Lax sem meðafli makrílbáta Það hefur verið kvittur á kreiki að undanförnu þess efnis að makrílveiðiskip með flottroll fyrir Austurlandi hafi verið að róta upp laxi í stórum haugum. Talað um allt að 30 tonn á einstökum skipum. Veiði 28. ágúst 2011 08:49
Af Hítará á Mýrum Hítaráin hefur í heildina verið nokkuð góð í sumar. Þó svo að laxinn hafi komið seinna en oft áður þá eru veiðitölur vel yfir meðaltali árinnar. Veiði 26. ágúst 2011 15:58
Verður slegið nýtt met í Breiðdalsá? Nú hafa 790 laxar veiðst í Breiðdalsá og ennþá góður tími framundan í ánni. Heildarveiðin í fyrra var met en þá veiddust 1178 laxar, en það má alveg fastlega reikna með að áin gæti farið yfir þá tölu því fyrstu tvær vikurnar í september hafa oft gefið flotta veiði. Veiði 26. ágúst 2011 11:38
98 sm maríulax úr Svalbarðsá Ungur veiðimaður að nafni Ryan Dunwoody veiddi lúsugann 98 cm Maríulax í Svalbarðsselshyl í Svalbarðsá í kvöld. Laxinn var tekin á Stoats tail tvíkrækju nr. 14 og var seinasta flugan í seinasta rekinu fimm mínútur í níu. Svalbarðsá er núna komin í 466 laxa en frekar hefur hægt á veiði undanfarna daga en í dag og í gær hafa veiðst nokkrir lúsugir eins árs fiskar. Veiði 25. ágúst 2011 15:54
26 punda lax úr Laxá á Nessvæðinu Þó svo að veiðin hafi ekki verið mikil undanfarið á Nesveiðum eru að veiðast sannkallaðir stórlaxar. Í morgun fékkst einn 26 punda úr Presthyl. Veiði 25. ágúst 2011 15:47
Fréttir af Krossá í Bitru Krossá í Bitru er kominn uppí 65 laxa í sumar en heildarveiði í áni síðastliðin ár er í kringum 90-100 laxar. Áin hefur verið frekar vatnslítil undanfarið en það hefur rignt síðastliðna daga. Það vantar ennþá aðeins uppá svo vatnsstaða teljist góð en haustrigningar sjá vonandi um það. Veiði 25. ágúst 2011 13:18
Sogið fullt af laxi Stangirnar sem veiddu Ásgarð í gær og fyrradag lentu í stórveiði og lönduðu 22 löxum, þar á meðal stærsta laxi tímabilsins til þessa úr Soginu. Það voru öngvir aukvissar í Soginu í gær þegar að Ólafur Kr. Ólafsson og félagar voru við veiðar. Veiddu þeir einnig í fyrradag, alls í tvo daga, og gekk veiðin vel. Veiði 25. ágúst 2011 13:13
Topp 10 listinn yfir aflahæstu árnar Nú eru vikulegar tölur Landssambands Veiðifélaga komnar í hús og eins og alltaf er athyglisvert að sjá hvernig árnar eru að bera sig. Ansi rólegt er orðið yfir mörgum ánum á vesturlandi vegna sólríkra daga og vatnsleysis. Það er helst Haffjarðará og Langá sem halda sínu. Maðkurinn er kominn í Langá og það skilaði sér í flottri vikuveiði. Miðfjarðará er líka í góðum gír og í raun flestar árnar sem eru efstar á listanum í góðum málum. Veiði 25. ágúst 2011 10:40
Lax og gæs í Hjaltadalsá Holl vanra manna sem var að koma úr Hjaltadalsá fékk ellefu laxa og var helmingurinn stórlax. Að auki veiddust 22 bleikjur, flestar við Stífluna. Veiðimönnum sem kaupa veiðileyfi nú í haust fá aðgang að akri á Laufskálum til gæsaveiða. Um er að ræða um 10 hektara akur fyrir fjórar byssur og er aðgangurinn endurgjaldslaus séu menn með veiðileyfi í ánni. Veiði 25. ágúst 2011 10:38
