Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann Chelsea hefur unnið fyrstu tvo leiki tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. Um helgina vann liðið Brighton 4-3 en liðið var aðeins með boltann 26% í leiknum á heimavelli. Þau Halldór Árnason og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir ræddu leikstíl liðsins undir stjórn Xabi Alonso, sem tók við liðinu í sumar, í síðasta þætti af Sunnudagsmessunni á Sýn Sport. Enski boltinn 1.9.2026 16:45
City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Argentínski miðjumaðurinn Enzo Fernández er á leið frá Chelsea til Manchester City samkvæmt Fabrizio Romano. Enski boltinn 1.9.2026 15:54
Mbaye til Aston Villa Aston Villa hefur gengið frá kaupum á senegalska leikmanninum Ibrahim Mbaye frá Paris St Germain fyrir 47 milljónir punda. Enski boltinn 1.9.2026 12:02
Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Lið Manchester United þarf að bæta nokkrar stöður á vellinum ef liðið á að halda áfram að verða betra. Félagið hefur haft sömu tvo bakverði í mörg ár og er kominn tími til að fá betri leikmenn þangað inn. Enski boltinn 31.8.2026 19:47
Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Arsenal vann Aston Villa 1-0 í tíðindalitlum leik í annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Englandsmeistararnir eru þá búnir að vinna tvo fyrstu leiki tímabilsins í deildinni. Enski boltinn 31.8.2026 18:31
„Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ Engin félög hafa skipt jafn mörgum leikmönnum á milli sín í ensku úrvalsdeildinni síðustu fjögur ár heldur en Aston Villa og Chelsea. Unai Emery, þjálfari Aston Villa, þvertekur þó fyrir að sambandið snúist um eitthvað annað en peninga. Enski boltinn 31.8.2026 17:16
„Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Byrjun Liverpool í ensku úrvalsdeildinni hefði mátt vera betri en liðið hefur gert jafntefli í tveimur fyrstu umferðunum, gegn Newcastle og Nottingham Forrest. Enski boltinn 31.8.2026 16:16
Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Liverpool er við það að ganga frá kaupum á tveimur ungum leikmönnum sem munu ekki ganga í raðir liðsins fyrr en á næstu leiktíð. Hægagangur félagsins á markaðnum í sumar hefur kallað á gagnrýni. Enski boltinn 31.8.2026 14:03
Man. City kaupir brasilískan vængmann Man. City styrkti sitt lið í dag er félagið gekk frá kaupum á Brasilíumanninum Allan Elias. Enski boltinn 31.8.2026 13:18
Barcola kominn til Liverpool Liverpool hefur staðfest kaup liðsins á Frakkanum Bradley Barcola. Hann kemur til liðsins frá Frakklandsmeisturum Paris Saint-Germain. Enski boltinn 31.8.2026 13:11
Glasner tekur sinn besta mann til Forest Nottingham Forest hefur fest kaup á kólumbíska bakverðinum Daniel Muñoz frá Crystal Palace. Hann fylgir því þjálfara sínum frá síðustu leiktíð yfir í Skírisskóg. Enski boltinn 31.8.2026 12:22
Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Tíðindi af Richard Hughes, yfirmanni íþróttamála hjá Liverpool, hafa fallið í grýttan jarðveg hjá stuðningsmönnum liðsins. Hann er sagður hafa starfað fyrir annað félag samhliða störfum sínum í Bítlaborginni. Enski boltinn 31.8.2026 08:02
Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Tímabilið byrjar skelfilega hjá Tottenham-mönnum og kristallast kannski í hreint út sagt ömurlegri aukaspyrnu Mathys Tel í 2-0 tapinu gegn Newcastle. Sérfræðingarnir í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport áttu vart orð yfir spyrnunni sem því miður fyrir Tel hefur farið víða um netheima. Enski boltinn 31.8.2026 07:03
Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno Fernandes skoraði þrennu og lagði upp mark í 5-2 sigri Manchester United gegn Ipswich og Chelsea vann Brighton í öðrum sjö marka leik. Öll mörk dagsins í ensku úrvalsdeildinni má sjá á Vísi. Enski boltinn 30.8.2026 21:33
Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Fyrirliðinn Bruno Fernandes skoraði þrennu og lagði upp mark þegar Manchester United náði í sín fyrstu stig á þessari leiktíð í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, með 5-2 sigri á nýliðum Ipswich á Old Trafford. Enski boltinn 30.8.2026 15:00
Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Félagsskiptaglugginn lokar á þriðjudaginn og eru liðin í ensku úrvalsdeildinni að keppast um að klára leikmannaskipti áður en hann klárast. Margir leikmenn á Englandi eru orðaðir við lið og hefur myndast ákveðin hringrás í leikmannaskiptum. Enski boltinn 30.8.2026 13:15
Dramatískur markaleikur á Brúnni Chelsea vann Brighton 4-3 í sannkölluðum markaleik í annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Brighton var nálægt því að jafna metin en forskot Chelsea reyndist of mikið. Enski boltinn 30.8.2026 12:33
Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Everton hefur hafnað tilboði Nottingham Forest í unga miðjumanninn Harrison Armstrong. Ástæðan fyrir því er að stuðningsmenn Everton voru brjálaðir yfir því að hann væri að fara. Enski boltinn 30.8.2026 11:31
Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Hegðun fullorðins karlmanns eftir leik Liverpool og Nottingham Forest á Anfield í gær hefur valdið hneykslun en hann reyndi að hrifsa treyju Alexanders Isak af tveimur strákum, eins og sjá má á myndbandi. Enski boltinn 30.8.2026 08:03
Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Cody Gakpo hefur samþykkt að ganga í raðir Manchester City frá Liverpool og nú er þess beðið að félögin komist að samkomulagi um kaupverð. Enski boltinn 29.8.2026 20:34
Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Alisson, markvörður Liverpool, sparkaði í spjald og braut það í bræði sinni eftir 2-2 jafnteflið við Nottingham Forest á Anfield í dag. Mörkin og helstu atvik úr öllum fjórum leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni má sjá á Vísi. Enski boltinn 29.8.2026 19:33
Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Þjóðverjinn Matthias Jaissle getur ekki kvartað yfir byrjun sinni sem stjóri Newcastle en liðið er með fjögur stig eftir góðan 2-0 útisigur gegn Tottenham í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Enski boltinn 29.8.2026 16:00
Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Margir Íslendingar voru í eldlínunni í dag og stóðu íslensku leikmennirnir sig vel. Andri Lucas Guðjohnsen, Benóný Breki Andrésson og Tómas Bent Magnússon spiluðu allir mikilvæg hlutverk með sínum liðum. Enski boltinn 29.8.2026 16:58
Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Bournemouth tók á móti Everton í annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Everton náði að tryggja jafntefli í uppbótartíma leiksins. Enski boltinn 29.8.2026 13:32