Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Eyjólfur Árni Rafnsson var í dag endurkjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins með 96,45 prósent greiddra atkvæða, í rafrænni kosningu sem fór fram í aðdraganda aðalfundar sem fram fór í dag. Viðskipti innlent 15. maí 2024 14:15
Barbara Hannigan stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni Kanadíski hljómsveitarstjórinn og söngkonan Barbara Hannigan hefur verið ráðin aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún mun taka við stöðunni í ágúst 2026 og gegna henni í þrjú starfsár. Menning 15. maí 2024 12:47
Bergur Þór nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar Bergur Þór Ingólfsson er nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar. Hann tekur við af Mörtu Nordal sem hefur gegnt starfinu síðustu í sex árin. Menning 15. maí 2024 12:20
Settur forstjóri skipaður forstjóri Óskar Jósefsson hefur verið skipaður nýr forstjóri Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseignir, FSRE. Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, skipar Óskar en tuttugu manns sóttu um starfið. Innlent 14. maí 2024 15:25
Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Guðrún Einarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Rue de Net og tekur hún við starfinu af Alfred B. Þórðarsyni sem mun taka við nýju hlutverki sem tæknistjóri Rue de Net og leiða nýsköpun og vöruþróun. Viðskipti innlent 14. maí 2024 11:40
Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Harpa Pétursdóttir hefur verið ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta hjá Orkuveitunni og hefur hún þegar hafið störf. Um er að ræða nýja einingu hjá Orkuveitunni sem er hluti af sviði Rannsókna og nýsköpunar. Viðskipti innlent 13. maí 2024 14:34
Freyr ráðinn til Eflingar Freyr Rögnvaldsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi Eflingar stéttarfélags. Hann er stjórnmálafræðingur með mikla reynslu af fjölmiðlun. Viðskipti innlent 13. maí 2024 13:56
Þrír sóttu um stöðu dómara við Landsrétt Þrír sóttu um stöðu dómara við Landsrétt sem dómsmálaráðuneytið auglýsti laust til umsóknar í síðasta mánuði. Innlent 10. maí 2024 13:57
Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Heiðrún Ósk Jóhannsdóttir hefur gengið til liðs við Góð samskipti sem ráðgjafi og verkefnastjóri. Viðskipti innlent 10. maí 2024 09:03
Mun stýra tæknisviði Carbfix Sólveig Hrönn Sigurðardóttir hefur verið ráðin til Carbfix þar sem hún mun stýra tæknisviði félagsins. Hún var áður forstöðumaður upplýsingatæknireksturs hjá Alvotech og þar á undan forstöðumaður þjónustustýringar hjá Reiknistofu bankanna. Viðskipti innlent 10. maí 2024 08:43
Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Guðríði Hrund Helgadóttur í embætti skólameistara Menntaskólans í Kópavogi til fimm ára frá 1. ágúst 2024. Guðríður sótti ein um embættið. Innlent 9. maí 2024 08:40
Ráðin aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Linda Jónsdóttir hefur verið ráðin í stöðu aðstoðarforstjóra og fjármálastjóra Sidekick Health. Viðskipti innlent 8. maí 2024 08:15
Einar hættir með Grillbúðina Einar Long, sem rekið hefur Grillbúðina um árabil, hefur ákveðið að setjast í helgan stein. Húsasmiðjan tekur við vörumerkjunum sem seld hafa verið í Grillbúðinni um 17 ára skeið. Viðskipti innlent 7. maí 2024 15:45
Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Davíð Tómas Tómasson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Moodup. Hann tekur við starfinu af Birni Brynjúlfi Björnssyni, sem var framkvæmdastjóri frá árinu 2021. Davíð hefur þegar hafið störf. Viðskipti innlent 7. maí 2024 13:52
Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Séra Guðrún Karls Helgudóttir var í dag kjörin biskup Íslands. Kosið var milli hennar og Guðmundar Karls Brynjarssonar. Guðrún tekur við af Agnesi M. Sigurðardóttur sem hefur gegnt embættinu síðan árið 2012. Innlent 7. maí 2024 12:48
