
Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“
Stærsti gígurinn í eldgosinu við Grindavík líkist nokkuð öðrum og eldri gígum á Reykjanesskaga. Erfitt er að nálgast gígana eins og staðan er þessa dagana en nýjar drónamyndir varpa ljósi á hvernig þeir líta út.
Hrina eldgosa á Reykjanesskaga hófst í mars 2021 í Geldingadölum. Það níunda varð norðan Grindavíkur í ágúst 2024.
Stærsti gígurinn í eldgosinu við Grindavík líkist nokkuð öðrum og eldri gígum á Reykjanesskaga. Erfitt er að nálgast gígana eins og staðan er þessa dagana en nýjar drónamyndir varpa ljósi á hvernig þeir líta út.
Svokallaður hamfaragámur hefur verið tekinn í gagnið við verslun Bónus í Njarðvík en búnaður í gámnum mun tryggja matvælaöryggi íbúa Suðurnesja ef til vatns- eða rafmagnsleysis kemur vegna eldgosa.
Alls hafa 546 Grindvíkingar óskað eftir því að selja Fasteignafélaginu Þórkötlu ehf. íbúðarhúsnæði sitt. Þrátt fyrir mikinn fjölda umsókna stefnir félagið enn að því að hefja kaupin í byrjun apríl.
Enn er hætta á gasmengun og er útlit fyrir að mengunin berist til vesturs og suðvesturs í dag, meðal annars yfir Svartsengi, Hafnir og Grindavík. Huga þarf að loftgæðum. Virkni eldgossins er enn stöðug og hefur verið þar frá mánudegi. Enn mælist landris en það er hægara en áður.
Bláa lónið hefur samtals verið lokað í rúmlega áttatíu daga frá því að jarðhræringarnar við Grindavík hófust fyrir fimm mánuðum. Óvíst er hvenær hægt verður að opna á ný vegna hættulegrar gasmengunnar.
Verktakar vinna nú allan sólarhringinn að varnargörðum umhverfis Grindavík áður en haldið er í kærkomið páskafrí. Nýrunnið hraun er notað til að hækka garðana.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir óbreytt ástand í Grindavík og í kring og því ekki forsvaranlegt að halda úti starfsemi í Bláa lóninu á meðan eldgos er enn í gangi. Það eigi einnig við um aðra starfsemi á svæðinu.
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir ljóst að bæjarstjórn Grindavíkur þurfi að fara með umsjón sprungufyllinga í bænum. Það sé þó ekki óeðlilegt að sveitarfélagið óski eftir stuðningi til þess. Ótímabært sé þó að lofa einhverjum peningafjárhæðum í verkið.
Á síðustu klukkustundum hefur mikil mengun, sem kemur frá eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni, mælst á mælum Umhverfisstofununar í Höfnum.
Nokkur gasmengun mældist við Bláa lónið í nótt en dregið hefur úr henni nú í morgunsárið.
Bæjaryfirvöld í Grindavík kalla eftir því að ríkið komi að fjármögnun sprungufyllinga og viðgerða í bænum. Verkefnið hleypur á hundruðum milljóna. Níu svæði hafa verið girt af í bænum eftir að niðurstöður úr jarðvegsrannsókn sýndu fram á holrými og hættur sem leynast neðanjarðar.
Vinnutæki af gerð sem kölluð er búkolla í daglegu máli hrundi að hluta til ofan í sprungu í Grindavík í dag. Verið var að álagsprófa nokkrar götur sem lokaðar voru almenningi. Vitað var af nokkrum sprungum og holrýmum og þungum ökutækjum var ekið um svæðið til að kanna burðargetu og öryggi gatnanna.
Svo virðist sem dregið hafi úr eldgosinu við Sundhnúksgíga síðasta sólarhringinn. Virkni í gígunum er minni og mögulega slökknað í minnstu gígunum. GPS-mælingar síðustu daga benda þó til þess að landris sé í gangi í Svartsengi, en mun hægara en áður. Það bendir til þess að enn safnist kvika í söfnunarsvæðið undir Svartsengi þótt eldgos sé í gangi.
