Veiðivísir

Veiðivísir

Allt um stang- og skotveiði á Íslandi. Vetur, sumar, vor og haust.

Fréttamynd

51 lax og 17 bleikjur í Andakílsá

Veiði í Andakílsá hefur verið fremur döpur það sem af er sumri. Í gær höfðu veiðst 17 bleikjur í ánni og 51 lax. Þetta kemur fram á vef SVFR.

Veiði
Fréttamynd

Risaurriði veiddist í Grænavatni

Átján punda urriði veiddist í Grænavatni í fyrradag. Á vefsíðu Veiðivatna segir að sennilega sé þetta stærsti urriði sem veiðst hafi á stöng í Veiðivötnum.

Veiði
Fréttamynd

Veiðitölur LV: Vikuveiðin 30 laxar í Norðurá!

Veiðitölur þessarar viku er dapurleg lesning. Aðeins Rangárnar státa af betri veiði en í fyrra. Víða annars staðar er um algjört hrun að ræða. Norðurá gaf 30 laxa í síðustu viku en í sömu viku í fyrra var veiðin rúmlega tífalt meiri. Blanda er ekki hálfdrættingur á við sumarið 2011.

Veiði
Fréttamynd

Tilboð á stökum degi í Langá

Stangaveiðifélag Reykjavíkur hyggst bjóða félögum sínum tilboðsdaga endrum og sinnum fram á haust. Í dag býðst dagur í Langá á 49 þúsund krónur.

Veiði
Fréttamynd

Ytri-Rangá: Veiði eykst með lokun laxastiga

Athygli vekur að eftir að stiganum í Árbæjarfossi var lokað hefur veiðin á svæðum 8 og 9 stóraukist og hefur ekki verið eins góð í mörg ár, og er góður stígandi á þessum svæðum.

Veiði
Fréttamynd

Hefur engar áhyggjur af húsbílavatni

Sérfræðingur hjá Matvælastofnun segir ólíklegt að sníkjudýr berist með erlendum húsbílum í íslenskt vatnakerfi. Hann hefur meiri áhyggjur af kjölfestuvatni skipa.

Veiði
Fréttamynd

Hörgá að gefa flotta bleikjuveiði

Á vef Stangaveiðifélags Akureyrar segir frá góðri bleikjuveiði í Hörgá, en í veiðibókina á netinu eru skráðar 211 bleikjur ásamt slatta af urriða/sjóbirtingi og besti tíminn að ganga í garð.

Veiði
Fréttamynd

Efri hluti Elliðaánna að koma sterkt inn

Nú er hins vegar að ganga í garð sá tími sumars þegar flugusvæðið á efri hluta Elliðaánna fer að koma sterkt inn, enda kom það í ljós á morgunvaktinni. Þá gáfu Höfuðhylur, Símastrengur, Hraunið, Hundasteinar og Árbæjarhylur allir laxa.

Veiði
Fréttamynd

Berast veirur og sníkjudýr í íslenskar ár með húsbílum?

Ein helsta smitleið veira og sníkjudýra milli laxveiðiáa í Noregi er þegar húsbílar losa og sækja sér vatn á tanka. Á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur (SVFR) er að finna athyglisverða frétt um þetta mál undir fyrirsögninni "Tifandi tímasprengja?".

Veiði
Fréttamynd

Minnkandi veiði í Elliðaánum

Veiðin í Elliðáánum hefur dalað mikið undanfarna daga. Gærdagurinn var sá lakasti síðan veiði á ánum hófst fyrir rúmum mánuði síðan. Á morgunvaktinni í gær var fimm löxum landað en eftir hádegi kom aðeins einn lax á land. Heildarveiðin stóð því í 626 löxum í gærkvöldi.

Veiði
Fréttamynd

Ytri-Rangá efst: Ævintýraleg veiði í Selá í Vopnafirði

Veiði í Selá í Vopnafirði hefur verið frábær það sem af er sumri. Síðasta vika skilaði 228 löxum, hvorki meira né minna og Selá því hástökkvari vikunnar. Því til viðbótar skilaði áin metlaxi í vikunni þegar Árni Baldursson landaði yfir 30 punda laxi úr Skipahyl.

Veiði