Löggan vissi af dópinu Tveir pólskir menn eru í haldi grunaðir um innflutning á töluverðu magni fíkniefna. Annar óttaðist það að fíkniefnahundar kæmu upp um smyglið. Innlent 5. maí 2017 07:00
Mikilvægt að styrkja lögreglu á landsbyggðinni „Við erum í dreifbýlu landi og það sem ég sé fyrir mér er að það þarf að fjölga víða um landið þar sem eru fámenn lögreglulið til þess að auka viðbragðsgetuna,“ segir Vilhjálmur Árnason. Innlent 12. apríl 2017 07:00
Nafn mannsins sem lést í svefnskála á Suðurnesjum Starfsmaður fiskverkunar Háteigs í ellefu ár. Innlent 10. febrúar 2017 12:38
Rannsókn á hvarfi Friðriks: „Höfum verið að taka skýrslur af fólki“ Lögreglan hefur yfirheyrt einstaklinga sem ekki hefur verið rætt við áður vegna málsins. Innlent 6. janúar 2017 10:27
Lát ungs manns á Menningarnótt til rannsóknar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar hvort andlát ungs manns aðfaranótt sunnudags tengist neyslu fentanýls. Innlent 23. ágúst 2016 12:53
Tvær nauðganir kærðar á Menningarnótt Þolendur voru fluttir á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldi í nótt. Innlent 21. ágúst 2016 12:56
Michelsen-ræningi aftur á Hraunið eftir dvöl á Vernd Pólskur karlmaður um fertugt hlaut sjö ára dóm í Hæstarétti árið 2013 fyrir ránið á Laugaveginum. Innlent 30. maí 2016 15:18
Ákærður fyrir kynferðisbrot gegn níu drengjum Sigurður Ingi Þórðarson, betur þekktur undir nafninu Siggi hakkari, hefur áður verið dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn ungum dreng. Innlent 10. júlí 2015 23:44
Faðir brotaþola: Þorðum ekki að kæra vegna tengsla undirheima við lögreglu Faðir brotaþola í frelsissviptingarmáli segir fjölskylduna hafa íhugað alvarlega að flytja úr landi. Hann rak fyrirtæki undir sama þaki og Geiri á Goldfinger og stóð ekki á sama. Innlent 9. apríl 2015 11:37
Mannslátið í Hafnarfirði: Beðið eftir niðurstöðum úr DNA-rannsókn Konan sem grunuð er mun sæta gæsluvarðhaldi fram að dómi. Innlent 16. mars 2015 10:53
Gæsluvarðhald yfir konunni framlengt um fjórar vikur Gert á grundvelli almannahagsmuna. Innlent 23. febrúar 2015 20:47
Mannslát í Hafnarfirði: Lögregla áður kölluð í íbúðina í Skúlaskeiði Konan sem er grunuð um að hafa orðið sambýlismanni sínum að bana hafði nýverið flutt í kjallara húss að Skúlaskeiði 24 í Hafnarfirði. Íbúi í húsinu segir lögreglu hafa verið kallaða til vegna ónæðis og drykkjuláta fyrir um það bil mánuði. Innlent 17. febrúar 2015 07:00
Hefur hvorki játað né neitað Konan sem grunuð er um að hafa orðið sambýlismanni sínum að bana hefur hvorki játað né neitað aðild að málinu. Innlent 16. febrúar 2015 19:54
Morð í sömu götu fyrir þremur árum Skúlaskeið í Hafnarfirði var vettvangur morðs fyrir þremur árum. Kona er í haldi lögreglu grunuð um að hafa banað sambýlismanni sínum í sömu götu á laugardaginn. Innlent 16. febrúar 2015 11:51
Kona á sextugsaldri í gæsluvarðhaldi fram yfir helgi Lögregla hefur hvorki haft áður afskipti af konu sem grunuð er um að hafa banað sambýlismanni sínum með eggvopni um helgina, né manninum sem ráðinn var bani. Innlent 16. febrúar 2015 07:00
Hin grunaða ekki komið við sögu lögreglu áður Pólsk kona sem grunuð er um að hafa banað sambýlismanni sínum á heimili þeirra í Hafnarfirði var í dag úrskurðuð í viku langt gæsluvarðhald. Innlent 15. febrúar 2015 18:36
Konan var á vettvangi þegar lögreglu bar að Aðstoðaryfirlögregluþjónn býst við að lögreglan muni krefjast gæsluvarðhalds yfir konunni vegna mannsláts í Hafnarfirði. Innlent 15. febrúar 2015 12:15
