Raikkönen: Hefði átt að vinna allar keppnirnar Finninn Kimi Raikkönen hjá Ferrari segir að slakur árangur sinn í tímatökum hafi einn komið í veg fyrir að hann sigraði í öllum þeim þremur keppnum sem afstaðnar eru á árinu í Formúlu 1. Finninn er í efsta sæti ökuþóra ásamt heimsmeistaranum Fernando Alonso og nýliðanum Lewis Hamilton. Formúla 1 18. apríl 2007 18:15
Lewis Hamilton getur orðið sá besti Martin Whitmarsh, yfirmaður McLaren liðsins í Formúlu 1, segir að Bretinn ungi Lewis Hamilton geti vel orðið besti ökuþór í sögunni. Hamilton hefur vakið heimsathygli fyrir að komast á verðlaunapall í fyrstu þremur mótum sínum sem aðalökumaður. Formúla 1 18. apríl 2007 17:15
Massa sigraði í Barein - Hamilton enn í verðlaunasæti Brasilíski ökuþórinn Felipe Massa hjá Ferrari kom fyrstur í mark í Barein kappakstrinum í Formúlu 1 sem fram fór í dag. Breska ungstirnið Lewis Hamilton á McLaren varð annar og þar með fyrsti nýliðinn sem kemst á verðlaunapall í fyrstu þremur keppnum sínum. Kimi Raikkönen á Ferrari varð þriðji og heimsmeistarinn Fernando Alonso á McLaren fimmti. Formúla 1 15. apríl 2007 14:41
Massa á ráspól í Barein Ferrari-ökumaðurinn Felipe Massa verður á ráspól í Barein kappakstrinum í Formúlu 1 sem fram fer á morgun. Massa var með besta tímann í tímatökum í morgun og ungstirnið Lewis Hamilton hjá McLaren var annar. Kimi Raikkönen hjá Ferrari var með þriðja besta tímann og heimsmeistarinn Fernando Alonso fjórði. Formúla 1 14. apríl 2007 12:25
Hamilton í sögubækurnar? Breski ökuþórinn Lewis Hamilton hjá McLaren á möguleika á að rita nafn sitt í sögubækur í Barein-kappakstrinum í Formúlu 1 á sunnudaginn. Þar getur hann orðið fyrsti nýliðinn til að komast á verðlaunapall í fyrstu þremur keppnum sínum á ferlinum. Formúla 1 12. apríl 2007 17:15
Tvöfaldur sigur McLaren Heimsmeistarinn Fernando Alonso sigraði í formúlu 1 kappakstrinum sem fram fór í Malasíu í morgun með miklum yfirburðum en félagi hans hjá McLaren, hinn breski Lewis Hamilton, stal senunni með frábærum akstri. Alonso og Hamilton tóku fram úr Felipe Massa strax í fyrstu beygju, en sá brasilíski var á ráspól, og stungu keppinautana frá Ferrari hreinlega af. Formúla 1 8. apríl 2007 12:03
Massa verður á ráspól Felipe Massa hjá Ferrari verður á ráspól í Malasíukappakstrinum í formúlu 1 sem fram fer á morgun en brasilíski ökuþórinn reyndist hraðskreiðastur í tímatökunum nú í hádeginu. Heimsmeistarinn Fernando Alonso frá Spáni hafnaði í öðru sæti en Kimi Raikönnen, sigurvegari fyrsta mótsins í Ástralíu í síðasta mánuði, ræsir þriðji á morgun. Formúla 1 7. apríl 2007 12:10
Hamilton sigurviss Ungstirnið Lewis Hamilton hjá McLaren í Formúlu 1 segist fullviss um að hann muni næla í sinn fyrsta mótsigur á sínu fyrsta keppnistímabili. Hamilton hafnaði í þriðja sæti í sinni fyrstu keppni í Ástralíu á dögunum og hinn 22 ára gamli Breti ætlar sér stóra hluti í sumar. Sport 5. apríl 2007 18:16
Raikkönen fljótastur á Sepang í dag Kimi Raikkönen var í miklu stuði á æfingum í Sepang í Malasíu í dag og náði besta tímanum á Ferrari bíl sínum. Hann var hálfri sekúndu á undan Alexander Wurz hjá Toyota, en sá ók 114 hringi á brautinni í dag - helmingi fleiri en Finninn. Skotinn David Coulthard náði þriðja besta tímanum á Red Bull- Renault bíl sínum. Formúla 1 28. mars 2007 17:19
Raikkonen á að fá að drekka að vild Eddie Jordan, ein af helstu goðsögnu formúlu 1, hefur beðið forráðamenn Ferrari um að hafa ekki áhyggjur af óhóflegri drykkju finnska ökumannsins Kimi Raikkonen, en sá er sagður vera mikið fyrir að fara út á lífið og fá í tána. Jordan segir að á meðan Raikkonen haldi áfram að aka eins og hann hefur verið að gera geti drykkjan ekki annað en verið að gera honum gott. Formúla 1 25. mars 2007 18:30
