Búist við 30.000 mótmælendum á loftslagsráðstefnu Búist er við að allt að 30.000 mótmælendur hvaðanæva, mæti til Kaupmannahafnar þegar loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna verður haldin þar í desember. Erlent 18. mars 2009 07:33
Bush ætlar ekki að bregðast við George W. Bush Bandaríkjaforseti hyggst ekki bregðast við svartri skýrslu sérfræðinganefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar með því að gangast undir alþjóðlegar skuldbindingar. Ríkisstjórnir um heim allan eru sammála um það að eitt brýnasta verkefni sem heimurinn stendur frammi fyrir sé að bregðast snarlega við og draga úr hlýnun loftslags. Erlent 4. febrúar 2007 05:00
Alþjóðleg umhverfislögregla Jacques Chirac, Frakklandsforseti, skorar á þjóðir heims að setja umhverfismál í forgang á alþjóðavettvangi. Fjörutíu og sex ríki styðja tillögu Chiracs um nýja umhverfisstofnun sem gæti jafnvel knúið ríki til að framfylgja alþjóðasáttmálum um loftslagsmál. Erlent 3. febrúar 2007 18:45
Fólk hvatt til að slökkva ljósin í kvöld vegna loftslagsbreytinga Íbúar í heiminum öllum eru hvattir til að slökkva á öllum ljósum og rafmagnstækjum í fimm mínútur í kvöld í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Erlent 1. febrúar 2007 15:59
Kofi Annan gagnrýnir aðgerðaleysi í loftslagsmálum Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna gagnrýnir skort á forystu og frumkvæði á loftslagsráðstefnu í Nairobi í Kenía sem helguð er baráttunni við hlýnun andrúmsloftsins. Í ræðu á ráðstefnunni kallaði hann loftslagsbreytingar eina af mestu ógnum heimsins. Hann sagði að efasemdarmenn um umhverfisvá hefðu "engin rök og engan tíma". Erlent 15. nóvember 2006 10:12