Kona í haldi lögreglu vegna mannsláts í Hafnarfirði Maðurinn sem er látinn var rúmlega fertugur en talið er að þau hafi verið sambýlisfólk. Innlent 14. febrúar 2015 19:10
Siggi hakkari ákærður fyrir stórfelld svik Ákæruliðirnir eru átján og skipta undirliðirnir tugum. Innlent 10. júní 2014 19:16
Röð mistaka leiddi til andlátsins Mistök hjúkrunarfræðingsins áttu sér stað á kvöldvakt sem hún vann í beinu framhaldi af dagvakt. Innlent 22. maí 2014 16:19
Hjúkrunarfræðingur ákærður fyrir manndráp Hinum ákærða hefur þegar verið úthlutað lögfræðingi ásamt því að Landspítalinn mun hafa sinn eigin lögmann. Innlent 21. maí 2014 10:46
Mál hjúkrunarfræðings hjá ríkissaksóknara Lögreglurannsókn á máli hjúkrunarfræðings sem grunaður er um manndráp af gáleysi er lokið. Málið er á borði ríkissaksóknara og ekki enn komin ákæra í málinu. Innlent 19. desember 2013 07:00
Ráðist á Matthías Mána á Litla-Hrauni Refsifanginn Matthías Máni Erlingsson, sem var í fréttum um jólin í fyrra þegar hann strauk af Litla-Hrauni, var fluttur á sjúkrahús á Selfossi í gær eftir að hafa orðið fyrir árás tveggja samfanga sinna í útivistartíma. Innlent 13. september 2013 07:00
Gríðarleg skemmdarverk unnin á sveitabæ Búið var að aka dráttarvél inn í húsið og skjóta á það. Umsjónarkona óttast að einnig hafi verið ráðist að hrossum á beit. Innlent 14. mars 2013 19:04
Landlæknir skoðar fjögur óvænt andlát Nýleg dauðsföll tveggja sjúklinga á Landspítalanum eru til rannsóknar hjá lögreglu. Þetta staðfestir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar. Landlækni hafa borist tilkynningar um fjögur dauðsföll sem tengja má mistökum, vanrækslu eða óhappatilviki á þessu ári. Innlent 6. desember 2012 07:00
Hver er þessi Sveddi tönn? Þræðir liggja víða Það er óhætt að segja að Sverrir Þór Gunnarsson, eða Sveddi tönn, eins og hann er kallaður, sé nokkurskonar huldumaður undirheima Íslands. Eins og fram hefur komið var hann handtekinn í Ríó de Janeiro í vikunni eftir að unnusta hans var handtekinn á alþjóðaflugvelli þar í borg með hátt í 50 þúsund E töflur. Sverrir er fæddur árið 1972 en brotaferill hans hófst þegar hann var sextán ára gamall. Þá voru brot hans nokkuð hefðbundin, ef svo má að orði komast, hann var dæmdur fyrir minniháttar fíkniefnabrot og umferðalagabrot. Sverrir fékk viðurnefnið Sveddi tönn út af tannlýti. Innlent 5. júlí 2012 15:55
Sérstakur saksóknari telur rannsóknina ekki ónýta Sérstakur saksóknari telur að störf þeirra rannsakenda hjá embætti sem voru kærðir á dögunum fyrir það að selja upplýsingar til þriðja aðila hafi ekki grafið undan rannsókn svokallaðs Vafningsmáls. Þetta kom fram við fyrirtöku málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þar lagði saksóknari fram greinargerð með niðurstöðum innanhússrannsóknar sem bendi til þess að engin lög eða reglur hafi verið brotnar. Viðskipti innlent 27. júní 2012 09:58
Telja lögreglumenn hafa haft beina persónulega hagsmuni af rannsókn Verjendur telja að lögreglumenn sem rannsökuðu Vafningsmálið svokallaða hafi verið vanhæfir til að rannsaka það þar sem þeir höfðu sjálfir beina fjárhagslega hagsmuni af því að rannsókn myndi leiða til ákæru og af þeim sökum beri að vísa málinu frá. Tekist verður um kröfu þeirra um frávísun í lok þessa mánaðar. Innlent 19. júní 2012 12:15
Ákærðir fyrir að ræna Michelsen úrsmið Tveir pólskir karlmenn hafa verið ákærðir fyrir að rán í úra- og skartgripaverslun Michelsen að Laugavegi, þar sem þeir tóku 49 armbandsúr af gerðunum Rolex, Tudor og Michelsen að verðmæti 50 milljónir króna. Samkvæmt ákærðu var þetta allt gert eftir fyrirfram gerði áætlun mannanna og tveggja samverkamanna þeirra. Innlent 30. maí 2012 09:59