Veiðisögur úr Blöndu og Víðidalsá Þórður Sigurðsson leiðsögumaður sendi okkur eftirfarandi rapport af veiðum norðan heiða, en þar er hann að leiðsegja þjóðverja sem er í annarri heimsókn sinni til landsins. Við gefum Þórði orðið: Veiði 30. júní 2011 16:39
9 laxar á land í Hítará Hollið sem er við veiðar á aðalsvæði Hítarár þessa stundina er komið með 9 laxa á stangirnar fjórar. Allir eru þeir teknir í heimahyljunum. Veiði 30. júní 2011 16:35
Veiði hafinn í Laxá í Dölum Veiði hófst í Laxá í Dölum í gærdag. Í morgun kom svo fyrsti laxinn á land, tíu punda hrygna úr Brúarstreng. Mjög fínt vatn er í ánni en kalt líkt og víða. Veiði 29. júní 2011 17:50
Fjórir laxar fyrsta daginn í Bíldsfelli Opnunardagurinn í Bílsfelli var góður. Sett var í sex laxa í gær og var fjórum þeirra landað. Byrjunin lofar sem sagt góðu í Soginu. Veiði 29. júní 2011 17:46
Fyrsti laxinn kominn úr Andakílsá Fyrsti laxinn kom úr Andakílsá í gær samkvæmt upplýsingum frá veiðimönnum. Var þar á ferðinni 82 cm hrygna sem veiddist um miðbik árinnar. Veiði 29. júní 2011 00:01
Veiðisaga úr Blöndu Eins og við sögðum frá fyrr í dag þá er Blanda 1 að detta í 200 laxa, það telst svosem ekki neitt júnímet en er í góðu meðallagi. Eins og fyrri daginn er talsvert um að stórir fiskar séu að rétta upp króka og láta sig hverfa. Veiði 28. júní 2011 21:00
Fréttir héðan og þaðan af veiðisvæðum Lax-Á Svæði 1 í Blöndu er að nálgast 200 laxana, voru komnir 191 á land í gær og e-ð bæst við síðan þá. Af svæði 3 er búið að skrá einhverja laxa en af svæðum 2 og 4 eru litlar fréttir. Líkast til hefur verið talsvert hark þar í kulda og leiðinda veðri. Veiði 28. júní 2011 20:56
Engin lax gengin í Leirvogsá? Svo virðist sem að lax sé ekki genginn í Leirvogsá. Í það minnsta hefur enginn slíkur verið færður til bókar fyrstu þrjá daga tímabilisins. Veiði 28. júní 2011 20:52
Góður gangur í Elliðaánum Í gærkveldi voru komnir 65 laxar á land úr Elliðaánum. Þetta samsvarar rúmlega tveimur löxum á hverja dagsstöng frá því að veiði hófst þann 21. júní. Veiði 28. júní 2011 20:48
Laxinn mættur í Stóru Laxá Freyr H. Guðmundsson skyggndi Klaufina á svæði 4 í Stóru Laxá núna í gær og sá a.m.k. tvo laxa sem báðir voru 2ja ára. Laxinn er því greinilega mættur í Stóru og má búast við skemmtilegri opnun þar á morgun. Veiði 27. júní 2011 10:20
Metopnun í Selá Selá opnaði í morgun og var metveiði miðað við fyrri opnanir, alls veiddust tuttugu laxar í ánni í dag og muna menn ekki annað eins! Veiði 26. júní 2011 12:48
Flott opnun í Víðidalsá Eftir 2 vaktir eru a.m.k. 9 stórlaxar komnir á land í Víðidalsá og veiddist víðsvegar um ánna. Harðeyrarstrengur, Efri Garðar, Ármót og Laxapollur gáfu t.a.m. allir fiska og er víst talsvert af laxi í Laxapolli. Laxarnir sem komu á land voru allir á bilinu 80 – 85 cm að lengd og var öllum sleppt aftur enda sleppiskylda á stórlaxi í Víðidalnum. Veiði 26. júní 2011 12:45
Miðfjarðará opnaði með 30 laxa holli Eins og við gátum um, þá var opnun Miðfjarðará afar góð og þegar upp var staðið hafði opnunarhollið landað 30 löxum á 6 stangir á tveimur og hálfum degi. Veiði 26. júní 2011 12:41
Mögnuð veiði í Litluá í Keldum Veiði hefur verið með afbrigðum góð í Litluá í Kelduhverfi í allt vor og ekki síður það sem af er sumri. Framan var um blandaðan afla, sjóbirting, staðbundinn urriða og bleikju að ræða, en upp á síðkastið, aðalega urriði. Veiði 26. júní 2011 12:38
Ytri Rangá endaði í 10 löxum á opnunardaginn Ytri Rangá opnaði í gær og komu 10 laxar á land víðsvegar um ána. Ægissíðufoss (ásamt Klöpp) var að venju sterkur og einnig Djúpós en þrír laxar komu upp af Rngárflúðunum og við munum hreinlega ekki eftir því að svo margir laxar hafi veiðst fyrir ofan foss í opnun. Veiði 25. júní 2011 13:29
Ung og efnileg veiðikona með stórlax úr Elliðaánum Stórveiðikonan Hekla Sólveig Gísladóttir veiddi í gær, föstudag, stærsta laxinn sem fengist hefur í Elliðaánum í sumar. Hekla er 14 ára gömul og strax orðin vön veiðikona og hefur komið í Elliðaárnar áður og þekkir því nokkuð til. Veiði 25. júní 2011 13:26
