innlent 3. desember 2023 23:26
Ekki dæmdar bætur: Réðst á heimili sitt, flúði og ók í veg fyrir lögreglu Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að íslenska ríkið og tvö tryggingafélög beri ekki bótaábyrgð vegna áreksturs sem maður lenti í við lögreglubíl í maí árið 2018. Lögreglubíllinn fór aftan í bíl mannsins með þeim afleiðingum að hann endaði utan vegar og maðurinn hálsbrotnaði við það. Innlent 3. desember 2023 21:38
Mál Eddu hljóti að vera einsdæmi Þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur lagt fram fyrirspurn varðandi handtöku og afhendingu á íslenskum ríkisborgurum, vegna máls Eddu Bjarkar Arnardóttur sem var nýlega framseld til Noregs. Þingmaðurinn telur að málið hljóti að vera einsdæmi. Edda Björk var úrskurðuð í mánaðarlangt gæsluvarðhald í Noregi í gær. Innlent 3. desember 2023 15:31
Segir ekki lengur hægt að sækja börnin til Íslands Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrverandi þingkona, segir þá lagalegu stöðu komna upp að ekki sé hægt að sækja börn Eddu Bjarkar Arnardóttur til landsins. Ástæðan fellst meðal annars í því að búið sé að flytja hana úr landi. Innlent 3. desember 2023 13:15
Viðurkenndi að hafa „lúbarið“ samfanga sinn en dró það svo til baka Karlmaður hlaut á dögunum þriggja mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Suðurlands vegna tveggja líkamsárása sem áttu sér stað í fangelsinu Litla-Hrauni. Fyrri árásin átti sér stað í október árið 2021, og sú seinni í nóvember 2022. Maðurinn hafði áður hlotið 18 dóma fyrir refsiverða háttsemi. Innlent 2. desember 2023 20:43
Edda Björk í gæsluvarðhaldi Edda Björk Arnardóttir, sem var framseld til Noregs í gær, hefur verið úrskurðuð í þrjátíu daga gæsluvarðhald í Þelamerkurfangelsi. Þetta staðfestir Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður Eddu í samtali við fréttastofu. Innlent 2. desember 2023 18:54
Segir málið á ábyrgð dómsmálaráðuneytisins Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, segir að ráðuneytið sitt geti ekki blandað sér í mál Eddu Bjarkar Arnardóttur og barnanna hennar og segir málið alfarið vera á ábyrgð dómsmálaráðuneytisins. Innlent 2. desember 2023 17:53
Vissi síðast af Eddu Björk á flugvellinum í Kaupmannahöfn Systir Eddu Bjarkar Arnardóttur, sem var framseld til Noregs í gær, hefur ekkert heyrt frá henni frá framsalinu. Hún segir mikilvægt að hlustað verði á syni Eddu í forræðisdeilu hennar við barnsföður sinn. Innlent 2. desember 2023 15:50
Hrottalegt nauðgunarmál á Grænlandi Héraðsdómstóll Sermersooq á Grænlandi dæmdi 23 ára mann fyrir tvær hrottafengnar nauðganir. Erlent 1. desember 2023 22:12
Eddu Björk hafi verið gert að tala norsku við börnin sín Helga Vala Helgadóttir lögmaður og fyrrverandi þingkona Samfylkingarinnar segir ekki nóg hlustað á börnin í forsjármáli Eddu Bjarkar Arnardóttur sem framseld var til Noregs í dag. Hún gagnrýnir einnig framferði norskra yfirvalda í málum sem varða börn. Þetta og fleira ræddi hún í viðtali í Reykjavík síðdegis í dag Innlent 1. desember 2023 21:28
Dæmdur fyrir ofsaakstur á stolnum bíl undan lögreglu Landsréttur hefur staðfest tveggja ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni vegna fjölda brota sem áttu sér flest stað í fyrra. Innlent 1. desember 2023 19:57
Edda Björk farin úr landi Edda Björk Arnardóttir var framseld til Noregs seinni partinn í dag. Hún hefur verið sökuð um að hafa flutt börn sín í leyfisleysi frá Noregi til Íslands á síðasta ári. Innlent 1. desember 2023 18:00
Ekki á færi sýslumanns að láta lýsa eftir börnunum Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, Sigríður Kristinsdóttir, segir það ekki á dagskrá embættisins að óska þess að lögreglan lýsi eftir börnum Eddu Bjarkar Arnardóttur. Það sé ekki á valdi embættisins. Innlent 1. desember 2023 17:11
Stórkostlegt gáleysi að fjarlægja eggjastokk án leyfis Landsréttur hefur dæmt Sjúkratryggingar Íslands til þess að greiða konu 1,5 milljónir króna í miskabætur vegna stórkostlegs gáleysis læknis. Sá fjarlægði vinstri eggjastokk konunnar án þess að hún veitti samþykki fyrir. Innlent 1. desember 2023 16:02
