Veiðivísir

Veiðivísir

Allt um stang- og skotveiði á Íslandi. Vetur, sumar, vor og haust.

Fréttamynd

Ennþá góður reytingur í Ytri Rangá

Ytri Rangá er að gefa ágætlega miðað við árstíma en undanfarið hefur veiðin verið í 35 til 50 laxar þó að síðustu tveir dagar gáfu minna eða um 20 laxa. Mest hefur veiðst á maðk undanfarið en flugan er ekki langt á eftir. Lúsugir laxar hafa veiðst síðustu daga svo það er en lax að ganga í ánni.

Veiði
Fréttamynd

Margar skytturnar í góðri veiði í morgun

Klukkan átta í morgun fengum við hjá Veiðivísi símtal frá veiðimenni sem var ofan í skurði og vildi koma því á framfæri að það væri allt fullt af gæs fyrir norðan í Skagafirðinum.

Veiði
Fréttamynd

Stórlaxar síðustu daga

Þangað til að menn fara að vigta alla lengdarmælda stórlaxa, verður ekki hægt að tala um stærstu laxa eða bera saman hvað var að berast á land. 94 sentimetra lax, grútleginn, sem veiddist fyrir skemmstu í Vatnsdalsá var veginn 10 kg, eða 20 pund.

Veiði
Fréttamynd

Forúthlutunarvinna SVFR að hefjast

Umsóknarferli forúthlutunar veiðileyfa fyrir sumarið 2011 lauk þann 20. september sl. Næstu tvær vikurnar eða svo mun úthlutunarvinna standa yfir.

Veiði
Fréttamynd

Klakveiði í Langadalsá og Hvannadalsá

Vel gekk í klakveiði í Langadalsá og Hvannadalsá um helgina en veiði lauk í báðum ám þann 24. september. Alls komu 263 laxar úr Langadalsá og sléttir 100 úr Hvannadalsánni í sumar. Í klakveiðinni í Hvannadalsá fengust 21 lax og á þessum veiðistöðum. Réttarfljót 2 laxar, Hellisfoss 10 laxar, Pallklettar 2 laxar og Stékkjarfljót 7 laxar, samtals 21 lax. Var skiptingin nokkuð jöfn í hænga og hrygnur en nokkrar mjög fallegar hrygnur fengust.

Veiði
Fréttamynd

Gæsaveiðin heldur róleg víða vegna veðurs

Gæsaveiðin er komin á fullt og víða á landinu er hún farin að bunka sig saman á túnum, bændum frekar til óþurftar en annars. Í Skagafirði og Húnaflóa eru sum túnin svört af gæs en hún hefur verið frekar erfið til veiða vegna óhagstæðra veðurskilyrða.

Veiði
Fréttamynd

Fréttir úr Fossálum

Fossálar eru að gefa mjög vel og eru hollin sem hitta á réttu aðstæðurnar að fá jafna og góða veiði. Menn sem voru í síðustu viku að veiða fengu 14 sjóbirtinga. Næsta holl þar á eftir lenti í miklum vatnavöxtum og fékk 3 birtinga. Þá komu menn sem voru að um helgina og fengu 11 sjóbirtinga. Í því holli fengust fiskar á veiðistöðum nr. 4, fimm fiskar komu á land á veiðistað nr. 8, þá nr.12, 18 og 19. Uppistaðan í aflanum var 5-8 pund

Veiði
Fréttamynd

Flott veiði í Grenlæk svæði 4

Við fáum fréttir þessa dagana af fínni veiði á öllum okkar sjóbirtingssvæðum fyrir austan og er Grenlækur sv. 4 engin undantekning þar á. Þeir veiðimenn sem voru við veiðar á 18-20 sept. fengu 28 fallega sjóbirtinga. Allur fiskurinn var nýgenginn og og flestir 3-5 pund. Stærstur var 7 punda fiskur sem veiddur var í gamla árfarveginum. Mest fékkst út á flóðinu sjálfu og var hann allur veiddur á spón. Þess má einnig geta að félagið er nýbúið að koma litlum bát á svæðið til að auðvelda mönnum að komast um flóðið.

