Haffi Haff - Speechless

Vísir frumsýnir hér glænýtt myndband frá Haffa Haff við lagið Speechless. Honum til halds og trausts eru Siggi úr Ultra Mega Technobandinu Stefán og fyrirsætur frá Elite. Leikstjóri er Eric Heimbold en hann er heimsfrægur fyrir auglýsingar sínar og myndbönd, leikstýrði meðal annars hinu klassíska Who Let The Dogs Out? Myndbandið er tekið upp í samstarfi við tískuumboðsskrifstofuna Elite og tónlistarumboðið Artist Anonymous en á bak við það standa Haffi Haff, Siggi Ultra, Gunnar Karl umboðsmaður og upptökustjórinn Steinar Jónsson, sem sá um eftirvinnslu myndbandsins.

2946
02:45

Næst í spilun: Tónlist

Vinsælt í flokknum Tónlist