Piltar fyrir Landsrétt í manndrápsmáli Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja Fjarðarkaupsmálinu svokallaða til Landsréttar. Fyrir tæpum mánuði síðan sakfelldi Héraðsdómur Reykjaness þrjá unga menn og stúlku fyrir sína þætti í manndrápi á 27 ára gömlum pólskum karlmanni við Fjarðarkaup í Hafnarfirði í apríl síðastliðnum. Innlent 1. desember 2023 15:31
Segir allar ákvarðanir í máli Eddu Bjarkar samkvæmt lögum Landsréttur hefur staðfest úrskurð um gæsluvarðhald Eddu Bjarkar Arnardóttur. Dómsmálaráðherra segir í yfirlýsingu að ráðherra og ráðuneyti hennar hafi enga að komu að málinu. Ríkissaksóknari hafi tekið allar ákvarðanir í málinu og að þær séu allar samkvæmt lögum. Innlent 1. desember 2023 15:10
Óskar eftir áfrýjunarleyfi Hæstaréttar Fræðagarður, stéttarfélag blaðamannsins Björns Þorlákssonar, hefur óskað eftir áfrýjunarleyfi Hæstaréttar vegna máls sem Björn höfðaði gegn Kjara-og mannauðssýslu ríkisins. Innlent 1. desember 2023 14:44
Edda snúin niður og er á leið til Noregs Edda Björk Arnardóttir hefur verið flutt úr fangelsinu á Hólmsheiði og verður flutt til Noregs. Innlent 1. desember 2023 13:58
Sex lífeyrissjóðir í óvissu eftir nýjan dóm Miklar líkur eru á að Lífeyrissjóður verzlunarmanna áfrýi dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem ógilti í gær breytingar á lífeyrisréttindum hjá sjóðnum eftir aldri. Þetta segir lögmaður sjóðsins. Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi fyrir nokkra lífeyrissjóði en nú er verið er að reikna kostnaðinn út yrði þetta endanlega niðurstaða. Innlent 1. desember 2023 13:37
Deilur skuli útkljáðar fyrir dómstólum, ekki á vegslóða við Hólmsheiði Formaður Lögmannafélags Íslands segir að þó einhverjum kunni að mislíka niðurstaða norskra dómstóla um að faðir barna Eddu Bjarkar Arnardóttur skuli fara með forsjá þeirra, þýði það ekki að borgararnir eigi að taka lögin í sínar hendur. Innlent 1. desember 2023 12:24
Ákærður fyrir að reyna að bana fyrrverandi: Lífsýni á áfengisflösku á vettvangi Maður sem er grunaður um hrottafengna árás gegn fyrrverandi kærustu sinni er ákærður fyrir að reyna að verða henni að bana. Þetta kemur fram í úrskurði Landsréttar sem var kveðinn upp í gær um gæsluvarðhald á hendur manninum. Innlent 1. desember 2023 12:02
Hnefarétturinn Í morgun voru sagðar fréttir af því að hópur fólks hefði safnast saman við fangelsið á Hólmsheiði og ætlaði að sögn að koma í veg fyrir flutning konu til Noregs „með öllum tiltækum ráðum.“ Skoðun 1. desember 2023 12:01
Segir gróflega brotið á réttindum Eddu Bjarkar Landsréttur hefur enn ekki skilað úrskurði sínum í máli Eddu Bjarkar Arnardóttur. Lögmaður hennar, Jóhannes Karl Sveinsson, kærði niðurstöðu héraðsdóms um gæsluvarðhald hennar til Landsréttar fyrr í vikunni. Innlent 1. desember 2023 11:37
„Flugvélin er farin og Edda er enn á Hólmsheiði“ „Við erum farin. Flugvélin er farin og Edda er enn á Hólmsheiði,“ segir Ragnheiður Arnardóttir, systir Eddu Bjarkar Arnardóttur. Um sautján bílar lokuðu aðkomunni að fangelsinu í nótt. Innlent 1. desember 2023 08:45
Bíða enn og verða við fangelsið þar til flugvélin er farin „Það er ekkert að frétta, við erum ennþá hérna. Lögfræðingurinn hennar hefur ekki heyrt í neinum,“ segir Ragnheiður Arnardóttir, systir Eddu Bjarkar Arnardóttir, sem fékk þau skilaboð í gær að til stæði að flytja hana til Noregs í nótt. Innlent 1. desember 2023 06:26
Ætla að koma í veg fyrir flutning Eddu með öllum tiltækum ráðum Vinir og vandamenn Eddu Bjarkar Arnardóttur, sem til stendur að flytja til Noregs í nótt, hafa fjölmennt við fangelsið á Hólmsheiði til þess að vekja athygli á máli hennar. Systir hennar segir þau munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að koma í veg fyrir að Edda Björk verði flutt úr fangelsinu. Innlent 1. desember 2023 02:04