Veiði
Fréttamynd

Tungufljót að taka við sér

Tungufljót í Skaftafellssýslu er að taka við sér. Hollið sem var við veiðar fram á hádegi í gær fékk 17 fiska, og var einn lax í aflanum.

Veiði
Fréttamynd

Breiðdalsá að slá metið um tæpa 200 laxa

Breiðdalsá er komin í um 1350 laxa sem er vel yfir fyrra met sem er 1178 laxar frá því í fyrra og ekkert lát á veiðinni þar. Til dæmis veiddust 30 laxar í gær í Breiðdalsá og hann er ennþá að ganga, líkt og einnig á Jöklusvæðinu sem er komið í 525 laxa með Fögruhlíðará. Þar komu 12 laxar á land í gær þrátt fyrir yfirfall enda er veiðin nú að mestu í hliðarám sem renna í Jöklu ásamt Föruhlíðará sem rennur beint til sjávar og er ekki tengd heldur jökulvatninu.

Veiði
Fréttamynd

Misskipt veðurguða gæðum

Á sama tíma og einn okkar úr VoV-liðinu var við veiðiskap í Straumfjarðará eftir stóru lægðina um helgina, var annar okkar VoV-verja að læðast á tánum við Álftá á Mýrum, þar sem ekki var að sjá að rignignardropi hefði fallið.

Veiði
Fréttamynd

Ólíku saman að jafna í Dölunum

Fáskrúð í Dölum hafði á hádegi í gær gefið 211 laxa, og samkvæmt veiðimönnum er nokkuð af laxi í ánni. Það sama verður ekki sagt um nágrannaána Laxá í Dölum.

Veiði
Fréttamynd

Dunká komin til SVFR

Í gær var undirritaður samningur á milli Stangaveiðifélags Reykjavikur og Veiðifélags Dunkár um leigu á veiðirétti næstu þrjú árin.

Veiði
Fréttamynd

Gott skot í Kjósinni

Lítið hefur rignt í Kjósinni þetta sumarið en áin fór í flóð og litaðist fyrst 16. september. Fjögurra daga holl sem var við veiðar 15. – 19. september skilaði 125 fiskum og veiddust 60 síðasta daginn. Veiðimennirnir voru breskir og samanstóð aflinn af 103 löxum og 22 sjóbirtingum yfir 2 kg, 120 var sleppt. Enn er góð veiði og nálgast áin 1000 laxa það sem af er sumri.

Veiði
Fréttamynd

Affallið í um 500 löxum

Veiðin í Affallinu hefur verið ágæt í sumar þó hún sé ekkert í líkingu við 2010 þegar áin var í 1000 löxum. Áin er að ná 500 löxum sem feykilega góð veiði á fjórar stangir og af því eru um 70 stórlaxar.

Veiði
Fréttamynd

Mynd af stórlaxinum í Kjarrá

Nú síðsumars birtust fregnir á ýmsum vefmiðlum um að 116 sentimetra lax hefði veiðst í Kjarrá í lok sumars. Fréttunum fylgdi hins vegar alltaf sú saga að veiðimaðurinn vildi ekki birta mynd af laxinum. Fréttablaðið hefur nú náð tali af manninum, sem vildi ekki láta nafns síns getið að svo stöddu. Hann gaf þó góðfúslega leyfi til birtingar á myndinni.

Veiði
Fréttamynd

Gæsin seinna á ferð í ár

Gæsin er um það bil mánuði seinna á ferð en venjulega í hefðbundnum haustundirbúningi sínum. Veiðitímabilið hófst 20. ágúst en þá var enn mikið af ungum á heiðum og gæsin var lítið farin að hópa sig niður á láglendið.

Veiði
Fréttamynd

Sjóbirtingsveiðin fer vel af stað

Sjóbirtingsveiðin er aðeins að drattast af stað og sunnanáttin með rigningunni undir lok síðustu viku og inn á helgina hleyptu vissulega smá lífi í gang mála. Leyfarnar af Írenu í fyrstu vikunni gerðu það líka að einhverju leyti.

