Tinna: Ég veit ekki hvort ég eigi að kalla þetta heppni „Þetta var svolítið spennandi á lokaholunum en það var bara gaman," sagði Tinna Jóhannsdóttir eftir að fyrsti Íslandsmeistaratitilinn hennar var í höfn en hún var þá í viðtali við Pál Ketilsson í beinni útsendingu sjónvarpsins. Íslandsmótið í höggleik fór í Kiðjaberginu og lauk í kvöld. Golf 25. júlí 2010 18:30
Birgir Leifur Íslandsmeistari í golfi í fjórða skipti Birgir Leifur Hafþórsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar er Íslandsmeistari karla í golfi árið 2010 en hann átti frábæran lokadag á Íslandsmótinu í höggleik á Kiðjabergsvellinum. Þetta er í fjórða sinn sem Birgir Leifur verður Íslandsmeistari en hann vann einnig Íslandsmeistaratitilinn 1996, 2003 og 2004. Golf 25. júlí 2010 18:05
Tinna Íslandsmeistari í golfi í fyrsta skipti Tinna Jóhannsdóttir úr Golfklúbbnum Keili er nýr Íslandsmeistari í golfi en hún fylgdi eftir góðum þriðja hring hjá sér og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn með flottum lokahring á Íslandsmótinu í höggleik í Kiðjabergi í dag. Golf 25. júlí 2010 17:10
Rástímar lokahrings Íslandsmótsins í höggleik í dag Lokahringur Íslandsmótsins á Kiðjabergsvelli fer fram í dag og annað kvöld verða krýndir nýir Íslandsmeistarar. Það er mjög jöfn og spennandi keppni í bæði karla og kvennaflokki og það verður því mikil golfveisla í Grímsnesinu í dag. Golf 25. júlí 2010 06:00
Ólafía Þórunn: Sautján ára og búin að vera efst allt mótið Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR hefur staðið sig frábærlega á Íslandsmótinu í höggleik á Kiðjabergsvelli og er með eins högg forskot fyrir lokahringinn. Ólafía sýndi mikinn styrk í lokin á þriðja hringnum í dag þegar hún lék þrjár síðustu holurnar á tveimur höggum undir pari og náði aftur forustunni í mótinu. Golf 24. júlí 2010 21:00
Sigmundur Einar: Frábært að fá fugl á lokaholunni Sigmundur Einar Másson tryggði sér eins högg forskot fyrir lokadaginn á Íslandsmótinu í höggleik eftir spennandi þriðja hring í Kiðjaberginu í gær. Sigmundur Einar var einnig með forustu fyrir lokahringinn þegar hann varð Íslandsmeistari fyrir fjórum árum síðan. Golf 24. júlí 2010 20:30
Mikil spenna fyrir lokadaginn - Sigmundur Einar með forustu Sigmundur Einar Másson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar er með eins högg forskot fyrir lokadaginn á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fer á Kiðjabergsvellinum. Það er mikil spenna í mótinu enda þrír næstu menn aðeins einu höggi á eftir Sigmundi. Golf 24. júlí 2010 18:49
Örvar endaði hringinn á sex fuglum í röð og jafnaði vallarmetið Örvar Samúelsson úr Golfklúbbi Akureyrar átti ótrúlegan þriðja hring á Íslandsmótinu í höggleik í Kiðjaberginu í dag. Örvar lék holurnar átján á 68 höggum eða þremur höggum undir pari og jafnaði með því vallarmet Birgis Leifs Hafþórssonar frá því á fyrsta degi. Golf 24. júlí 2010 18:35