Laxveiðinámskeið Veiðiheims í Elliðaánum. Næstkomandi fimmtudag þann 30. júní fer fram laxveiðinámskeið í Elliðaánum. Farið verður yfir lífsferil laxa, veiðistaðalestur, allar helstu flugurnar, veiðiplanið og meðhöndlun á fiski. Einnig verður farið ítarlega yfir alla helstu veiðistaðina í Elliðaánum, bæði í myndum sem og gengið verður með neðri part ánna. Að loknum veiðistaðalestri verður svo farið í fluguköstin. Veiði 24. júní 2011 13:08
Ein öflugasta flugan í göngulax Núna þegar laxinn er farinn að hellast í árnar er ágætt að taka fyrir eina gamla og góða flugu sem hefur reynst mönnum afskaplega vel við veiðar snemma á tímabilinu. Það er Collie Dog. Þessi fluga hefur verið mikið notuð hér á landi en notkun hennar þó minnkað mikið eftir að túbuvæðingin ýtti henni aðeins til hliðar. Veiði 24. júní 2011 12:44
Fljúgandi start í Ytri Rangá Veiðar hófust í Ytri Rangá í morgun og laxinn var svo sannarlega mættur. Lax-á á er með sína fulltrúa á svæðinu, þá Stefán Pál Ágústsson og Stefán Sigurðsson. Stefán Sig var nú rétt í þessu að landa 12 punda hrygnu en nafni hans Ágústsson var enn fisklaus. Alls voru komnir 6 laxar á land en það er ein besta byrjun í Ytri Rangá í mörg ár. Veiði 24. júní 2011 12:09
30 laxar veiðst í Elliðaánum Í morgun höfðu 30 laxar veiðist í Elliðaánum, en veiði hófst fyrr í vikunni. Þegar ritstjóra bar að í morgun var verið að taka annan kvóta morgunsins úr Fossinum. Veiði 24. júní 2011 12:03
Glæsileg opnun í Hafralónsá Hafralónsá í Þistilfirði byrjaði með miklum ágætum í fyrramorgun. Reyndar veiddist ekkert fyrir hádegi, en strax vel seinni partinn og á hádegi í gær voru tvímenningarnir sem opnuðu ána búnir að landa tíu löxum. Veiði 24. júní 2011 08:18
Ytri Rangá opnar á morgun Ytri Rangá opnar á morgun og má segja að það sé komin ansi mikill spenningur í menn, Það er um vika síðan menn fóru að sjá fyrstu Laxana í Ytri Rangá. Fyrstu laxarnir sáust við Djúpós og Breiðabakka. þess má geta að að núna eru 2 laxar farnir í gegnum Árbæjarfoss sem er efri fossin sem þýðir að það gæti verið lax um alla á. Við ægisíðufoss hafa verið vandræði með Teljarann svo það er ekki hægt að segja með vissu hversu margir laxar hafa farið þar í gegn. Veiði 23. júní 2011 18:35
Loksins líf í Straumunum Það hefur verið lítið um fréttir úr Straumunum það sem af er, og þá væntanlega vegna þess að lítið hefur verið að gerast. Þetta breyttist þó í gærkveldi Veiði 23. júní 2011 09:53
Fyrsti laxinn úr Mýrarkvísl Fyrsti laxinn veiddist í Mýrarkvísl í Reykjahverfi í gærdag og þykir það snemmt á þeim bæ. Laxinn var engin smásmíði, 88 cm langur og ekki lúsugur. Veiði 23. júní 2011 08:43
Líflegt í vötnunum Vötnin hafa mörg hver tekið vel við sér að undanförnu, sérstaklega þó á sunnanverðu landinu þar sem veður hefur verið skaplegra en nyrðra. Við heyrðum t.d. frábærar bréttir bæði frá Þingvallavatni og Úlfljótsvatni frá síðustu helgi. Veiði 23. júní 2011 08:40
10 laxar í Grímsá fyrsta daginn Þá eru fleiri Borgarfjarðarár að detta inn og Grímsá er ein af þeim. Opnunin gekk vel og það engum á óvart þegar fyrsti laxinn tók enda hafa menn séð laxa í ánna dagana á undan og það var viðbúið svo lengi sem aðstæður væru góðar að opnuninn gengi vel. Veiði 23. júní 2011 08:30
Ótrúlegar fréttir úr Breiðdalsá Oftast hefur verið vart við laxa á stangli í Breiðdalsá í júní en ekki verður opnað fyrr en 1. júlí eins og verið hefur undanfarinn ár. En miðað við lýsingarnar sem berast að austan má kanski fara að endurskoða það! Veiði 22. júní 2011 13:38
16 laxar komnir úr Elliðaánum Í morgun höfðu alls sextán laxar veiðst í Elliðaánum en veiði hófst þar í fyrradag. Veitt er á fjórar stangir í upphafi vertíðar. Í gækveldi höfðu 11 laxar gengið teljarann. Veiði 22. júní 2011 13:28
Slæm umgengni við veiðivötn á Arnarvatnsheiði Í gærkvöldi voru Snorri Jóhannesson veiðivörður og Guðmundur Kristinsson formaður Veiðifélags Arnarvatnsheiðar á ferð um heiðina við eftirlit og viðhald fasteigna. Við Arnarvatns litla gengu þeir fram á afar slælega umgengni veiðimanna eftir ábendingu frá öðrum veiðimönnum sem vart áttu orð til að lýsa vanþóknun sinni. Veiði 22. júní 2011 13:25
Laxá í Ásum farin að sýna laxana Samkvæmt heimildum þeirra Lax-á norðan heiða er það að frétta af heimamönnum sem höfðu farið og skyggnt Ásana af þjóðvegabrúnni og sáu ekki færri en 3 laxa liggja þar fyrir neðan. Það eru því líkur á að Ásarnir byrji snemma þetta árið, eins og þeir hafa reyndar gert undanfarin ár. Veiði 22. júní 2011 13:17