Veiði
Fréttamynd

Óvænt truflun á veiðistað

Veiðimaður sem átti Þrastalundarsvæðið í Soginu byrjaði laugardaginn vel og fékk tvo laxa. Um hádegisbil gerðist hins vegar nokkuð sem gerði út af við alla veiði.

Veiði
Fréttamynd

Fréttir af svæðum SVFR

Veiði er að mestu lokið í Setbergsá og var lokaniðurstaða um 70 laxar. Í Krossá á Skarðsströnd er lokahollið við veiðar og er talan þar um 200 laxar.

Veiði
Fréttamynd

Veiðislóð er komin út

Fjórða tölublað veftímaritsins Veiðislóð er komið út. Meðal annars er gengið með bökkum Laxár í Laxárdal með Ásgeiri Steingrímssyni.

Veiði
Fréttamynd

Gleymir stund og stað við árbakkann

Þegar vorar fer mig strax að klæja í puttana að komast út í náttúruna. Og þegar ég horfi á læki eða vötn langar mig að fara að kasta,“ segir veiðikonan Þórdís Klara Bridde. Hún segir það ómótstæðilega tilfinningu að standa við árbakka með stöng í hönd.

Veiði
Fréttamynd

108 sm landað í Vatnsdalsá

Laxinn sem veiðimaður setti í við Hólakvörn var aldeilis ekki gamall lurkur úr vorgöngum heldur spikfeitur, nýrunnin og sjálfsagt með saltbragð í munni. Það eina sem var ekki sjáanlegt, og gefur til kynna nýrunnin lax úr sjó, var lúsin.

Veiði
Fréttamynd

Víðidalsá að ná 700 löxum

September hefur verið þokkalegur í Víðidalsá þó hann hafi ekki verið skugginn af sjálfum sér miðað við síðustu þrjú sumur. Kuldin síðustu helgi hjálpaði ekki til en áin hefur tekið við sér aftur. Heildartalan er nú kominn í 662 laxa og má búast við að hún fari yfir 700 laxa fyrir lok tímabilsins sem lýkur 24.september. Er veiðin þá svipuð og hún var 2007 en þá var hún 714 laxar. Yrði það nokkuð eftir því sem fiskifræðingar hafa verið að segja en aflatölur í ár hafa verið bornar saman við árið 2007 í umræðunni síðastliðnar vikur.

Veiði
Fréttamynd

Dauft í Vatnsá og Skógá

Óvenju litlum fréttum hefur farið af Vatnsá sem hefur verið með frískari laxveiðiám landsins síðustu sumur. Þá er einnig dauft yfir Skógá, en okkur langaði að heyra fréttir af svæðinu og heyrðum í Ásgeiri Ásmundssyni.

Veiði
Fréttamynd

Síðustu dagar umsóknarfrests SVFR

Í fyrstu atrennu sölunnar fyrir næsta veiðitímabil eru í boði dagar á frábærum ársvæðum, s.s. aðalsvæði Hítarár á Mýrum, Norðurá í Borgarfirði, Langá á Mýrum, Laxá í Dölum, Nesveiðar í Aðaldal, veiðisvæði Strauma og Leirvogsá. Söluskrána má nálgast hér að neðan í vefútgáfu og einnig sem PDF-skjal til að hlaða niður.

Veiði
Fréttamynd

Frábær veiði í Stóru Laxá

Veiðimenn eru enn að gera frábæra hluti á svæði I&II í Stóru Laxá. Sogsmenn voru þar enn og aftur á ferðinni síðustu 2 daga, enda ekki hægt að fá nóg af veislunni sem hefur verið í gangi þarna í haust.

Veiði
Fréttamynd

Rólegt í Leirvogsá

Sex laxar veiddust í Leirvogsá í gær. Veitt er til 20. september og vonandi verða síðustu dagarnir góðir þar sem rigning er nú á höfuðborgarsvæðinu.

Veiði