Formúla 1 í opinni dagskrá á Sýn 2008 Sjónvarpsstöðin Sýn hefur tryggt sér þriggja ára sýningarrétt á Formúlu 1 frá og með næsta keppnistímabili. Formúla 1 hefur verið eitt vinsælasta íþróttaefni í íslensku sjónvarpi um árabil og verða beinar útsendingar frá tímatökum og keppnum í opinni dagskrá. Sýn hefur þegar tryggt sér sýningarréttinn frá ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu frá og með næsta keppnistímabili. Sport 20. mars 2007 16:00
Raikkönen byrjar vel hjá Ferrari Kimi Raikkönen sigraði í ástralska kappakstrinum í Formúlu 1 í nótt og vann þar með sigur í fyrstu keppni sinni hjá Ferrari-liðinu. Það var samt nýliðinn Lewis Hamilton hjá McLaren sem stal senunni í dag þegar hann náði þriðja sætinu í sinni fyrstu keppni á ferlinum. Félagi hans og heimsmeistarinn Fernando Alonso varð í öðru sæti, en McLaren bílarnir höfðu ekki roð við sprækum Ferrari-bílnum. Formúla 1 18. mars 2007 13:48
Raikkönen á ráspól Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen verður á ráspól í Melbourne í Ástralíu á morgun þegar fyrsta keppni ársins fer fram í Formúlu 1. Þetta var í 12. skipti á ferlinum sem Raikkönen nær ráspól og gefur góð fyrirheit um framhaldið hjá honum í sinni fyrstu keppni fyrir Ferrari. Heimsmeistarinn Fernando Alonso, sem einnig ekur fyrir nýtt lið, náði öðrum besta tímanum á McLaren bíl sínum og Nick Heidfeld og Lewis Hamilton urðu í þriðja og fjórða sæti. Formúla 1 17. mars 2007 14:07
Ferrari getur unnið án Schumachers Ross Brawn, fyrrum tæknistjóri Ferrari í Formúlu 1, segir að liðið sé í góðri aðstöðu til að vinna titil bílasmiða á komandi tímabili þó það njóti ekki lengur krafta hins magnaða Michael Schumachers. Hann segir liðið í góðum málum með þá Kimi Raikkönen og Felipa Massa við stýrið. Formúla 1 13. mars 2007 19:15
Scumacher er ekki að kaupa Toro Rosso Gerhard Berger, annar tveggja eiganda Toro Rosso liðsins í formúlu 1, segir ekkert hæft í þeim fréttum að hann sé um það bil að selja sinn hlut til Michael Scumacher, fyrrum heimsmeistara í formúlunni. Formúla 1 11. mars 2007 14:25
Ecclestone: Massa verður meistari Formúlumógúllinn Bernie Ecclestone segir að Brasilíumaðurinn Felipe Massa hjá Ferrari sé að sínu mati líklegasti ökuþórinn til að verða heimsmeistari á komandi keppnistímabili í Formúlu 1. Formúla 1 6. mars 2007 18:37
Alonso: Ferrari skrefinu á undan Heimsmeistarinn Fernando Alonso sem nú ekur fyrir McLaren í Formúlu 1, segir að Ferrari sé skrefinu á undan sínum mönnum á síðustu vikunum fyrir fyrstu keppni ársins sem fram fer í Ástralíu þann 18. mars. Formúla 1 5. mars 2007 16:58
Button er ekki bjartsýnn Ökuþórinn Jenson Button segir að Honda bíllinn í ár standi öðrum bílum töluvert langt að baki og hann sé því ekki bjartsýnn á góðan árangur á komandi leiktíð í formúlu 1 kappakstrinum. Forráðamenn Honda liðsins höfðu áður gert sér vonir um að berjast um sjálfan heimsmeistaratitilinn á þessu tímabili. Formúla 1 23. febrúar 2007 17:00
Raikkönen er ofmetinn ökumaður Fyrrum heimsmeistarinn í Formúlu 1, Jacques Villeneuve, segir að finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen hjá Ferrari sé ofmetinn ökumaður. Hann segir þann finnska ekki hafa það til að bera sem þurfi til að fylla skó Michael Schumacher hjá þeim rauðu. Formúla 1 19. febrúar 2007 17:01
Alonso segir bílinn ekki tilbúinn Ökuþórinn Fernando Alonso, heimsmeistari síðustu tveggja ára í formúlu 1 kappakstrinum, reynir sitt besta til að draga úr væntingum til sín fyrir komandi tímabil í formúlunni með því að lýsa yfir áhyggjum sínum af keppnisbíl McLaren. Hinn 25 ára gamli Alonso yfirgaf herbúðir Renault í haust og gekk í raðir McLaren. Formúla 1 9. febrúar 2007 15:32
