Úthlutun lokið hjá SVFR Þá er formlegri úthlutun lokið hjá SVFR. Því miður, eins og alltaf, fengu ekki allir félagsmenn úthlutað á A-leyfin sín og þess vegna vill starfsfólk SVFR reyna að finna leyfi fyrir þessa félagsmenn úr þeim leyfum sem eftir eru áður en þau fara í almenna sölu. Veiði 14. febrúar 2012 10:25
Vesturröst með kastnámskeið Kastnámskeiðin hjá Vesturröst eru að fara í gang og þeir sem ætla að taka vel á veiðinni í sumar en eiga eftir að fullkomna kasttæknina ættu klárlega að kíkja á þetta námskeið. Veiði 7. febrúar 2012 10:52
RISE fluguveiði kvikmyndahátíð RISE fluguveiði kvikmyndahátíð var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar 2011. Hátíðinni var ótrúlega vel tekið og uppselt var á sýninguna og það í fyrsta sinn sem hún var haldin. Í kjölfar þessara vinsælda verður hátíðin haldin í annað sinn þann 10. mars 2012 í Bíó Paradís Hverfisgötu 54. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opnar kl. 19:00. Veiði 7. febrúar 2012 09:31
Varmá áfram hjá SVFR Eftir nokkra óvissu liggur fyrir að Varmá/Þorleifslækur verður áfram í sölu hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur. Sala veiðileyfa hefst innan tíðar. Veiði 7. febrúar 2012 09:27
Íslensku hrosshárin slógu í gegn Á dögunum fór fram The Fly Fishing Show í New Jersey. Sýning þessi er ein stærsta sýning um fluguveiði í heiminum og fer fram á ólíkum tíma á sjö stöðum í Bandaríkjunum. Sýningin hefur ferðast um Bandaríkin í meira en 20 ár og þar koma saman framleiðendur fluguveiðivara, söluaðilar veiðileyfa um allan heim og fluguhnýtarar. Veiði 3. febrúar 2012 09:17
Hanahálsfjaðrir að verða illfáanlegar Allt frá því í fyrra hefur verð á hanafjöðrum til hnýtinga rokið upp úr öllu valdi. Ástæðan er hártíska sem rutt hefur sér til rúms vestanhafs. Veiði 1. febrúar 2012 09:42
Fleiri útboð á döfinni Um helgina voru auglýst tvö útboð veiðisvæða á komandi vikum. Um er að ræða Skógá undir Eyjafjöllum og Haukadalsá í Dölum. Veiði 1. febrúar 2012 09:39
Iðuklettar í Stóru-Laxá horfnir Iðuklettar, hið mikla kennileiti á svæði þrjú í Stóru Laxá, hrundi í gær þegar áin ruddi sig en miklar leysingar hafa verið í ánni undanfarið. Það verður að segjast að mikil eftirsjá verður af þess náttúruundri sem allir sem hafa veitt á Iðu muna eftir. Veiði 31. janúar 2012 14:14
Risableikjur í norður Kanada Það er alltaf gaman að sjá veiðimyndir frá öðrum löndum og fræðast aðeins um það sem erlendir veiðimenn eru að gera. það skemmir síðan ekkert fyrir að sjá hvað þeir eru að draga á land. Veiði 31. janúar 2012 13:33
Hreindýrakvóti 2012 verður 1009 dýr Umhverfisráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta þessa árs að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1009 dýr á árinu sem er fjölgun um átta dýr frá fyrra ári. Veiði 27. janúar 2012 14:27
Úthlutun gengur vel hjá SVFR Úthlutun veiðisvæða hjá SVFR gengur ágætlega. Vænta má þess að flestir drættir um veiðisvæði verði yfirstaðnir í lok þessarar viku. Veiði 24. janúar 2012 10:51
Má skjóta bleikju með haglabyssu? Það er ekki stefna okkar hér á Veiðivísi að setja okkur í stöðu gagnrýnanda en við ætlum þó að gera undantekningu á því núna. Á Pressunni þann 22. janúar er mynd af manni með bleikju sem á að hafa verið skotin. Enda sést ekki betur en að "veiðimaðurinn" haldi á illa farinni bleikju og skotvopni. Veiði 23. janúar 2012 09:34
Skjálfandafljót: Félag tengt Lax-Á með hæsta boð Breytinga á veiðitilhögun er að vænta í Skjálfandafljóti eftir að landeigendur opnuðu tilboð í A-deild árinnar, sem er með 6 laxastangir og 10 silungastangir. Há tilboð bárust. Veiði 19. janúar 2012 10:20
Sprenging í umsóknum um Elliðaárnar Óhætt er að segja að sprenging hafi orðið í umsóknum um laxveiðileyfi í Elliðaánum fyrir komandi sumar. Þegar framlengdur umsóknarfrestur rann út á hádegi sl. föstudag kom í ljós að ríflega 760 A umsóknir höfðu borist sem er talsvert umfram framboð. Veiði 19. janúar 2012 10:16
Mikil hækkun í Skjálfandafljóti Fréttir berast norðan heiða um að útboð á veiðirétti í A-deild Skjálfandafljóts sé yfirstaðið. Tilboð barst frá óstofnuðu félagi sem hækkar leigugreiðsluna um rúmlega 100%. Veiði 17. janúar 2012 13:28