Tinna jafnaði vallarmetið en Ólafía heldur forustunni Tinna Jóhannsdóttir úr Keili lék best á þriðja deginum á Íslandsmótinu í höggleik á Kiðjabergsvelli. Tinna lék þriðja hringinn á pari í dag, jafnaði vallarmetið og vann upp fimm högg á Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur úr GR. Ólafía hélt samt eins höggs forskoti fyrir lokadaginn en Ólafía hefur verið efst allt mótið. Golf 24. júlí 2010 17:30
Sigurpáll: Völlurinn skilur að þá góðu og þá villtu Birgir Leifur Hafþórsson leiðir enn Íslandsmótið í golfi sem fer fram á Kiðjabergsvelli um helgina. Hann lék á einu höggi yfir pari í gær en er með tveggja högga forystu á Heiðar Davíð Bragason og Sigmund Einar Másson. Golf 24. júlí 2010 10:15
Veruleg vandræði Valdísar Það var þungt hljóð í ríkjandi Íslandsmeistara eftir annan hringinn í Kiðjabergi í gær. Valdís Þóra Jónsdóttir spilaði hringinn á 83 höggum, tólf yfir pari vallarins. Golf 24. júlí 2010 09:30
Klúbbmeistarinn púttaði aðeins nítján sinnum Klúbbmeistari Kiðjabergsklúbbsins kann greinilega vel á flatirnar á heimavelli sínum. Hann notaði aðeins nítján pútt á fyrsta hring Íslandsmótsins, á flötunum átján. Golf 24. júlí 2010 08:30
90 keppendur eftir á Íslandsmótinu Alls keppa 73 karlar í dag á Íslandsmótinu og 17 konur. Þetta er ljóst eftir niðurskurðinn sem gerður var eftir fyrri tvo hringina. Golf 24. júlí 2010 08:00
Sló ofan í holuna af 110 metra færi og fékk örn Heimamaðurinn Haraldur Franklín fékk glæsilegan örn á Kiðjabergsvelli í gær. Örninn kom á fjóðru holu Íslandsmótsins eftir glæsilegt upphafshögg. Golf 24. júlí 2010 07:00
Örn Ævar sló næstum inn í klúbbhúsið Örn Ævar Hjartarson úr GS sló annað höggi inn á 18. braut nánast inn í klúbbhúsið í dag á Íslandsmótinu í golfi sem fer fram á Kiðjabergsvelli. Annað högg Arnar misheppnaðist algjörlega. Golf 23. júlí 2010 22:00
Birgir Leifur með tveggja högga forystu Birgir Leifur Hafþórsson er enn efstur á Íslandsmótinu í golfi sem nú er hálfnað. Birgir lék á einum yfir pari í dag en hefur tveggja högga forysta á næstu menn. Golf 23. júlí 2010 20:07
Ólafía áfram með forustu hjá konunum - Nína lék best í dag Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er með þriggja högga forskot eftir annan daginn á Íslandsmótinu í höggleik á Kiðjabergsvelli. Ólafía heldur því áfram sömu forustu og hún var með eftir fyrsta daginn. Golf 23. júlí 2010 17:18
Keppendur tímamældir til að flýta leik á Íslandsmótinu í golfi í dag Margir kvörtuðu yfir hægum leik á fyrsta hring á Íslandsmótinu í golfi á Kiðjabergi í gær, enda voru sumir um fimm klukkustundir að leika 18 holur. Mótstjórn tók þá ákvörðun í morgun að tímamæla keppendur með fimm ráshópa millibili og munu tímaverðir ganga með hollunum þrjár brautir í dag. Í morgun þurfti að áminna tvö holl fyrir hægan leik. Þetta kom fram á heimasíðu GKB. Golf 23. júlí 2010 12:54
Birgir Leifur: Rosalega stutt á milli fuglasöngs og skollanna Birgir Leifur Hafþórsson setti glæsilegt vallarmet á Kiðjabergsvelli í gær. Hann lék hringinn á 68 höggum, þremur undir pari. Búið er að setja upp hvíta teiga í fyrsta skipti í sögu vallarins og því féll vallarmetið sem Hlynur Geir Hjartarson setti á mánudaginn fyrst fyrr um daginn þegar Sigurpáll Geir Sveinsson skilaði skorkorti upp á 69 högg í hús. Golf 23. júlí 2010 08:15