Stórlax á silungagræjur í Norðurá II "Fór á fjallið í Norðurá um helgina og lauk veiðum á hádegi á mánudag. Við vorum í erfiðum aðstæðum fyrsta eina og hálfa daginn, þurrki, sól og heiðskíru með ána hratt minnkandi. Á sunnudagskvöldið dró fyrir sólu og nokkrir rigningardropar gerðu vart við sig. Fram að því höfðum við landað þremur fiskum og misst nokkra sökum þess að tökur voru frekar grannar. Búnaðurinn sem við vorum að nota var mjög “nettur“, því maður hafði á tilfinningunni að “venjulegur“ búnaður, þ.e. línuþyngdir 7 – 8 væru að valda full miklum skarkala í/á ánni. Veiði 25. ágúst 2011 10:35
Síðasta holl með 234 laxa í Langá Holl sem var að ljúka veiðum í Langá landaði 234 löxum á 4 dögum. Þetta var fyrsta holl í maðki eins og oft er kallað, og greinilegt að það hefur verið veisla á bökkum Langár. Laxinn er vel dreifður um ánna og voru menn að taka laxa alveg frá Strengjum á neðsta svæðinu og upp í Ármót sem er efsti staður. Veiði 24. ágúst 2011 15:38
Stóra Laxá að vakna Veiðmenn sem voru við veiðar á svæðum 1 og 2 í Stóru Laxá eftir hádegi í gær lönduðu 9 löxum á einni vakt. Eins heyrðum við í veiðimanni sem var á svæði 3 í morgun og náði 2 löxum á rúmum klukkutíma. Svo virðist sem efri hluti vatnasvæðis Hvítár/Ölfusár sé nú loks komið í gang eftir rólegt sumar. Veiði 24. ágúst 2011 13:25
Missti 2 laxa í Elliðavatni Við fengum póst frá veiðimanni sem var í Elliðavatni um helgina og ætlaði að klára sína vatnaveiði þar á þessu tímabili. það má segja að hann hafi heldur betur lent í skemmtilegheitum því hann setti í tvo laxa en því miður missti þá báða. Veiði 24. ágúst 2011 13:11
Tungulækur að vakna og stórfiskar í Jöklu og Minnivallalæk Hér er frétt sem við fengum frá Þresti Elliðasyni hjá Strengjum. Góður gangur hefur verið á veiðisvæðunum hjá þeim og nú er sjóbirtingstíminn framundan svo það er nóg í gangi fyrir veiðimenn í dag. Hér er fréttin frá Þresti: Veiði 24. ágúst 2011 11:15
Nýtt tölublað af Sportveiðiblaðinu komið út Nýtt eintak af Sportveiðiblaðinu var að koma út og hefur blaðið sjaldan verið jafn fullt af skemmtilegum greinum og nú. Í blaðinu má annars finna viðtal við Bo Hall, eða Björgvin Halldórsson um veiðidelluna, veiðistaðalýsing í Blöndu, viðtal við feðgana Sólmund Einarsson og Arne Sólmundsson svo að nokkuð sé nefnt. Veiði 24. ágúst 2011 08:20
Vatnsá og Skógará seinar í gang "Við höfum verið að bíða eftir pistli frá Ásgeiri Ásmundssyni leigutaka Skógár og umsjónarmanni Vatnsár, en höfðum heyrt utan af okkur að veiðin hefði farið heldur seint í gang miðað við síðustu ár. Nú kom pistillinn og orðrómurinn kom á daginn. Veiði 24. ágúst 2011 08:16
Lækkað verð á vatnasvæði Lýsu SVFR hefur í samstarfi við leigutaka Vatnasvæðis Lýsu ákveðið að lækka verð veiðileyfa það sem af er sumri. Nú má vænta þess að sjóbirtingur fari að láta sjá sig á svæðinu. Veiði 23. ágúst 2011 18:35
Lax ennþá að ganga í Borgarfirði Lax er enn að ganga í Borgarfirði. Samkvæmt fréttum frá Daða Björnssyni sem fylgist með gangi mála í Straumunum er enn ágæt veiði á svæðinu. Veiði 23. ágúst 2011 18:33
1100 laxar komnir upp fyrir Árbæjarfoss Mikill lax er genginn upp fyrir Árbæjarfoss og þó nokkur lax mun vera kominn alla leið upp á Heiði / Bjallalæk, sem er efsta svæðið í Ytri Rangá. Mikill metnaður var settur í seiðasleppingar á efri svæðunum með það að markmiði að fá meira af laxi til að ganga upp á efri svæðin. Til að mynda var bætt við tveimur nýjum sleppitjörnum sleppt á svæðið og var 25.000 seiðum sleppt í hverja tjörn fyrir sig. Veiði 23. ágúst 2011 12:29