Formúlan fer til Abu Dhabi Formúlumógúllinn Bernie Ecclestone hefur náð samkomulagi við yfirvöld í Abu Dhabi í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum um að þar verði keppt í Formúlu 1 frá árinu 2009. Ekkert verður að venju til sparað við hönnun brautarinnar sem Ecclestone fullyrðir að verði sú besta í heiminum og verður hún byggð á manngerðri eyju. Sport 3. febrúar 2007 15:39
Barichello ánægður með nýja bílinn Rubens Barichello kveðst mjög ánægður með nýja RA107-keppnisbíl Hondu liðsins í formúlu 1 en hann prufukeyrði hann í fyrsta sinn í vikunni. Barichello skipar lið Honda á komandi tímabili í formúlunni ásamt Jenson Button og segist sá brasilíski hlakka mikið til samstarfsins. Formúla 1 27. janúar 2007 20:15
Frumraun Raikkönen á morgun Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen mun á morgun þreyta frumraun sína í Ferrari-bílnum þegar liðið heldur bílprófanir á Vellelungabrautinni í grennd við Róm á Ítalíu. Raikkönen hefur enn ekki ekið Ferraribílnum formlega síðan hann gekk í raðir liðsins í sumar, en hann mun aka gamla bílnum á morgun á meðan félagi hans Felipe Massa fær að prófa nýja bílinn. Sport 22. janúar 2007 16:49
Alonso mjög sáttur við nýja bílinn Heimsmeistarinn Fernando Alonso lét ekki smá olíuleka skemma fyrir sér frumraun sína á nýja McLaren bílnum í Valencia í gær. Þetta var í fyrsta skipti sem Alonso ók MP4-22 bílnum og sagði Spánverjann bílinn virka mjög vel. Þá hafa fyrrum félagar Alonso í Renault einnig tekið nýjan bíl í notkun og hefur sá verið kallaður R27. Formúla 1 18. janúar 2007 13:42
Schumacher fengi hjartaáfall í Nascar Fyrrum Formúluökuþórinn Juan Pablo Montoya tók ekki vel í ummæli Michael Schumacher þegar sá þýski lýsti yfir furðu sinni á ákvörðun Kólumbíumannsins að hætta í Formúlu og fara í Nascar í Bandaríkjunum. Formúla 1 17. janúar 2007 17:12
BMW Sauber stefnir á verðlaunapall Forráðamenn BMW Sauber-liðsins í Formúlu 1 ætla liðinu að komast oftar á verðlaunapall á komandi keppnistímabili og setja stefnuna á að keppa um titilinn árið 2009. BMW tók við liði Sauber í lok árisins 2005 og komust ökumenn liðsins tvisvar á verðlaunapall á síðasta tímabili. Formúla 1 16. janúar 2007 14:21
Alonso stefnir á sigur með McLaren Heimsmeistari síðustu tveggja ára í formúlu 1, Spánverjinn Fernando Alonso, er sigurviss fyrir komandi tímabil í kappakstrinum. Alonso skipti úr herbúðum Renault í McLaren eftir síðasta tímabil og telur hann að keppnisbíll McLaren eigi mikið inni þrátt fyrir að liðið hafi ekki unnið eina einustu keppni í fyrra. Formúla 1 15. janúar 2007 20:55
Massa hlakkar til að keyra nýja bílinn Felipe Massa, annar ökumaður Ferrari-liðsins í formúlu 1 kappakstrinum á komandi tímabili, er mjög ánægður með hinn nýja bíl Ferrari sem frumsýndur var í gær. Formúla 1 15. janúar 2007 14:15
Jordan: Schumacher verður goðsögn Eddie Jordan, stofnandi og æðsti yfirmaður Jordan-liðsins í formúlu 1, segir að orðspor Michael Schumcaher í íþróttinni muni aukast til muna á næstum misserum nú þegar hann er hættur að aka. Jordan, sem gaf Schumacher fyrst tækifæri í formúlu 1 árið 1991, telur að Schumacher verði orðinn goðsögn innan fárra ára. Formúla 1 15. janúar 2007 12:45
Ralf er ekki að hætta Ökuþórinn Ralf Schumacher segir að ekkert sé til í þeim fregnum að hann hyggist hætta í formúlu eftir að núverandi samningur hans við Toyota rennur út eftir næsta tímabil. Schumacher hefur enn ekki skrifað undir nýjan samning við Toyota og við það fóru sögusagnirnar af stað. Formúla 1 14. janúar 2007 19:30