Fæðuöryggi og franskar Þegar hinir himinháu tollar sem ríkið leggur á innfluttar búvörur eru til umræðu, grípa talsmenn landbúnaðarkerfisins oft til röksemdarinnar um fæðuöryggi. Með tollverndinni sé tryggt að samkeppnin frá útlöndum verði ekki of skæð, heldur blómstri innlend framleiðsla og séð sé til þess að Ísland geti verið sjálfu sér nógt um mat, Fastir pennar 21. mars 2014 00:00
Kerfisbreyting er bezta tækifærið Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra sagði í þættinum Í bítið á Bylgjunni í fyrradag að hægt væri að réttlæta að hækka laun kennara umfram almennar launabreytingar með því að breyta skólakerfinu og stytta nám til stúdentsprófs. Sambærilegar tillögur eru hluti af tilboði ríkisins til lausnar kjaradeilunni við framhaldsskólakennara. Skoðun 20. mars 2014 06:00
Er EES-leið greið? Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku þunnt plagg sem er kallað Evrópustefna. Þar er lögð megináherzla á að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið verði áfram þungamiðjan í samskiptum Íslands og ESB. Skoðun 19. mars 2014 06:00
Fagfólkið má vita, ekki foreldrarnir Fulltrúar Bezta flokksins, Samfylkingarinnar og Vinstri grænna í skóla- og frístundaráði felldu í síðustu viku tillögu sjálfstæðismanna um að aflétta leynd af útkomu einstakra grunnskóla í Reykjavík í PISA-könnuninni svokölluðu, sem mælir þekkingu grunnskólanema í mörgum löndum. Skoðun 14. mars 2014 08:54
Prinsipp og pukur í Seðlabankanum Undarlegt mál, sem hófst með því að fyrrverandi ríkisstjórn gekk á bak orða sinna gagnvart Má Guðmundssyni seðlabankastjóra og lét lækka laun hans, hefur orðið furðulegra eftir því sem frá líður. Fastir pennar 13. mars 2014 07:00
Eina leiðin er að spyrja þjóðina Ríkisstjórnin hefur enn ekki komið með neinum hætti til móts við þá víðtæku og almennu kröfu að hún standi við kosningaloforðin og efni til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið. Hún gerir ekkert með undirskriftir rúmlega fimmtungs kjósenda. Henni er sama um að yfir 80 prósent svarenda í könnunum segist vilja þjóðaratkvæði. Fastir pennar 12. mars 2014 07:00
Hreinleikinn reynist goðsögn Frétt sem flaug ekki hátt í pólitískum stormi síðustu viku er engu að síður allrar athygli verð. Þetta var frétt af fyrstu vettvangsathugun Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) í íslenzkum alifuglasláturhúsum og kjúklingabúum eftir að matvælalöggjöf Evrópusambandsins varð hluti af EES-samningnum seint á árinu 2011. Fastir pennar 11. mars 2014 07:00
Sjálfs er höndin hollust Sumir af ráðherrum ríkisstjórnarinnar hafa látið að því liggja undanfarna daga að fjölmiðlar sýni þá í óhagstæðu ljósi í umfjöllun um hvernig eigi að halda á framhaldi viðræðna við Evrópusambandið. Staðreyndin er þó sú að það eru ráðherrarnir sjálfir og það sem þeir láta út úr sér, sem dregur mest úr trúverðugleika þeirra. Skoðun 7. mars 2014 06:00
Rökleysur ráðherra Rökleysurnar sem forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa borið á borð fyrir almenning undanfarna daga, sem réttlætingu á að svíkja loforð sín um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, eru með ólíkindum. Fastir pennar 6. mars 2014 06:00
Einræði, ofríki og ofbeldi Pútíns Hernaðaríhlutun Rússa í Úkraínu vekur upp óþægilegar minningar frá síðustu öld; um valdapólitíkina, þjóðrembuna og yfirganginn sem orsökuðu tvær heimsstyrjaldir með tilheyrandi hörmungum og mörg minni stríð. Tal rússneskra ráðamanna um að þeir séu bara að vernda hagsmuni Rússa á Krímskaga er endurómur af röksemdum Hitlers fyrir innlimun Súdetahéraðanna og Austurríkis í aðdraganda seinni heimsstyrjaldarinnar. Fastir pennar 5. mars 2014 07:00