Ráðin forstöðumaður hjá OK Rúna Guðrún Loftsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður framlínuþjónustu OK. Viðskipti innlent 7. maí 2024 10:11
Valtýr ráðinn yfirlæknir Valtýr Stefánsson Thors hefur verið ráðinn sem yfirlæknir barnalækninga við Landspítalann. Innlent 7. maí 2024 09:45
Snýr aftur til Snjallgagna Óli Páll Geirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri gagnavísindateymis Snjallgagna og snýr jafnframt samhliða aftur í eigendateymið. Viðskipti innlent 7. maí 2024 07:41
Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Mímir Hafliðason hefur verið ráðinn forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Högum, en staðan er ný innan samstæðunnar. Viðskipti innlent 6. maí 2024 09:48
Guðný og Sigurður Helgi til SI Guðný Hjaltadóttir og Sigurður Helgi Birgisson hafa verið ráðin viðskiptastjórar á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins. Guðný ber ábyrgð á framleiðsluiðnaði og Sigurður Helgi landbúnaði og matvælaiðnaði. Viðskipti innlent 3. maí 2024 09:46
Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Skúli Bragi Geirdal, sérfræðingur í miðlalæsi hjá Fjölmiðlanefnd, hefur tekið við stöðu sviðsstjóra SAFT - Netöryggismiðstöðvar Íslands (Safer Internet Center á Íslandi). Viðskipti innlent 3. maí 2024 08:30
Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Arnar Már Magnússon hefur verið gerður að aðstoðarforstjóra flugfélagsins Play. Arnar Már hefur verið framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Play og mun áfram sinna þeirri stöðu meðfram nýju hlutverki. Viðskipti innlent 2. maí 2024 16:50
Sjö vilja taka við af Gunnari Alls bárust sjö umsóknir um embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika en forsætisráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar 9. apríl síðastliðinn og rann umsóknarfrestur út 30. apríl. Gunnar Jakobsson baðst á dögunum lausnar og var Arnór Sighvatsson settur tímabandið í embættið. Viðskipti innlent 2. maí 2024 13:54
Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Atli Þór Fanndal, sem hefur undanfarin ár verið framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International, hefur verið ráðinn samskiptastjóri Pírata. „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn,“ segir hann. Innlent 2. maí 2024 13:33
Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Friðrik Jónsson, sendifulltrúi og fyrrverandi formaður BHM, tekur við stöðu sendiherra Íslands í Póllandi þann 1. ágúst næstkomandi. Innlent 2. maí 2024 11:10
Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur sett Arnór Sighvatsson tímabundið í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins. Innlent 30. apríl 2024 22:47
Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Fjármála- og efnahagsráðherra, innviðaráðherra og Hermann Sæmundsson, fráfarandi ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytisins, hafa gert með sér samkomulag um flutning Hermanns í embætti ráðuneytisstjóra fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Innlent 30. apríl 2024 19:33
Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur sett Birnu Ágústsdóttur, sýslumanninn á Norðurlandi vestra, tímabundið sem sýslumann á Vesturlandi, frá 1. júní næstkomandi til og með 31. maí 2025. Tilefni setningarinnar er beiðni Ólafs Kristófers Ólafssonar, sýslumanns, um lausn frá embætti. Innlent 30. apríl 2024 12:51
Langþráður draumur Völu Eiríks rættist Langþráður draumur útvarpskonunnar Valdísar Eiríksdóttur, sem margir þekkja sem Völu Eiríks, rættist á dögunum þegar henni bauðst starf á Rás 2. Þar mun hún starfa sem framleiðandi og tæknistjóri morgunútvarpsins auk þess mun hún halda utan um plötu vikunnar. Lífið 29. apríl 2024 17:51
Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Sunna Valgerðardóttir, frétta- og dagskrárgerðarkona á RÚV, hefur verið ráðin til þingflokks Vinstri grænna. Hún hefur þegar látið af störfum hjá RÚV. Innlent 29. apríl 2024 12:06