Halleluwah - Blue Velvet (feat. Raketa)

Hljómsveitin Halleluwah með Sölva Blöndal í fararbroddi frumsýnir hér myndband við lagið Blue Velvet. Söngkonan Raketa (Rakel Mjöll Leifsdóttir) gengur hér til liðs við sveitina. Blue Velvet er fyrsta lagið af nokkrum í nýju samstarfsverkefni milli Halleluwah og Raketu. Tónlistarstefnu lagsins má rekja til vinsælla Girl Pop-sveita á sjöunda áratugnum, líkt og Shangri-Las og France Gall, blandað saman með hiphop og elektró-sveiflum. Um kvikmyndatöku sáu Snorri Hertervig og Bruno Granato. Raketa leikstýrði myndbandinu, sá um eftirvinnslu og klippingu. Það er með heldur dökku yfirbragði og með innblástur frá verk leikstjórana David Lynch og Tyrone Lebon. Myndbandið er framleitt af Halleluwah.

9390
03:04

Vinsælt í flokknum Tónlist