Svipaður fjöldi umsókna og 2011 Alls bárust umsóknir frá 2.060 félagsmönnum um veiðileyfi fyrir komandi sumar. Þetta er lítilsháttar samdráttur milli ára, en engu að síður þriðji mesti umsóknarfjöldi í sögu félagsins. Veiði 16. janúar 2012 13:59
Laxveiðin hafinn í Skotlandi Laxveiðitímabilið í Skotlandi hófst þann 11. janúar síðastliðinn með opnun Helmsdale árinnar. Hátt í 90 stangir veiddu ána á opnunardaginn án þess að lax veiddist. Veiði 16. janúar 2012 13:57
Of mikið veitt í Soginu Nokkrir af sérfræðingum VMSt hafa sent frá sér niðurstöður á rannsóknum á fiskistofnum og lífríki Sogsins. Þar virðist hafa verið veitt meira en stofninn þolir og vatnsborðshækkanir hafa valdið seiðum búsyfjum svo eitthvað sé nefnt Veiði 13. janúar 2012 09:58
Sportveiðiblaðið komið út Sportveiðiblaðið er komið út. Að þessu sinni er blaðið stútfullt af efni eða 146 blaðsíður, allt frá veiðistaðalýsingum til viðtala við hina ýmsu skot- og stangaveiðimenn. Veiði 12. janúar 2012 12:43
Nýr leigutaki Þverár og Kjarrár Starir ehf er nýr leigutaki veiðiréttar Þverár og Kjarrár í Borgarfirði. Samningur þess efnis var undirritaður í eftirmiðdaginn. Veiði 12. janúar 2012 12:41
Kastnámskeið í Kórnum í vetur Boðið verður upp á flugukastnámskeið í janúar, febrúar og mars. Farið verður í öll undirstöðu atriðin ásamt því að farið verður í kastferla og auk meiri fræðslu um köstin. Námskeiðin fara fram í Íþróttarhöllinni Kórnum við Vallakór í Kópavogi. Veiði 10. janúar 2012 11:11
Líklegt að Hofsá hafi verið ofsetinn af seiðum Í skýrslu Þórólfs Antonssonar fiskifræðings á Veiðimálastofnun kemur fram að ástæðan fyrir minnkandi veiði í Hofsá í Vopnafirði gæti verið sú að áin var ofsetin laxaseiðum. Veiði 10. janúar 2012 11:08
SVFR leitar að mönnum til nefndarstarfa Stjórn SVFR óskar eftir mannskap í árnefnd Dunkár á Skógarströnd. Einnig er auglýst eftir samhentum hóp til starfa í skemmtinefnd félagsins. Veiði 10. janúar 2012 11:04
Laxá í Mývatnssveit Félagsmönnum SVFR sem búa norðan heiða, svo og öðrum, er bent á að eftir 15. júli er ekki fæðis- og gistiskylda í veiðihúsinu í Hofi í Mývatnssveit. Þeir sem ekki hyggjast nota gistinguna þurfa að tilkynna slíkt til skrifstofu félagsins fyrir 15. febrúar. Veiði 9. janúar 2012 11:45
Um mun á Selá og Hofsá Fiskifræðingar VMSt hafa sent frá sér samantekt þar sem þeir sýna fram á hvers vegna Hofsá hefur dregist aftur úr Selá í veiði síðustu árin, en árnar hafa einmitt verið þekktar fyrir að halda sama dampi í gegnum tíðina. Niðurstaðan er ofsetning seiða eftir þrjú afar góð ár! Veiði 6. janúar 2012 10:17
Veiðiflugur með hnýtingarnámskeið í janúar Nú eru veiðimenn farnir að telja niður til 1. apríl en þá hefst veiðin á þessu herrans ári 2012. Margir veiðimenn nota skammdegið til að hnýta leynivopnin fyrir komandi sumar og það er ekki hægt að lýsa því í fáum orðum hvað það er gaman að setja í fisk á sínar eigin flugur. Til opna þennan heim fyrir þá sem vilja læra að hnýta sínar eigin flugur ætlar Hilli í versluninni Veiðiflugur á Langholtsvegi að vera með hnýtingarnámskeið sem byrja núna í janúar í samstarfi við hinn snjalla veiðimann og hnýtara Óskar Pál Sveinsson. Veiði 6. janúar 2012 10:00
5 ára friðun á svartfugli framundan? Starfshópur sem Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skipaði í september sl. um verndun og endurreisn svartfuglastofna leggur m.a. til að fimm tegundir sjófugla af svartfuglaætt verði friðaðar fyrir öllum veiðum og nýtingu næstu fimm árin. Þetta kemur fram í skýrslu sem hópurinn hefur skilað af sér og umhverfisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun. Veiði 5. janúar 2012 11:40
Breytingar framundan í Skógá Útlit er fyrir því að byrjað verði frá grunni með uppbyggingu Skógár sem laxveiðiá á þessu ári og Ásgeir Ásmundsson sem staðið hefur í eldlínunni síðustu tólf árin, hverfi á braut og komi þar hvergi nærri. Veiði 4. janúar 2012 09:54
Opið fyrir umsóknir hjá SVFR Opnað hefur verið fyrir umsóknir félagsmanna á vefnum hjá SVFR. Vinsamlegast athugið að til að sækja umsóknarformið þarf aðeins að slá inn kennitölu félagsmanna. Við það fyllast út persónuupplýsingar og félagsnúmer. Veiði 4. janúar 2012 09:43
Úr veiðibókum Laxá í Kjós Það getur verið gaman að garva í statistík. Við vorum að því um daginn með árnefndir SVFR, en að þessu sinni komumst við í samantektir fyrir Laxá í Kjós og Bugðu. Veiði 28. desember 2011 10:55