Skýrslutrompið Ráðherrar og stjórnarþingmenn vísa ekki eingöngu til "ómöguleikans“ þegar þeir verja þá ákvörðun að ætla að svíkja kosningaloforðin og slíta aðildarviðræðunum við ESB án þjóðaratkvæðagreiðslu. Sumir vilja nota skýrslu Hagfræðistofnunar um stöðu viðræðnanna sem átyllu. Fastir pennar 4. mars 2014 07:00
Skýr krafa um þjóðaratkvæði Engum sem var staddur á átta þúsund manna mótmælafundi á Austurvelli á laugardaginn gat dulizt hvílíkur hugur var í fólkinu sem þar var saman komið eða hversu mikill þungi er í kröfunni um að ríkisstjórnin dragi til baka tillögu sína um að slíta aðildarviðræðunum við Evrópusambandið og efni í staðinn til þjóðaratkvæðagreiðslu. Fastir pennar 3. mars 2014 07:00
Þora þau ekki að hlusta á fólkið? Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sýna svo ekki verður um villzt að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar vill fá að taka sjálfur ákvörðun um framhald aðildarviðræðnanna við Evrópusambandið. Þannig vilja tæplega 82 prósent svarenda að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um framhaldið. Fastir pennar 1. mars 2014 07:00
Húsvernd fyrir heimakjördæmið Sveinn Arason ríkisendurskoðandi skammaði Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hér í blaðinu í gær fyrir það hvernig staðið er að fjármögnun áhugamáls ráðherrans, eflingu húsverndar. Flestir ættu raunar að geta skrifað upp á að varðveizla menningararfsins sem felst í gömlum húsum sé hið bezta mál og gott að æðsti maður framkvæmdavaldsins beiti sér fyrir því. En ríkisendurskoðandi er ekki einn um að gagnrýna hvernig að húsverndarstyrkjunum er staðið. Fastir pennar 28. febrúar 2014 07:00
Sérhagsmunamatið Sjálfstæðisflokkurinn býr sig nú undir að stíga lokaskrefið í átt að markmiðinu um að festast í rúmlega fjórðungsfylgi. Með þeirri stefnu að neita þjóðinni um að greiða atkvæði um aðildarsamning við Evrópusambandið - og nú með því að svíkja kosningaloforðið um að þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna yrði haldin á kjörtímabilinu - hefur forysta flokksins fælt frá honum stóran hóp kjósenda. Það er fólk sem telur að Ísland eigi heima í ESB - eða hefur jafnvel ekki gert upp hug sinn, en vill fá að sjá aðildarsamninginn og kjósa um hann. Skoðun 27. febrúar 2014 07:58
Óttinn við ómöguleikann Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var í vandræðalegu viðtali í Kastljósi í fyrrakvöld. Hann var þar ítrekað beðinn að útskýra hvers vegna hann hygðist ganga á bak því kosningaloforði sínu að þjóðin fengi að kjósa á kjörtímabilinu um framhald aðildarviðræðnanna við Evrópusambandið. Skoðun 26. febrúar 2014 08:29
Slitastjórnin Nú er algjörlega skýrt að tal stjórnarflokkanna beggja fyrir kosningar um að þjóðin fengi að taka ákvörðun í atkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðnanna við Evrópusambandið var tómt fals, til þess ætlað að slá ryki í augu kjósenda. Skoðun 25. febrúar 2014 08:43
Stóru spurningunum ósvarað Skýrsla Hagfræðistofnunar um stöðu aðildarviðræðna við Evrópusambandið og þróun þess er, eins og við var að búast, ekkert tímamótaplagg. Þar kemur ekkert nýtt fram um viðfangsefnið, þótt gagnlegt sé að fyrirliggjandi fróðleikur og staðreyndir séu dregnar saman. Fastir pennar 19. febrúar 2014 07:15
Vandamáli ýtt inn í framtíðina Fréttablaðið sagði frá því fyrr í vikunni að þrátt fyrir ákvæði laga og aðalnámskrár grunnskóla fengju börn innflytjenda afar takmarkaða kennslu í eigin móðurmáli. Um sex prósent barna í íslenzkum grunnskólum hafa annað móðurmál en íslenzku. Alls konar rannsóknir sýna fram á mikilvægi þess að börn fái haldgóða kennslu í eigin móðurmáli, Fastir pennar 14. febrúar 2014 06:00