Búið er að girða af níu svæði í Grindavík sem talin eru hættuleg og vísbendingar eru um holrými. Það var gert um helgina í kjölfar niðurstaðna jarðkönnunnarverkefnis almannavarna. Verkefnastjóri segir vísbendingar um að fleiri svæði í bænum séu verr farin.
Enn er kraftur í eldgosinu á Reykjanesskaga milli Hagafells og Stóra-Skógfells. Eitthvað dró úr virkni í nótt en þetta gos hefur þó staðið lengur en þrjú síðustu gos á undan.
„Það hefur svona aðeins dregið úr virkninni í nótt,“ segir Elísabet Pálmadóttir náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands um stöðuna á eldgosinu á Reykjanesskaga.
Hætta er á gasmengun við Hafnir og í Grindavík í dag að sögn veðurfræðings hjá veðurstofunni, en há gildi brennisteinsdíoxíðs mældust þar í nótt og í morgun. Hraun lekur ennþá ofan í Melholsnámu og áfram er unnið að hækkun varnargarðanna.
Á mælum Umhverfisstofununar mælist nú mikil mengun í Höfnum. Vegna þess mæla Almannavarnir með að íbúar á svæðinu loki gluggum og slökkvi á loftræstingu.
Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Vísis flaug dróna yfir eldgosið við Sundhnúksgígaraðirnar í gærkvöldi og fangaði virknina úr nærmynd.
Enn gýs í Sundhnúkagígum og hraunið er orðið hærra en varnargarðarnir sums staðar við Grindavík. Eldstrókarnir sem teygja sig upp í næturhimininn eru sannarlega sjón að sjá.
Lögreglan á Suðurnesjum varar við hugsanlegri gasmengun í Reykjanesbæ vegna breytilegri vindátt í kvöld. Mælt sé með því að fólk í viðkvæmum hópum hafi glugga lokaða og slökkvi á loftræstingu.
„Varnargarðarnir halda þessu enn þá og beina hrauni frá byggð. Hraunið hefur mest verið að þykkna.“
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum telur vart forsvaranlegt að halda úti starfsemi í Bláa lóninu við núverandi aðstæður en hætta er talin á loftmengun vegna eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni.
Undirbúningur fyrir hækkun varnargarðanna norðan við Grindavík hefur staðið yfir í dag. Þá ætla sérfræðingar einnig að leggja mat á hvort hægt verði að sækja til þess efni í Melhólsnámu, eftir að hraun flæddi inn í hana í gær.
Aukin hætta er vegna gasmengunar á öllum svæðum við eldstöðvarnar við Sundhnúk. Hætt er við því að gasmengun muni berast yfir Grindavík og önnur nærliggjandi svæði um helgina.
Ísak Finnbogason hefur á undanförnum árum verið iðinn við að sýna frá eldgosum á Íslandi í beinni útsendingu með drónum. Í gær fangaði hann hraun flæða inn í Melhólsnámu og fylgdust þúsundir með útsendingunni.
Verktakar sem vinna að vegagerð og varnargörðum á Reykjanesi hyggjast freista þess að opna Melhólsnámu, þar sem hraun flæddi inn í gærkvöldi. Til stendur að reyna að útvíkka námuna svo hægt sé að ná í efni sem notað yrði til að hækka varnargarða við Grindavík.
Kvikan sem safnaðist fyrir í Svartsengi flæðir nú beint upp og landri stöðvast. Jarðeðlisfræðingur segir yfirstandandi eldgos sambærilegt atburðum í Fagradalsfjalli. Engin merki séu um að gosið sé að minnka og það geti varað í margar vikur, jafnvel mánuði.
Hraunið sem kemur upp úr eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni fossar nú ofan í Melhólsnámu, sem hefur verið nýtt við gerð varnargarðanna.
Starfsmaður Bláa lónsins, sem leitaði á bráðamóttöku í gær vegna öndunarfæraeinkenna af völdum gasmengunar, er á batavegi. Framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu segir að stjórnendum sé brugðið vegna málsins og það sé tekið alvarlega.