Góð kvöldveiði í Kleifarvatni Fín veiði hefur verið í Kleifarvatni síðustu daga hjá þeim sem veiða helst á kvöldin og í ljósaskiptunum. Þá hefur urriðinn og bleikjan gengið nær landi tekið vel agn veiðimanna hvort sem um flugu eða beitu er að ræða. Veiði 22. ágúst 2011 15:12
Vegna virkjunarmála í Þjórsá Nú þegar það er komið á borðið að það standi til að virkja neðri hluta Þjórsár hafa viðbrögð manna verið blendin. Það er þó eitt sem vekur upp furðu, og það er að Landsvirkjun hefur sagt að allt verði gert til að tryggja eins lítinn skaða hjá laxastofni Þjórsár með því að gera stiga fyrir niðurgöngulax og einhver lausn er víst rædd sem á að forða seiðunum frá túrbínunum. Veiði 22. ágúst 2011 09:55
Góðar fréttir af sjóbirtingsslóðum Sjóbirtingurinn er mættur í flest öll vatnsföll sem SVFK hefur uppá að bjóða í nágrenni Kirkjubæjarklausturs. Greinilegt að rigningar sem voru á svæðinu í byrjun ágúst hefur skilað inn fyrstu göngunum. Veiði 22. ágúst 2011 08:49
Veiðivötn yfir 20.000 fiska múrinn Á vef veiðivatna má sjá nýjustu upplýsingar um veiði í vötnunum. Þó veiðin sé minni en í fyrra fiskast ennþá vel og er svo komið að 20.000 fiskar hafa veiðst í vötnunum hingað til. Veiði 22. ágúst 2011 08:45
Gæsaveiðin fer rólega af stað Við höfum haft spurnir af nokkrum hópum gæsaveiðimanna sem fóru til veiða þann 20. ágúst þegar gæsaveiðin hófst. Flestir þeirra voru á Heiðagæs og voru menn að koma sér fyrir á morgun- og náttflugsstöðum um vestanvert hálendið. Veiði 22. ágúst 2011 08:35
Gæsaveiðin hófst í dag Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs hefst laugardaginn 20. ágúst. Veiðar á grágæs og heiðagæs hafa verið að aukast hin síðari ár. Þegar um 90% af veiðiskýrslum eru komnar inn fyrir árið 2010 þá er skráð heildarveiði á grágæs um 46.000 fuglar og á heiðagæs um 17.000 fuglar. Til samanburðar má skoða árið 2009 þar sem veiðin var samkvæmt veiðiskýrslum tæpar 60.000 grágæsir og um 20.000 heiðagæsir. Líklegt er að afkomubrestur hafi orðið hjá báðum þessum stofnum þar sem slæmt veður framan af spillti varpi á einhverjum svæðum. Veiði 20. ágúst 2011 21:53
Tungufljótið að lifna við Svo virðist sem að líf sé að glæðast í Tungufljóti í Biskupstungum. Í gær komu 8 laxar á land á 4 stangir og skiptist þannig að allir veiðimenn fengu lax. Veiði 20. ágúst 2011 21:47
Risalax á sveimi í Kjósinni Sannkallaður ofurlax hefur sést á sveimi í Laxá í Kjós og gaman væri ef að einhver næði að setja í dýrið þannig að línur skýrist með þyngd þess! Veiði 19. ágúst 2011 16:01
Munið eftir vestunum Þeir veiðimenn sem huga að ferð í Sogið þennan síðasta mánuð veiðitímans eru hvattir til þess að nota björgunarvestin undantekningalaust. Veiði 19. ágúst 2011 15:45
Hver er besta haustflugan í laxinn? Þegar líður á haustið breytist valið á flugum sem er kastað fyrir lax. Það eru margir sem vilja meina að lax sjá liti vel, og við erum ekki að rengja það, aðrir sem vilja meina að stærð og framsetning flugunnar fyrir laxinn sé það sem skipti mestu máli. Veiði 19. ágúst 2011 10:43
Topp 10 listinn yfir aflahæstu árnar Nú liggja fyrir tölur frá Landsambandi Veiðifélaga á vefnum www.angling.is og staðan er að breytast hratt á þessum vikum þar sem Rangárnar eru að koma sterkar inn. Það veiddust yfir 1200 laxar í þeim í þar síðustu viku og staðan núna er mjög svipuð. Veiði 18. ágúst 2011 21:17