Við erum í ykkar liði – vitleysingar Klappað var í salnum á Viðskiptaþingi í gær þegar Hreggviður Jónsson, formaður Viðskiptaráðs, ítrekaði þá afstöðu ráðsins að ljúka hefði átt aðildarviðræðunum við Evrópusambandið og halda þannig opnum möguleika Íslands á að taka upp evruna tvíhliða. Fastir pennar 13. febrúar 2014 07:00
Tabúið ógurlega Meirihluti landsmanna, eða 51 prósent, er hlynntur því að skólagjöld séu innheimt í háskólum, samkvæmt könnun sem Capacent gerði fyrir Viðskiptaráð og Fréttablaðið sagði frá í gær. Aðeins rúmur þriðjungur var andvígur slíkri fjármögnun háskóla og 16 prósent tóku ekki afstöðu. Fastir pennar 12. febrúar 2014 07:00
Í spennitreyju haftanna Í Markaðnum, viðskiptablaði Fréttablaðsins, hefur undanfarnar vikur verið fjallað um áhrif gjaldeyrishaftanna á íslenzkt efnahags- og viðskiptalíf. Í síðasta blaði var sjónum beint að áhrifum haftanna á lífeyrissjóðina, umsvifamestu fjárfesta landsins, sem jafnframt gæta gríðarlegra hagsmuna nánast allra launþega í landinu. Skoðun 7. febrúar 2014 08:49
Tollvernd fyrir buffalabændur Markaðurinn, fylgirit Fréttablaðsins um viðskipti, sagði frá því í gær að smásölufyrirtækið Hagar hefði farið fram á við atvinnuvegaráðuneytið að það felldi niður tolla á innfluttum ostum úr geita-, buffala- og ærmjólk. Fastir pennar 6. febrúar 2014 06:00
Vandi sem ekki á að þegja um Þess eru dæmi að kennarar beiti börn ofbeldi eða leggi þau í einelti og slíkt á að sjálfsögðu ekki að líðast. Dæmin þar sem kennarar verða fyrir ofbeldi af hálfu nemenda sinna hafa hins vegar ekki fengið jafnmikla athygli og ýmislegt bendir til að slíkt sé óskaplegt feimnismál. Fastir pennar 5. febrúar 2014 07:00
Aum undanbrögð Þrír fjórðuhlutar íslenzkra kjósenda vilja fá að greiða atkvæði um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið samhliða sveitarstjórnakosningunum í vor, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem var gerð í síðustu viku. Yfirgnæfandi meirihluti stuðningsmanna allra flokka vill kosningu um málið í vor. Fastir pennar 4. febrúar 2014 06:00
Beint lýðræði í litlu málunum Þegar rætt er um beint lýðræði er oft einblínt á það sem aðferð til að leysa úr stórum ágreiningsmálum, jafnvel málum sem eru svo mikil ágreiningsmál að þau kljúfa flesta flokka og eina leiðin til að höggva á hnútinn er að almenningur kjósi. Þjóðaratkvæðagreiðslur, sem við höfum skyndilega öðlazt nokkra reynslu af, útheimta mikla skipulagningu og umstang og eru dýrar í framkvæmd. Fastir pennar 1. febrúar 2014 06:00
Gjaldeyrishöft og glötuð tækifæri Fréttablaðið hefur í vikunni fjallað um gjaldeyrishöftin frá ýmsum hliðum. Í fréttaskýringu í Markaðnum kom fram að erfitt væri að mæla nákvæmlega kostnað íslenzks viðskiptalífs af höftunum. Hann felst ekki sízt í glötuðum tækifærum, af því að íslenzkir fjárfestar eru fastir innan haftanna og erlendir hætta sér ekki inn fyrir þau. Skoðun 31. janúar 2014 06:00
Frjáls viðskipti, frjálsir borgarar Alþingi staðfesti í gær fríverzlunarsamning Íslands og Kína, sem undirritaður var í vor. Miklir efnahagslegir hagsmunir felast í samningnum. Verð á kínverskum vörum mun væntanlega lækka hér á landi og vonir eru bundnar við að útflutningur íslenzkra fyrirtækja til Kína aukist verulega og rétti af hallann á viðskiptum landanna. Fastir pennar 30. janúar 2014 06:00
Háskóli Íslands fyrir öll - Rektorsframboð Silju Báru Ólöf Bjarki Antons og Atli María Kjeld Skoðun
Vegna umfjöllunar Kveiks um kynferðislega áreitni á vinnustöðum Andri Valur Ívarsson,Anna Rós Sigmundsdóttir,Dagný Aradóttir Pind,Hrannar Már Gunnarsson,Jenný Þórunn Stefánsdóttir Skoðun