Unglingarnir stálu senunni í Kiðjaberginu Þrjár átján ára gamlar stelpur úr GR leiða listann á Íslandsmótinu í höggleik sem hófst í Kiðjabergi í Grímsnesinu í gær. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er efst en hún verður reyndar ekki 18 ára fyrr en í október. Golf 23. júlí 2010 07:30
Birgir Leifur sjóðheitur og leiðir í Kiðjaberginu Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG mun líklega leiða Íslandsmótið í golfi í Kiðjabergi eftir fyrsta daginn en hann var að koma í hús á 68 höggum, eða þrem undir pari, sem er vallarmet. Golf 22. júlí 2010 16:01
Tiger launahæsti íþróttamaður heims Þó svo Tiger Woods hafi orðið af milljónum dollara í auglýsingatekjur þá er hann enn langlaunahæsti íþróttamaður heims samkvæmt lista Sports Illustrated. Golf 22. júlí 2010 15:00
Ólafía með þriggja högga forskot Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR leiðir á Íslandsmótinu í golfi í kvennaflokki eftir fyrsta hringinn í Kiðjabergi. Golf 22. júlí 2010 13:46
Berglind byrjaði Íslandsmótið á þremur fuglum í röð Íslandsmótið í golfi hófst á Kiðjabergsvelli í morgun en framundan eru fjórir spennandi golfdagar við einstakar aðstæður á þessum glæsilega velli í Grímsnesinu. Það eru kjöraðstæður til golfleiks í dag og kylfingar voru fljótir að nýta sér það. Golf 22. júlí 2010 10:30
Kjöraðstæður til golfleiks á fyrsta degi Íslandsmóts Íslandsmótið í golfi hófst á á Kiðjabergsvelli í morgun og frábært veður heilsaði mótsgestum þar sem var logn og hálfskýjað og hiti um 15 stig. Það rigndi í nótt og því kjöraðstæður til golfleiks í dag, á fyrsta degi Íslandsmóts. Mótið er hápunktur golfsumarsins og Eimskipsmótaraðarinnar, enda keppt um eftirsóttustu titla í íslensku golfi. Golf 22. júlí 2010 09:45
Íslandsmót í einstakri náttúrufegurð Mánudaginn síðasta hélt Golfsamband Íslands, GSÍ, svokallað Pro/Am-golfmót en þar fá „venjulegir" kylfingar tækifæri til þess að spila með þeim bestu á sjálfum Íslandsmótsvellinum. Golf 22. júlí 2010 08:30
Aldrei verið eins margir góðir kylfingar á Íslandi Ólafur Björn Loftsson tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í Grafarholti í fyrra á dramatískan hátt. Hann kom þá til baka á lokaholunum og tryggði sér síðan titilinn með einhverju stórkostlegasta pútti sem sést hefur á íslenskum golfvelli. Golf 22. júlí 2010 08:15
Birgir Leifur aftur með á Íslandsmótinu Þekktasti kylfingur Íslands, Birgir Leifur Hafþórsson, verður mættur í Kiðjabergið í dag en hann tekur þá þátt í sínu fyrsta Íslandsmóti síðan í Eyjum árið 2007. Golf 22. júlí 2010 08:00
Aðeins átján konur í Kiðjaberginu Alls taka 142 kylfingar þátt í Íslandsmótinu í höggleik en athygli vekur að aðeins 18 konur eru skráðar til leiks að þessu sinni. Golf 22. júlí 2010 07:45
Oosthuizen keypti traktor fyrir sigurféð á opna breska Louis Oosthuizen er sveitastrákur sem vann opna breska meistaramótið í golfi á dögunum. Hann var ekki lengi að byrja að eyða 850 þúsund punda verðlaunafénu sínu, hann keypti sér umsvifalaust traktor. Golf 21. júlí 2010 22:30